Samstarf stjórnvalda og atvinnulífs um aðgerðir í loftslagsmálum

Sam­starfs­vett­vangur stjórn­valda og full­trúa atvinnu­lífs­ins um loft­lags­mál og grænar lausnir var settur á fót í dag. Verkefni vett­vangs­ins er meðal ann­ars að styðja við mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­starf fyr­ir­tækja tengd loft­lags­málum.

Undirritun samkomulagsins.
Und­ir­ritun sam­komu­lags­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Full­trúar atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda skrif­uðu í dag undir sam­komu­lag um sam­starfs­vett­vang um lofts­lags­mál og grænar lausnir. Markmið vett­vangs­ins er að bæta árangur Íslands í loft­lags­málum og miðla fjöl­breyttu fram­lagi lands­ins á því sviði. Þar á meðal er að stjórn­völd og atvinnu­lífið vinni í sam­ein­ingu að mark­miði stjórn­valda um kolefn­is­hlut­laust Ísland árið 2040.

Skynja vilja íslensk atvinnulífs til að gera betur

Í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu kemur fram að helstu verk­efni vett­vangs­ins séu meðal ann­ars kynn­ing á fjöl­breytti fram­lagi Íslands til lofts­lags­mála til þessa sem og mark­mið og stefnu til fram­tíðar. Þar á meðal verði miðlað íslenskum lausnum varð­andi nýt­ingu end­ur­nýj­an­legrar orku. Auk þess verði vett­vangur not­aður til að styðja við mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­starf fyr­ir­tækja tengt lofts­lags­málum. Að lokum eigi vett­vang­ur­inn að tryggja virkt sam­starf stjórn­valda og atvinnu­lífs um aðgerðir í lofts­lags­málum, þar með talið um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra sagði við und­ir­ritun sam­komu­lags­ins í dag að rík­is­stjórnin legði mikla áherslu á að stemma stigu við loft­lags­vánna en ljóst væri að sam­fé­lagið allt þyrfti að taka þátt í þeirri bar­áttu. „Það er von mín að sá áfangi sem við náum í dag með stofnun sam­starfs­vett­vangs stjórn­valda og atvinnu­lífs um lofts­lags­mál og grænar lausnir muni skila miklum árangri. Það er ánægju­legt að skynja mik­inn vilja íslensks atvinnu­lífs til að gera betur, nú þarf að virkja kraft­inn til góðra verka á þessu sviði,“ sagði Katrín.

Unnur Brá og Sigurður formenn vettvangsins

Fjöldi fyr­ir­tækja og sam­taka standa að sam­starfs­vett­vang­inum en á meðal stofn­að­ila eru Orku­veita Reykja­víkur, Lands­virkjun, Rio Tinto á Íslandi, for­sæt­is­ráðu­neytið, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið, Samtök atvinnu­lífs­ins og Bænda­sam­tök Íslands. Í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins kemur jafn­framt fram að fyr­ir­tækjum, sam­tökum og stofn­unum sem láta sig þessi mál varða sé vel­komið að ger­ast aðilar að sam­starfs­vett­vangnum í fram­hald­inu.

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar, er for­maður vett­vangs­ins ásamt Sigurði Hann­essyni, fram­kvæmda­stjóra Samtaka Iðn­að­ar­ins. Sigurður segir að sam­starfs­vett­vang­ur­inn sé mikið fagn­að­ar­efni en hann segir að án sam­starfs atvinnu­lífs og stjórn­valda í lofts­lags­málum sé ekki hægt að ná til­ætl­uðum árangri.

Hann segir jafn­framt að þörf sé á nýrri hugsun og nýrri tækni til að ná þeim metn­að­ar­fullu mark­miðum sem sett séu fram í mála­flokknum. „Fjölmörg fyr­ir­tæki hafa þegar hafið þá veg­ferð að draga úr losun, nýta grænar lausnir í sinni starf­semi eða ráð­ast í mót­væg­is­að­gerðir. Meðal fyr­ir­tækja ríkir mik­ill metn­aður og vilji til að gera enn meira og betur svo mark­mið stjórn­valda um kolefn­is­hlut­laust Ísland árið 2040 verði að veru­leika. Þá geta íslensk fyr­ir­tæki miðlað þekk­ingu og grænum lausnum sem nýst geta öðrum löndum til að draga úr losun enda eru lofts­lags­mál hnatt­rænn vandi,“ segir Sigurður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár