Skúli Magnússon héraðsdómari og dósent við lagadeild HÍ ritaði á dögunum upplýsindi grein á þessum vettvangi sem nefnist „Enginn orkupakki, enginn sæstrengur?“ Í greininni hrekur Skúli þær hugmyndir að með samþykkt þriðja orkupakkans skapist skylda til að heimila lagningu sæstrengs til Íslands. Undirritaður vill taka undir með Skúla og benda á nokkur atriði til viðbótar sem styrkja röksemdir hans.
Alþjóðlegt regluverk fyrir sæstrengi
Í samræmi við tækniþróun á 19. öld skapaðist þörf til að setja reglur um sæstrengi utan lögsögu ríkja. Alþjóðlegt regluverk fyrir sæstrengi var fyrst komið á með alþjóðlegum samningi árið 1884 sem nefndur var á íslensku „Samningur um vernd á hraðfréttaþráðum er lagðir eru neðansævar“ (e. Convention on the Protection of Submarine Cables). Danir gerðust aðilar að samningnum og þar með varð Ísland bundið af honum.
[adspot]Við gerð hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 1982 var stuðst við samninginn frá 1884. Í hafréttarsamningnum kemur fram að öllum ríkjum sé heimilt að leggja neðansjávarstrengi og -leiðslur á landgrunnið og á úthafinu í samræmi við nánast tilgreind skilyrði. Það ríkir því töluvert frelsi varðandi lagningu neðansjávarleiðslna og strengja. Það eru yfirleitt einkaaðilar sem notfæra sér þessi réttindi aðildarríkja hafréttarsamningsins. Of langt mál er að fara út í þá sálma hér.
Í þessu samhengi verður að hafa í huga að hið lögfræðilega landgrunnsheiti er annað en hið náttúruvísindalega. Þetta veldur talsverðum ruglingi. Landgrunnshugtakið í skilningi þjóðaréttar hefst utan landhelgi ríkja, þ.e. oftast 12 sjómílum frá svokölluðum grunnlínum. Frelsið að því varðar lagningu neðansjávarleiðslna og strengja á landgrunninu tekur ekki til landhelginnar.
Landhelgi - fullveldi
Í 4. mgr. 79. gr. hafréttarsamningsins kemur beinlínis fram að ekkert, í þeim hluta samningsins sem fjallar um landgrunnið, hafi áhrif á rétt strandríkisins til að setja skilyrði vegna strengja eða leiðslna, sem ná inn í land eða landhelgi þess. Fullveldi strandríkja í landhelginni er nær algjört. Er þetta í samræmi við samninginn frá 1884 en sá samningur gilti einvörðungu utan landhelgi aðildarríkja hans.

Öll aðildarríki EES-samningsins (sem og ESB sjálft) eru aðilar að hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Í hafréttarsamningnum er tekið fram að almennt skuli ákvæði annarra samninga, sem aðildarríki hafréttarsamningsins eiga aðild að, að vera í samræmi við hafréttarsamninginn.
Engin sæstrengjaskylda
Það er ekkert í reglum EES-samningsins eða sambærilegum reglum ESB-réttar sem felur í sér skyldu aðildarríkjanna til að heimila lagningu sæstrengs eins og Skúli Magnússon lýsir vel í grein sinni. Slík skylda fær heldur ekki stoð í helsta samningi þjóðaréttar um hafið, hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna, og á sér enga stoð í því alþjóðlega regluverki sem verið hefur við lýði síðan 1884 um sæstrengi. Réttur Íslands til að setja skilyrði vegna sæstrengja sem ná inn á íslenskt landsvæði eða landhelgi Íslands stendur óhaggaður hvað sem þriðja orkupakkanum líður.
Höfundur er prófessor við lagadeild HR.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir