Kanna hvort stóriðjan geti bundið CO2 með CarbFix-aðferðinni

Full­trúar frá rík­is­stjórn­inni, stór­iðj­unni og Orku­veitu Reykja­víkur hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um að kanna hvort CarbFix-aðferðin geti orðið raun­hæfur kostur til þess að draga úr losun koldí­oxíðs, CO2, frá stór­iðju á Íslandi.

Full­trúar frá rík­is­stjórn­inni, stór­iðj­unni og Orku­veitu Reykja­víkur hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um hreinsun og bind­ingu kolefnis. Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni verður kannað til hlítar hvort aðferð sem kölluð er „CarbFix“ geti orðið raun­hæfur kostur, bæði tækni­lega og fjár­hags­lega, til þess að draga úr losun CO2 frá stór­iðju Íslands. Auk þess ætla fyr­ir­tækin hver um sig leita leiða til að verða kolefn­is­hlut­laus árið 2040. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Skref í átt að víðtæku samráði

[links] Þann 28. maí síð­ast­lið­inn skrif­uðu full­trúar atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda undir sam­komu­lag um sam­starfs­vett­vang um lofts­lags­mál og grænar lausn­ir. Mark­mið vett­vangs­ins er að bæta árangur Íslands í loft­lags­málum og miðla fjöl­breyttu fram­lagi lands­ins á því sviði. Þar á meðal er að stjórn­völd og atvinnu­lífið vinni í sam­ein­ingu að mark­mið­i ­stjórn­valda um kolefn­is­hlut­laust Ísland árið 2040.

Í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu segir að vilja­yf­ir­lýs­ingin í dag sé í sam­ræmi við áherslu sam­starfs­vett­vangs­ins og að hún sé enn eitt skref í átt að víð­tæku sam­starfi stjórn­valda og atvinnu­lífs­ins í bar­átt­unni gegn loft­lags­vand­anum. For­sæt­is­ráð­herra, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og for­stjórar Orku­veitu Reykja­víkur, Elkem, Fjarða­áls, Rio Tinto á Íslandi og Norð­ur­áls und­ir­rit­uðu öll undir vilja­yf­ir­lýs­ing­una í dag. Auk þess stendur PCC á Bakka að yfir­lýs­ing­unni en mun und­ir­rita yfir­lýs­ing­una síðar.

Hvati fyrir álverin að nota CarbFix-aðferðina

Samkvæmt vilja­yf­ir­lýs­ing­unni verður kannað til hlítar hvort að CarbFix-aðferðin geti orðið raun­hæfur kostur, bæði tækni­lega og fjár­hags­lega, til þess að draga úr losun koldí­oxíðs frá stór­iðju á Íslandi. Orku­veita Reykja­víkur hefur þróað CarbFix-aðferð­ina í sam­starfi við Háskóla Íslands og erlenda aðila frá árinu 2007. Aðferðin felst í því að CO2 er fangað úr jarð­hita­gufu, gasið leyst upp í vatni undir þrýst­ingi og vatn­inu dælt niður á 500 til 800 metra dýpi í basaltjarð­lög, þar sem CO2 binst var­an­lega í berggrunn­inum í formi steinda. 

Árið 2010 setti Svandís Svav­ars­dóttir, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, reglur um losun á brenni­steins­vetni sem varð til þess að Hell­is­heiða­virkjun þurfti annað hvort að fjár­festa í mjög dýrum hreinsi­bún­aði eða þróa aðrar aðferðir með ein­hverjum hætti. Virkj­unin tók því þátt í CarbFix-verk­efn­inu og hefur Orka Nátt­úr­unnar, dótt­ur­fé­lag OR, rekið loft­hreinsi­stöð og nið­ur­dæl­ingu við Hell­is­heið­ar­virkjun síð­ustu fimm ár.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sagði í við­tali við Kjarnann í apríl síð­ast­liðnum að árið 2017 los­aði Hell­is­heiða­virkjun við 34 pró­sent af lof­lagsút­blæstr­inum hjá sér niður í jarð­lög með CarbFix-aðferð­inni. „Það er ekk­ert sem bendir til þess að það gufi upp – heldur séu efnin bara þar. Kostn­að­ur­inn við þetta hjá þeim er sam­bæri­legur við verðið á los­un­ar­heim­ild­unum sem þessi fyr­ir­tæki, eins og álverin og flug­fé­lögin, þurfa að kaupa. Fyrir álverin, sem eru með útblástur út um stromp, þá er í raun­inni kom­inn ákveð­inn hvati fyrir þau að dæla efn­unum ofan í jörð. Vissu­lega þurfa þau bor­holu en þá fer þetta að verða mögu­leiki fyrir þau vegna þess að kerfið er alltaf að herða að þeim og verðið á los­un­ar­heim­ildum hækkar,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Ekki draga úr CO2 heldur binda í miklu magni í bergi

Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, bendir á í stöðu­færslu á Facebook að í raun hyggst stór­iðjan ekki draga úr losun CO2 líkt og segir í til­kynn­ingu Stjórna­ráðs­ins heldur binda það í miklu magni í bergi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár