Jón Björnsson hættur sem forstjóri Festar

Jón Björns­son er hættur sem for­stjóri Festar. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti í lok júlí kaup N1 á öllu hlutafé Festi hf. For­stjóri sam­ein­aðs fé­lags N1 og Fest­ar verður Eggert Þór Kristó­fers­son sem nú er for­stjóri N1.

Jón Björns­son er hættur sem for­stjóri Festar. Félagið rekur meðal ann­ars versl­anir Krón­unnar og vöru­húsið Bakkann.

Jón hefur verið for­stjóri Festar frá því í febr­úar 2014 en var áður for­stjóri ORF Líftækni, Magasin du Nord í Kaup­manna­höfn og Haga hf.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti í lok júlí kaup N1 á öllu hlutafé Festi hf. For­stjóri sam­ein­aðs fé­lags N1 og Fest­ar verður Eggert Þór Kristó­fers­son sem nú er for­stjóri N1.

Mbl.is greinir frá því að Jón hafi sent sam­starfs­fólki sínu tölvu­póst fyrir helgi þar sem fram kom að þótt hann láti nú af störfum sem for­stjóri Festi muni hann gegna emb­ætti stjórn­ar­for­manns Krón­unnar.

Fengu 344 milljónir

Kaup­verð hluta­fjár Fest­ar, að teknu til­liti til leið­rétt­ing­ar­á­kvæða í kaup­samn­ingi, nem­ur 23,7 millj­örðum króna og var það ann­ars veg­ar greitt með af­hend­ingu ríf­lega 79,5 millj­óna hluta í N1 á geng­inu 115, eða 9,2 millj­arða króna, og hins veg­ar með ríf­lega 14,5 millj­arða í formi reiðu­fjár.

Sex lyk­il­stjórn­endur Festar, þar á meðal Jón Björns­son for­stjóri, fengu sam­an­lagt um 344 millj­ónir króna greiddar þegar kaup­rétt­ar­samn­ingar þeirra voru gerðir upp fyrr á árinu í tengslum við sölu á keðj­unni til N1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár