Átta konur á meðal 100 launahæstu forstjóra

Einungis ein kona nær inn á topp tíu yfir launa­hæstu for­stjóra lands­ins og allir for­stjórar sem voru með yfir átta millj­ónir króna á mán­uði eru karlar.

Átta konur kom­ast á lista yfir 100 launa­hæstu for­stjóra lands­ins sem birtur er í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar.

[links]Tekju­blaðið, þar sem tekjur 3.725 Íslend­inga eru opin­ber­aðar á grund­velli upp­lýs­inga á greiddu útsvari sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra (RSK), kom út í dag.

Sú kona í for­stjóra­stöðu sem situr efst á þeim lista er Rannveig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan á Ísland. Hún var með tæp­lega 6,3 millj­ónir króna á mán­uði. Herdís Dröfn Fjeld­sted, sem var fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands, fjár­fest­ing­ar­sjóðs í eigu Lands­bank­ans og líf­eyr­is­sjóða, var með 6,1 milljón króna í mán­að­ar­laun í fyrra, en hún tók einnig sæti í stjórn Arion banka á því ári. Hún situr í 13. sæti lista Frjálsrar versl­unar.

Erna Gísla­dóttir, hlut­hafi og for­stjóri bíla­um­boðs­ins BL situr svo í 20. sæti list­ans en með­al­laun hennar á mán­uði í fyrra voru tæp­lega 5,1 millj­ónir króna.

[adspot]Tveir for­stjórar Nova, sá fyrr­ver­andi og núver­andi, kom­ast báðar á list­ann yfir hæst­laun­uð­ustu for­stjór­anna. Liv Berg­þórs­dóttir, var með 4,9 millj­ónir króna að með­al­tali í mán­að­ar­laun í fyrra en eft­ir­maður hennar í starfi, Margrét B. Tryggva­dóttir, var með rúm­lega 3,7 millj­ónir króna á mán­uði. Liv sat einnig í stjórn WOW air á síð­asta ári.

Þær sitja í 25. og 50. sæti á list­anum yfir hæst­laun­uð­ustu for­stjór­anna. Á milli þeirra á list­anum er svo Hrund Rudólfs­dóttir, for­stjóri Veritas Capital, með 4,7 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Hún situr í 29. sæti á list­anum.

Magnea Þórey Hjálm­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Icelandair Hotels, situr í sæti 55 á lista Frjálsrar versl­unar með tæp­lega 3,7 millj­ónir króna á mán­uði. Síðasta konan til að ná inn á topp 100 er svo Katrín Pét­urs­dóttir, for­stjóri Lýsis, sem var með tæp­lega 3,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun í fyrra að með­al­tali og nær að setj­ast í 74. sæti list­ans á grund­velli þeirra.

Karlar ráða sér í efstu sætin

Jón Björns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Festis, var tekju­hæsti for­stjóri lands­ins í fyrra með um 28,4 millj­ónir króna á mán­uði. Jón stýrði Festi, sem rekur N1, Krónuna, Elko og Bakkann, þangað til í byrjun sept­em­ber í fyrra.

Þar á eftir komu Kári Stef­áns­son, með 27,5 millj­ónir króna á mán­uði, og Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen, með 27,4 millj­ónir króna á mán­uði. Íslensk erfða­grein­ing sendi frá sér athuga­semd í morgun þar sem fram kemur að mán­að­ar­laun Kára Stef­áns­sonar hjá fyr­ir­tæk­inu séu 7,5 millj­ónir króna, en ekki sú tala sem til­greind er í tekju­blað­inu. „Mis­mun­ur­inn stafar að mestu af því að Kári Stef­áns­son ákvað leysa til sín sparnað úr sér­eigna­sjóði líf­eyr­is­sjóðs í fyrra. Sú ein­greiðsla bæt­ist við skatt­stofn­inn og þannig verður þessi mis­skiln­ingur til.“

[adspot]Tómas Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Alcoa USA, var með 14,7 millj­ónir króna í tekjur á mán­uði í fyrra, Valur Ragn­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Medis, hafi verið með 10,4 millj­ónir króna á mán­uði og Grímur Sæmund­sen, for­stjóri og helsti hlut­hafi Bláa Lónsins, fékk 10,3 millj­ónir króna í laun á mán­uði árið 2018.

Samkvæmt þessu voru sex for­stjórar með mán­að­ar­laun sem voru yfir tíu millj­ónum króna á mán­uði. Níu for­stjórar voru með laun yfir átta millj­ónum á mán­uði þar sem þeir Árni Oddur Þórð­ar­son (8,9 millj­ónir króna á mán­uði), for­stjóri Marel, Jón Þor­grímur Stef­áns­son (8,2 millj­ónir króna á mán­uði), for­stjóri NetApp, og Carlos Cruz (8,1 milljón króna á mán­uði), for­stjóri Coca Cola á Íslandi, náðu líka þeim áfanga.

Allir níu for­stjór­arnir sem voru með yfir átta millj­ónir króna í mán­að­ar­laun eru karlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár