Tæpum þremur milljónum safnað í Málfrelsissjóð

Söfnun í Mál­frels­is­sjóð hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Hildur Lilli­endahl og Oddný Ara­dóttir munu að öllum lík­indum fá fyrstu úthlutun úr sjóðnum.

Alls hafa 20 þús­und evrur, eða tæpar þrjár millj­ónir króna, safn­ast í Mál­frels­is­sjóð, en söfn­unin hófst 21. júní. Sjóð­ur­inn mun standa straum af málsvarn­ar­kostn­aði og mögu­legum skaða­bótum sem konur kunna að vera dæmdar til að greiða ef þær tjá sig um kyn­bundið ofbeldi.

Fjórar konur hafa efnt til söfn­unar á Karolina­fund fyrir Mál­frels­is­sjóð sem mun geta staðið undir málsvarn­ar­launum og skaða­bótum sem konur gætu þurft að greiða vegna ummæla um kyn­bundið ofbeldi.

[adspot]Konurnar sem standa fyrir söfn­un­inni eru þær Helga Þórey Jóns­dótt­ir, Anna Lotta Michaels­dótt­ir, Elísa­bet Ýr Atla­dóttir og Sóley Tóm­as­dóttir. Sóley segir í stöðu­færslu á Facebooksíðu sinni að 432 stuðn­ings­að­ilar hafi styrkt sjóð­inn.

Dómur Hildar og Oddnýjar fordæmisgefandi

[links]Í við­tali við Kjarnann í júní sagði Anna Lotta dóm­­inn gegn Odd­nýju Ara­dóttur og Hildi Lilli­endahl Vigg­ós­dótt­ur, sem dæmdar voru til að greiða miska­bætur vegna ummæla sinna í kjöl­far hins svo­kall­aða Hlíða­máls, væri for­dæm­is­gef­andi. Anna Lotta sagði að stofn­endur sjóðs­ins væru að berj­ast fyrir því að fá rétt­ar­kerf­inu breytt og að gefið væri að Oddný og Hildur myndu fá úr sjóðnum.

„Það er ekk­ert verið að dæma harðar eða oftar í kyn­ferð­is­brota­mál­um, en þá virð­ist með þessum dómi vera komið til­tölu­lega gott vopn gegn konum sem tjá sig um kyn­ferð­is­of­beldi, að það sé hægt að kæra þær fyrir meið­yrð­i,“ sagði Anna Lotta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár