Slösuðum og látnum ferðamönnum fjölgar

Tala slas­aðra og lát­inna ferða­manna hefur hækkað um 85 pró­sent á nokkrum árum. Borið saman við heild­ar­fjölda ferða­manna hefur slös­uðum og látnum ferða­mönnum þó fækkað.

Slösuðum og látnum ferða­mönnum hefur farið fjölg­andi á síð­ast­liðnum árum. Þetta kemur fram í skýrslu sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra um fram­kvæmd sam­göngu­á­ætl­unar 2017 sem var birt í maí 2019.

Alls voru 129 látnir, alvar­lega slas­aðir og lítið slas­aðir ferða­menn árið 2013. Þeim fjölg­aði í 239 tals­ins árið 2017 sem er um 85 pró­senta hækkun á ein­ungis nokkrum árum. Þar af lét­ust tveir ferða­menn árið 2013 en fimm árið 2017.

Ef miðað sé við slas­aða og lát­inna á hverja 100.000 ferða­menn hefur þeim fækkað úr 16 tals­ins árið 2013 í 10,7 tals­ins árið 2017.

Skýrslan vísar einnig til könn­unar unna af Maskínu fyrir Sam­göngu­stofu, Vega­gerð­ina og Rík­is­lög­reglu­stjóra á akst­urs­hegðun og við­horfi til umferðar meðal almenn­ings.

Flestir Íslendingar keyra yfir hámarkshraða

Samkvæmt könn­un­inni telja 85 pró­sent öku­manna á Íslandi hegðun ann­arra veg­far­enda valda sér truflun eða álagi við akstur eru fjöl­margir öku­menn í sím­anum við akstur. Engu að síður lesa um 30 pró­sent öku­manna sjaldan, stundum eða oft skila­boð, t.d. smá­skila­boð, tölvu­póst eða messen­ger á Fésbók við akstur. Rúmlega 20 pró­sent skrifa slík skila­boð. Enn fremur halda ein­ungis 35 til 40 pró­sent Íslend­inga sig innan hámarks­hraða.

Þrátt fyrir að Íslend­ingar séu gjarnir að lesa og skrifa skila­boð við akstur telja um 50 til 60 pró­sent Íslend­inga það vera stór­hættu­legt að gera slíkt.

27 prósent ökumanna á Íslandi keyrir eftir drykk

Um 94 pró­sent öku­manna utan­bæjar sögð­ust aldrei aka án örygg­is­beltis árið 2017 miðað við 75 til 79 pró­sent öku­manna inn­an­bæjar.

27 pró­sent öku­manna keyrði oft, stundum eða sjaldan eftir að hafa fengið sér einn áfengan drikk árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár