Segir Sigmund Davíð beita blekkingu eða útúrsnúningum í orkupakkamálinu

Bjarni Bene­dikts­son segir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Braga Sveins­son báða hafa verið á þeirri skoðun að inn­leið­ing þriðja orku­pakk­ans stæð­ist stjórn­ar­skrá. Því sé mál­flutn­ingur þeirra i dag ekki trú­verð­ugur.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson leiddu saman ríkisstjórn á árunum 2013-2016. Þeim greinir nú mjög á um hvernig sú ríkisstjórn fór með málefni þriðja orkupakkans.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son leiddu saman rík­is­stjórn á árunum 2013-2016. Þeim greinir nú mjög á um hvernig sú rík­is­stjórn fór með mál­efni þriðja orku­pakk­ans. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir ríka ástæðu fyrir því að segja Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Braga Sveins­son, nú þing­menn Mið­flokks­ins, hafa skipt um skoðun í orku­pakka­mál­inu. Sig­mundur Davíð sé að beita blekk­ingu eða í besta falli útúr­snún­ingum þegar hann segir þá ekki hafa inn­leitt pakk­ann. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Bjarna á Facebook í dag.

Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hélt fund með flokks­mönnum í Valhöll í dag þar sem Bjarni ræddi meðal ann­ars orku­pakka­málið, sem valdið hefur deilum innan flokks­ins þar sem hluti flokks­manna hefur sett fram skýra and­stöðu gegn inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslensk lög. Á fund­inum sagði Bjarni meðal ann­ars að eng­inn trúð­verð­ug­leiki væri á bak­við mál­flutn­ing og and­stöðu Mið­flokks­ins í umræðum um þriðja orku­pakk­ann. Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi hefðu setið í for­sætis- og utan­rík­is­ráðu­neyt­inu áður en málið hefði farið til sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar. Nið­ur­staða þeirra á þeim tíma hefði verið sú að inn­leið­ing orku­pakk­ans væri ekki brot gegn stjórn­ar­skrá.

Sigmundur Davíð svarar

Sig­mundur Davíð svar­aði í stöðu­upp­færslu eftir fund­inn og sagði að Bjarni hefði þar flutt „gömlu lín­una um að orku­pakk­inn hafi þegar verið orð­inn til þegar ég var í rík­is­stjórn. Jú pakk­inn hafði lengi verið til en samt inn­leiddum við hann ekki. Auk þess heyrði málið ekki undir mig, ekki frekar en fjár­mála­ráð­herra á þeim tíma (hver sem það nú var). Málið heyrði hins vegar undir ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins en ekki ætla ég að gagn­rýna þann góða ráð­herra enda inn­leiddi hann ekki orku­pakk­ann.“

[adspot]Sig­mundur Davíð sagði að á fund­inum í Valhöll hefðu fylgt end­ur­teknar full­yrð­ingar um að málið feli ekki í sér fram­sal valds yfir orku­málum eða að það sé að minnsta kosti „afmarkað”. „Á meðan ger­ist það í raun­heimum að ESB fer í mál við Belgíu fyrir að fram­fylgja ekki 3. orku­pakk­anum nógu vel. Hvað gerðu Belgar af sér? Þeir létu sér detta í hug að belgískir kjós­endur og full­trúar þeirra ættu áfram að hafa eitt­hvað um orku­mál að segja þrátt fyrir inn­leið­ing­una. Það er því þegar komið fram raun­dæmi um það sem Arnar Þór Jónsson dóm­ari og fleiri hafa varað við. Ég vona að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn taki upp sjálf­stæð­is­stefn­una í þessu máli og öðrum full­veld­is­málum.“

Töldu málið standast stjórnarskrá

Í stöðu­upp­færslu Bjarna, sem birt var í kjöl­farið, segir að afstaða utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í tíð Gunnars Braga og Sig­mundar Davíðs hafi verið sú að málið stæð­ist stjórn­ar­skrá, að íslenskra hags­muna hafi verið gætt í hví­vetna og að ljúka bæri mál­inu með sam­þykkt í sam­eig­in­legu EES nefnd­inni. Með öðrum orðum að stefnt skyldi að inn­leið­ingu. „ Þingið skoð­aði málið í tveimur þing­nefndum og sam­þykkti að málið héldi áfram. Stjórn­ar­meiri­hluti Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks var sem sagt sam­mála um þetta. Í fram­hald­inu var málið afgreitt í sam­eig­in­legu EES nefnd­inni. Í því fólust fyr­ir­heit um að inn­leiða málið í lög, með eðli­legum fyr­ir­vara um frek­ari aðkomu Alþingis. Það er því rík inni­stæða fyrir því að segja þá tvo hafa alger­lega skipt um skoðun í mál­inu og blekk­ing eða í besta falli útúr­snún­ingur þegar Sig­mundur Davíð segir í dag: „en við inn­leiddum hann ekki.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

orkupakki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár