Greta Thunberg tilnefnd til Friðarverðlauna Nóbels

Bar­áttu­konan og aðgerðasinn­inn Greta Thunberg hefur verið til­nefnd til Frið­ar­verð­launa Nóbels.

Greta Thunberg
Greta Thunberg Mynd: EPA

Hin sextán ára Greta Thunberg hefur verið til­nefnd til Frið­ar­verð­launa Nóbels en hún hefur öðl­ast heims­frægð fyrir bar­áttu sína og aktí­visma gegn lofts­lags­breyt­ingum.

Stjórn­mála­menn og ýmsir háskóla­pró­fess­orar mega nú til­nefna ein­stak­linga eða sam­tök til Frið­ar­verð­launa Nóbels en athöfnin mun fara fram í des­em­ber næst­kom­andi. Samkvæmt frétt The Guardian um málið er 301 til­nefn­ing komin, þar af fyrir 223 ein­stak­linga og 78 sam­tök.

„Við höfum til­nefnt Gretu Thunberg vegna þess að ef við gerum ekk­ert til að koma í veg fyrir lofts­lags­breyt­ingar þá verður það til­efni til stríða, átaka og fjölgun flótta­manna,“ sagði norski þing­mað­ur­inn Freddy André Øvstegård í sam­tali við The Guardian. „Greta Thunberg hefur komið af stað fjölda­hreyf­ingu sem ég lít á sem mikið fram­lag til frið­ar­mála.“

Þakklát fyrir tilnefninguna

Greta sjálf seg­ist vera þakk­lát fyrir til­nefn­ing­una og að sér sé sýndur sómi í Twitter-færslu sem hún birti í dag.

Skólaverkfall fyrir loftslagið

Greta er fædd í Stokk­hólmi þann 3. jan­úar 2003 og er dóttir leik­ar­ans Svante Thunberg. Í frétta­skýr­ingu RÚV um þessa athygl­is­verðu stelpu segir að afskipti hennar af lofts­lags­málum hafi byrjað fyrir alvöru í maí í fyrra þegar hún var meðal vinn­ings­hafa í rit­gerða­sam­keppni sem Svenska Dag­bla­det efndi til. Upp úr því hafi ýmsir haft sam­band við hana og næstu vikur hafi verið lagt á ráðin um aðgerðir sem skólakrakkar gætu gripið til til að vekja athygli á lofts­lags­málum.

Hún hafi hins vegar ekki séð fram á að þær aðgerðir myndu gera mikið gagn, þannig að hún ákvað að gera þetta bara ein og sjálf. Það fyrsta sem hún hafi gert var að útbúa stórt spjald á stofu­gólf­inu heima hjá sér með áletr­un­inni Skol­strejk för klima­tet eða Skóla­verk­fall fyrir lofts­lagið.

Þann 20. ágúst hafi hún skrópað í skól­anum og setið þess stað ein með spjaldið fyrir utan þing­húsið í Stokk­hólmi, ákveðin í að vera þar á skóla­tíma hvern ein­asta dag fram yfir sænsku þing­kosn­ing­arnar 9. sept­em­ber. Krafa hennar var ein­föld. Að rík­is­stjórn Sví­þjóðar myndi draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lagið.

Neitaði að ferðast með flugvél

Eftir 9. sept­em­ber hafi Greta farið að mæta í skól­ann fjóra daga í viku og látið nægja að vera í verk­falli á föstu­dögum. Og smátt og smátt hafi fleiri farið að veita þessu upp­á­tæki eft­ir­tekt, ekki bara í Stokk­hólmi og ekki bara í Svíþjóð, heldur út um allan heim.

Athygli vakti þegar Greta ferð­að­ist með lest til Katowice í des­em­ber síð­ast­liðnum – þar sem hún ávarp­aði aðild­ar­ríkja­fund­inn COP-24 – og aftur til Davos í jan­úar til að ávarpa árlegan fund Alþjóða­við­skipta­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár