Engin lög eða reglugerðir sem skilgreina hvað sé kolefnisjöfnun

CarbFix er vissu­lega kolefn­is­bind­ing, en hvort það telj­ist sem kolefn­is­jöfnun er flókn­ara að mati Umhverf­is­stofn­unar.

Engar reglu­gerðir eða lög eru til um skil­grein­ingu á kolefn­is­jöfnun. Því eru engin lög eða reglu­gerðir um hvað flokk­ist sem kolefn­is­jöfnun, að því er kemur fram í svari Umhverf­is­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í svari Umhverf­is­stofn­unar segir að hug­takið kolefn­is­jöfnun sé almennt notað þegar „maður að borga ein­hverjum öðrum aðila fyrir að binda jafn­mikið kolefni sem losnar við t.d. eina flug­ferð. T.d. flug­ferð losar eitt tonn af CO2 og maður borgar ein­hverjum aðila pen­ing til að gróð­ur­setja tré sem binda eitt tonn af CO2. Það tekur trén X ár að binda þetta eina tonn of CO2 og þau halda því bundnu líf­tíma trés­ins sem gæti verið c.a. 60-90 ár. Þegar tréð deyr byrjar það að rotna og þá losnar aftur það CO2 sem það hafði bundið.“

[adspot]Fyrir stuttu rit­uðu full­trúar frá rík­is­stjórn­inni, stór­iðj­unni og Orku­veitu Reykja­víkur hafa undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um CarbFix. Sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni verður kannað til hlítar hvort aðferðin geti orðið raun­hæfur kost­ur, bæði tækni­lega og fjár­hags­lega, til þess að draga úr los­un CO2 frá stór­iðju Ís­lands. Auk þess ætla fyr­ir­tækin hver um sig leita leiða til að verða kolefn­is­hlut­laus árið 2040. CarbFix aðferðin felst í því að CO2 er fangað úr jarð­hita­gufu, gasið leyst upp í vatni undir þrýst­ingi og vatn­inu dælt niður á 500 til 800 metra dýpi í basaltjarð­lög, þar sem CO2 binst var­an­lega í berggrunn­inum í formi steinda.

Er CarbFix kolefnisjöfnun?

Varðandi hvort CarbFix sé kolefn­is­jöfnun segir í svari Umhverf­is­stofn­unar að CarbFix sé vissu­lega kolefn­is­bind­ing en flókn­ara væri að flokka CarbFix sem kolefn­is­jöfnun. „Við hlið­ina á Hell­is­heið­ar­virkjun er Svissnenskt fyr­ir­tæki með búnað sem sogar CO2 úr and­rúms­loft­inu og dælir því niður með Carbfix tækn­inni. Þarna er kolefn­is­bind­ingu sem sann­ar­lega má líka kalla kolefn­is­jöfnun. Þessi tækni sogar CO2 úr and­rúms­loft­inu og bindur í bergi. Þannig að ef maður fer í flug sem losar 1 tonn af CO2 þá getur maður borgað þessu fyr­ir­tæki pen­ing fyrir að soga jafn­mikið magn af CO2 úr and­rúms­lofti og binda það í bergi. Fyr­ir­tækið er ekki að binda sömu CO2 mólikúlin og flug­vélin los­aði en jafn­mikið magn þannig að það er hægt að líta svo á að flug­ferðin hafi verið kolefn­is­jöfnuð,“ segir í svar­inu

[links]Hins vegar flæk­ist málið ef horft er aðeins á virkj­un­ina sjálfa að mati Umhverf­is­stofn­unar. „Í dag er staðan sú að það er dælt niður og bundið um 35% af því CO2 sem kemur upp úr bor­holum og fer í gegnum vél­bún­að­inn í virkj­un­inni. Þarna sé ég Carbfix sem hreinsi­búnað á virkj­unnin sjálfri. Það er verið að taka gas­straum­inn frá virkj­un­inni, ná 35% af CO2 úr straumnum og dæla því niður þar sem það bind­ist. Þarna er því verið að koma í veg fyrir losun á CO2 en það er ekki verið að taka neitt CO2 úr and­rúms­loft­inu. Þetta er því sann­ar­lega kolefn­is­bind­ing en það er ekki verið að jafna neitt annað.“

„Ef Orku­veitan mundi taka að sér að kolefn­is­jafna flug fyrir ein­hvern annan aðila með þess­ari tækni og fyr­ir­tækið tæki við greiðslu fyrir kolefn­is­jöfnun á einu tonni fyrir flug­ferð þá mundi fyr­ir­tækið á móti þurfa að telja sem sem losun frá virkj­un­inni þetta eina tonn af CO2 frá virkj­un­inni sem í raun var búið að binda í berg. Þannig að fyrir hvert tonn sem væri kolefn­is­jafnað mundi reikn­ast annað tonn sem losun frá virkj­un­inni,“ segir einnig í svar­inu.

„Fegurðin við CarbFix er að því CO2 sem er dælt niður er komið strax úr umferð og það er bundið að eilífu, á mann­legum tíma­skala. Bundið mjög lengi á jarð­fræði­legum tíma­skala, millj­ónir ára,“ segir jafn­framt í svar­inu.

Uppfært:

Samkvæmt ábend­ingu frá Söndru Ósk Snæ­björns­dóttur hjá Orku­veitu Reykja­víkur er CarbFix ekki kolefn­is­jöfnun heldur kolefn­is­bind­ing. Jafn­framt er CarbFix aðferðin við­ur­kennd sem bind­ing­ar­að­ferð af Milli­ríkja­nefnd um lofts­lags­mál (IPCC).

Enn fremur hefur borist ábend­ing að nú sé kolefn­is­jöfnun skil­greind í lög, það er þegar „aðili hlut­ast til um aðgerðir ann­ars aðila til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og/eða binda kolefni úr and­rúms­lofti og notar stað­fest­ingu á slíkum sam­drætti eða bind­ingu til að jafna út sína eigin losun að hluta eða öllu leyti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár