Greta Thunberg er helsta ógn olíufyrirtækja

Hin sextán ára Greta Thunberg seg­ist taka titl­inum sem helsta ógn olíu­fyr­ir­tækja sem stærsta hrósi sem hún hafi hlotið.

Greta Thunberg og umhverf­isaktí­vistar eru helsta ógn Samtaka olíu-útflutn­ings­fyr­ir­tækja (OPEC) að mati Mohammed Barkindo, aðal­fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna. Greta Thunberg hefur sagt þetta vera stærsta hrós sem hún hafi hlotið, að því er kemur fram í frétt The Guardian.

Hin sextán ára Greta Thunberg hefur farið sem storm­sveipur um heim­inn og meðal ann­ars verið til­nefnd til frið­ar­verð­launa Nóbels.

[adspot]Í frétt the Guardian kemur fram að Greta Thunberg telji orð aðal­fram­kvæmda­stjór­ans vera eins konar heið­urs­merki. Barkindo telur að aktí­vist­arnir séu farnir að ráða stefnu­mótun og ákvörðun fyr­ir­tækja auk fjár­fest­inga í olíu­ðin­að­inum, að því er kemur fram í frétt­inni. Barkindo hefur sakað aktí­vista um að afvega­leiða fólk í lofts­lags­um­ræð­unni.

OPEC hefur um 80 pró­sent allra olíu­birgða í heim­inum, en sam­tökin segj­ast ekki bera ábyrgð á lof­st­lags­breyt­ingum, sam­kvæmt frétta­flutn­ingi The Guardian.

Í frétta­skýr­ingu RÚV um þessa athygl­is­verðu stelpu segir að afskipti hennar af lofts­lags­málum hafi byrjað fyrir alvöru í maí í fyrra þegar hún var meðal vinn­ings­hafa í rit­gerða­sam­keppni sem Svenska Dag­bla­det efndi til. Upp úr því hafi ýmsir haft sam­band við hana og næstu vikur hafi verið lagt á ráðin um aðgerðir sem skólakrakkar gætu gripið til til að vekja athygli á lofts­lags­mál­um.

Hún hafi hins vegar ekki séð fram á að þær aðgerðir myndu gera mikið gagn, þannig að hún ákvað að gera þetta bara ein og sjálf. Það fyrsta sem hún hafi gert var að útbúa stórt spjald á stofu­gólf­inu heima hjá sér með áletr­un­inni Skol­strejk för klima­tet eða Skóla­verk­fall fyrir lofts­lag­ið.

Íslensk börn innblásin af Gretu

Íslensk börn hafa á föstu­dögum í vetur skrópað í skól­ann og mætt á Aust­ur­völl til að krefja íslensk stjórn­völd um aðgerðir í lofts­lags­málum. Þau krefj­ast þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vís­inda­menn, lýsi yfir neyð­ar­á­standi og láti hið minnsta 2,5 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu renna beint til lofts­lags­að­gerða. Þar verði atvinnu­lífið einnig að axla ábyrgð og til þess verði ákveðin við­horfs­breyt­ing að eiga sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár