Dómurinn vopn gegn konum sem tjá sig um kynferðisofbeldi

Söfnun í mál­frels­is­sjóð hófst í morgun. Sjóð­ur­inn mun standa straum af málsvarn­ar­kostn­aði og mögu­legum skaða­bótum sem konur kunna að vera dæmdar til að greiða ef þær tjá sig um kyn­bundið ofbeldi.

Anna Lotta Michaelsdóttir
Anna Lotta Michaelsdóttir Mynd: aðsend

Fjórar konur hafa efnt til söfn­unar á Karolina­fund fyrir Mál­frels­is­sjóð sem mun geta staðið undir málsvarn­ar­launum og skaða­bótum sem konur gætu þurft að greiða vegna ummæla um kyn­bundið ofbeldi.

Nú þegar hefur um þriðj­ungi verið safnað af heild­ar­upp­hæð sjóðs­ins, og eru það þær Helga Þórey Jóns­dóttir, Anna Lotta Michaelsdóttir, Elísabet Ýr Atla­dóttir og Sóley Tóm­as­dóttir sem standa fyrir söfn­un­inni. Kjarninn náði tali af Önnu Lottu Michaelsdóttur og spurði hana út í stofnun sjóðs­ins.

[adspot]Anna Lotta segir að sjóð­ur­inn hafi blundað í henni í ein­hvern tíma frá því að það varð tíð­ara að tala um kyn­ferð­is­of­beldi en dóms- og rétt­ar­kerfið hafi ekki tekið við sér að sama skapi.

Anna Lotta segir að dóm­ur­inn gegn Oddnýju Ara­dóttur og Hildi Lilli­endahl Vigg­ós­dóttur, sem dæmdar voru til að greiða miska­bætur vegna ummæla sinna í kjöl­far hins svo­kall­aða Hlíða­máls, sé for­dæm­is­gef­andi. Anna Lotta segir að stofn­endur sjóðs­ins séu að berj­ast fyrir því að fá rétt­ar­kerf­inu breytt.

„Það er ekk­ert verið að dæma harðar eða oftar í kyn­ferð­is­brota­málum, en þá virð­ist með þessum dómi vera komið til­tölu­lega gott vopn gegn konum sem tjá sig um kyn­ferð­is­of­beldi, að það sé hægt að kæra þær fyrir meið­yrði,“ segir Anna Lotta. Þar með sé verið að skerða tján­ing­ar­frelsi kvenna sem tjá sig um kyn­ferð­is­of­beldi.

Viðbrögðin koma ekki á óvart

Söfnunin hófst í dag og nú þegar er búið að safna 39 pró­sentum af heild­ar­upp­hæð sjóðs­ins á Karolina­fund og eru 20 þús­und Evrur tak­markið. Anna Lotta segir við­brögðin vera gjör­sam­lega frá­bær, þau komi hins vegar ekki á óvart.

„Þetta kemur mér í raun­inni ekki það mikið á óvart. Tján­ing­ar­frelsi hlýtur að vera eitt af mik­il­væg­ustu hlut­unum sem við eigum ef við búum í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Þessi dómur gefur annað til kynna og fólk er mjög reitt.“

Anna Lotta segir að stofn­endur sjóðs­ins eigi eftir að útbúa skýrt ferli um ráð­stöfun sjóðs­ins. Hins vegar sé ljóst að ráð­stafað verði úr sjóðnum til fólks sem tali fyrir rétt­indum jað­ar­hópa.

Hún telur við­búið að fyrsta úthlut­unin fari til Hildar og Oddnýjar. „Þetta er ekki komið á hreint en ég fer ekki í fjörur með það að það sé þessi dómur Hildar og Oddnýjar sem að það færi fyrst í,“ segir Anna Lotta.

Vona að fólk treysti okkur

Anna Lotta segir að fjór­menn­ing­arnir sem koma að stofnun sjóðs­ins muni ákveða hvaða ein­stak­lingar fái úthlutað úr sjóðnum. „Ég vona að fólk treysti okkur að vega það og meta,“ segir hún.

[adspot]Varðandi hvaða fleiri mál munu fá fjár­mögnun segir Anna Lotta það munu koma í ljós síðar. „Ég ætla að leyfa mér að full­yrða það að þeim mun ekki takast að þagga niður í konum þrátt fyrir svona hrika­legan dóm,“ og segir Anna Lotta að henni skilj­ist að áfrýja eigi dómnum.

Áhyggjur af réttarríkinu

Anna Lotta seg­ist miklar áhyggjur hafa af rétt­ar­rík­inu á Íslandi. „Ef þetta er rétt­ar­ríkið sem við búum í þá munu fleiri vera dæmdar,“ sagði hún. Hún seg­ist einnig setja spurn­ingu við dóm­inn.

„Það eina sem við erum að gera er að gagn­rýna nið­ur­stöðu sem er að koma frá vald­höfum. það er aug­ljóst mál að við erum ekki að taka sögur kvenna nógu alvar­lega, miðað við hversu oft er dæmt í málum og hvaða við­brögð konur fá þegar þær tjá sig,“ sagði Anna Lotta.

Anna Lotta segir tak­markið vera að gagn­rýna rétt­ar­kerfið í heild sinni. „Okkar loka­tak­mark er að fólk geti tekið mál­efna­legri gagn­rýni, ekki ein­staka fólk í þessu kerfi, heldur kerfið í heild sinni,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár