Greta Thunberg biðlar til þingmanna að vera í liði með vísindum

Greta Thunberg heim­sótti franska þingið í morgun. Hún biðl­aði til þing­manna að hlusta á vís­indi og láta börn ekki ein bera ábyrgð­ina á því að breyta stefnum ríkja í lofts­lags­málum.

Greta Thunberg ávarp­aði í morgun franska þingið þrátt fyrir að ýmsir hægri­s­inn­aðir franskir þing­menn hafi hvatt til þess að ávarpið væri snið­gengið, að því er kemur fram í frétt Le Monde. 162 franskir umhverf­is­vernd­un­ar­sinn­aðir þing­menn buðu henni að tala á þing­inu. Heimsókn Gretu í franska þingið hefur vakið deilur á meðal þing­manna þar í landi. Hægri­s­inn­aðir þing­menn snið­gengu ávarp hennar og hvöttu aðra þing­menn til að gera slíkt hið sama.

Greta sagði að þing­mönn­unum bæri ekki skylda til þess að hlusta á hana og önnur börn þar sem þau væri „hvort eð er bara börn.“ Hins vegar bæri þing­mönnum skylda til að hlusta á það sem vís­indin segja og biðl­aði til þing­mann­anna að vera í liði með vís­indum.

[adspot]„Það er næstum eins og þið vitið ekki að þessar tölur séu til, eins og þið hafið ekki lesið síð­ustu skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál sem fram­tíð sið­menn­ingar okkar veltur á,“ sagði Greta. „Eða kannski eruð þið ekki nógu þroskuð til þess að segja hlut­ina eins og þeir eru. Meira að segja þessar skyldur látið þið okkur bera, okkur börnin.“

Kalla Gretu heimsenda spákona í stuttum hnébuxum

[links]Þing­menn­irnir köll­uðu hana „heim­sendis gúrú“ og að hún væri „barna­lega and­staða við fram­far­ir.“ Þetta kemur fram í frétt Le Monde. Hin sextán ára Greta hefur farið sem storm­­sveipur um heim­inn og meðal ann­­ars verið til­­­nefnd til frið­­­ar­verð­­launa Nóbels.

Til að mynda skrif­aði Julien Aubert, þing­maður lýð­veld­is­sinna, í færslu á Twitter að hann virði hugs­ana­frelsi. „Ekki reikna með því að ég fagni spá­konu í stuttum hné­bux­um. Hræðslu­verð­laun Nóbels,“ bætti hann þó við og vís­aði þar til þess að hún hefði verið til­nefnd til frið­ar­verð­laun­anna. Guillaume Larri­vé, þing­maður í sama flokki og Aubert, hvatti einnig til að snið­göngu á meðan Greta ávarp­aði þingið.

Helsta ógn olíu­fyr­ir­tækja

Greta Thun­berg og umhverf­isaktí­vistar eru helsta ógn Sam­­taka olíu­­-­út­­­flutn­ings­­fyr­ir­tækja (OPEC) að mati Mohammed Barkindo, aðal­­fram­­kvæmda­­stjóra sam­tak­anna. Greta hefur sagt þetta vera stærsta hrós sem hún hafi hlot­ið, að því er kemur fram í frétt The Guar­d­i­­an.

Íslensk börn hafa á föst­u­­dögum í vetur skrópað í skól­ann og mætt á Aust­­ur­­völl til að krefja íslensk stjórn­­völd um aðgerðir í lofts­lags­­mál­­um. Þau krefj­­ast þess að Ísland taki af skar­ið, hlusti á vís­inda­­menn, lýsi yfir neyð­­ar­á­standi og láti hið minnsta 2,5 pró­­sent af þjóð­­ar­fram­­leiðslu renna beint til lofts­lags­að­­gerða. Þar verði atvinn­u­lífið einnig að axla ábyrgð og til þess verði ákveðin við­horfs­breyt­ing að eiga sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftsagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár