Verktökum sem hlustuðu á upptökur úr iPhone vikið úr starfi

Apple hefur vikið verk­tökum sem hlust­uðu á upp­tökur frá Siri, radd­þjón­ustu í iPhone símum, úr starfi. Verk­tak­arnir áttu að meta gæði Siri og hlust­uðu þeir á upp­tökur af við­kvæmum sam­ræðum not­enda.

Apple hefur vikið verk­tökum sem hlust­uðu á upp­tökur frá Siri, radd­þjón­ustu í iPhone símum, úr starfi. Upp­sagn­irnar koma í kjöl­far upp­lýs­inga sem the Guardian birti á vef sínum.

Rannsókn The Guardian sýndi fram á að verk­tak­arnir gátu hlustað á sam­ræður almennra not­enda og komust þannig á snoðir um per­sónu­legar upp­lýs­ingar ein­stak­linga. Til að mynda hafi verk­tak­arnir hlustað á fólk hafa sam­ræði og fíkni­efna­kaup. Þeir hafi einnig heyrt upp­lýs­ingar um lyfja­notkun fólks.

[adspot]Verk­tak­arnir voru ráðnir til þess að gefa Siri, radd­stýrðri þjón­ustu Apple, ein­kunn. Þeir áttu að meta hvort að virkjun Siri í símum not­enda hefði verið vilj­andi eða ekki, hvort Siri gæti svarað fyr­ir­spurnum not­enda og hvort Siri svar­aði á réttan hátt.

Apple sagði blaða­mönnum The Guardian að ein­ungis væri rýnt í lít­inn hluta sam­skipta not­enda við Siri og væru verk­tak­arnir bundnir þagn­ar­skyldu. Talsmenn Apple segja fyr­ir­tækið ekki munu halda áfram með verk­efnið fyrr en ítar­lega væri farið yfir verk­ferla þess.

Upp­ljóstr­ari sem vinnur fyrir Apple sagði The Guardian að hann hefði heyrt fjöl­margar upp­tökur af afar við­kvæmum sam­skiptum not­enda iPhone. Til að mynda hefði hann heyrt fólk tala við lækni sinn, heyrt af við­skipta­samn­ingum, ólög­legum athöfnum fólks og sam­ræði fólks. Hann hefði jafn­framt séð stað­setn­ingu þeirra, hver þau voru og hvaða síma þau voru með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár