Safna undirskriftum gegn orkupakka þrjú

Skorað er á for­seta Íslands að vísa lögum um orku­pakka þrjú til þjóð­ar­innar á heima­síð­unni Synjun.is. Fólkið sem stendur að baki söfn­un­inni vill ekki koma fram undir nafni og seg­ist ekki vilja gera söfn­un­ina póli­tíska.

Á heima­síð­unni Synjun.is er staðið að und­ir­skrifta­söfnun til þess að skora á for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­es­sonar, að vísa lögum um orku­pakka þrjú til þjóð­ar­innar. Skorað er á alla Íslend­inga að skrifa undir söfn­un­ina. Hún snú­ist um að ann­að­hvort fari Íslend­ingar með for­ræði eigin mála eða að útlend­ingar ráði för­inni.

Fólkið sem stendur að söfn­un­inni vill ekki koma fram undir nafni en seg­ist vera úr öllum flokkum. Þau vilja jafn­framt ekki gefa upp hversu margir hafi skrifað undir söfn­un­ina. Þetta kemur fram í fyr­ir­spurn Kjarnans til for­svars­manna síð­unnar. 

[adspot]Segja víglínuna skýra

Á vef­síð­unni er skorað á Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, að beita mál­skots­rétti sínum til þjóð­ar­innar og „synja stað­fest­ingar á hverjum þeim lögum sam­þykktum af Alþingi Íslend­inga sem fela í sér afsal á yfir­ráðum Íslend­inga yfir nátt­úru­auð­lindum okkar, svo sem orku vatns­afls­virkj­ana og jarð­hita­svæða, drykkj­ar­vatni og heitu vatni, og afsal á stjórn inn­viða tengdum þeim til erlendra aðila, hvort sem það eru ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki, stofn­anir, ríki eða ríkja­sam­bönd, og vísa þannig lögum til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Jafn­framt er skorað á alla íslenska rík­is­borg­ara að skrifa undir áskor­un­ina. „Víglínan er skýr, þeir sem vilja að Íslend­ingar fari sjálfir með for­ræði eigin mála ann­ars vegar og hins vegar þeir sem óska sér að útlend­ingar ráði för­inni í íslenskum mál­efnum,“ segir á heima­síð­unni.

Vilja ekki gera undirskriftasöfnunina „pólitíska“

Í svari við fyr­ir­spurn­inni segir að engar tölur yfir fjölda und­ir­skrifta verði birtar fyrr en nær dragi umræðum á Alþingi um orku­pakk­ann. Fólkið sem stendur að baki und­ir­skrift­ar­söfn­un­inni vill ekki koma undir nafni.

„Við sem stöndum að þessu komum úr öllum flokkum og tókum ákvörðun um að vera ekki að tróna okkur fram sem per­sónum í þessu verk­efni, enda er málið mun stærra en það og fyrir alla muni viljum við ekki að gera und­ir­skrifta­söfn­un­ina póli­tíska.“

Í sam­tali við Kjarnann segir Gundi Jónsson, sem skráður er fyrir léni heima­síð­unnar, að fleiri en hann standi að baki heima­síð­unni þó hann sé skráður fyrir lén­inu. Í bæk­ling sem dreift var með Morg­un­blað­inu í morgun er heima­síðan aug­lýst. Bæk­ling­ur­inn ber nafnið „Kjósum um orku­pakk­ann,“ og fylgdi með Morg­un­blað­inu. Í honum segir að með orku­pakk­anum muni virkj­unum fjölga og fólk er jafn­framt hvatt til að skora á Katrínu Jak­obs­dóttur að setja orku­pakk­ann í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Gundi segir að heima­síðan hafi fengið að fljóta með bæk­lingnum í kjöl­far þess að haft var sam­band við bak­hjarla heima­síð­unnar og þau beðin um að vera með. „Þetta er samt ekki tengt, það er engin teng­ing þarna á milli,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

orkupakki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár