Fimm áhrifavaldar með undir 200 þúsund á mánuði

Samkvæmt Tekju­blað­inu eru 21 af helstu áhrifa­völdum lands­ins með undir 450 þús­und krónum á mán­uði í tekjur og eru fimm með undir 200 þús­und krónum. Tekju­hæstur er Snorri Rafnsson.

Snorri Rafnsson
Snorri Rafnsson Mynd: Hekla

Snorri Rafnsson, betur þekktur sem Varg­ur­inn, var tekju­hæsti áhrifa­vald­ur­inn árið 2018, sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar, en hann var með 1.480 þús­und krónur á mán­uði. Tölu­verður munur er á tekjum áhrifa­valda og eru til að mynda 21 af þeim sem eru í blað­inu með undir 450 þús­und krónum á mán­uði og eru fimm með undir 200 þús­und krónum.

[links]

Tekju­blað­ið, þar sem tekjur 3.725 Íslend­inga eru opin­ber­aðar á grund­velli upp­lýs­inga á greiddu útsvari sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra (RSK), kom út í dag.

Samkvæmt Tekju­blað­inu var Tanja Ýr Ást­þórs­dóttir, áhrifa­valdur og snapp­ari, með minnstar tekjur af þeim sem eru á list­anum með 93 þús­und krónur á mán­uði. Manúela Ósk Harð­ar­dóttir, áhrifa­valdur og snapp­ari, var með 191 þús­und krónur á mán­uði, Alda Karen, áhrifa­valdur, með 206 þús­und krónur í tekjur á mán­uði og Guðrún Veiga með 327 þús­und krónur á mán­uði.

[adspot]

Arna Ýr Jóns­dóttir var með 244 þús­und á mán­uði, Sunneva Eir Ein­ars­dóttir með 229 þús­und og Ingileif Frið­riks­dóttir með 126 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár