„Líkamar kvenna eru dregnir inn í pólitíska umræðu“

For­sæt­is­ráð­herra segir að lík­amar kvenna séu dregnir inn í póli­tíska umræðu með hætti sem ætti að heyra sög­unni til og grafið sé undan fyrri sigrum í bar­áttu kvenna fyrir yfir­ráðum yfir sínum eigin lík­ama.

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu á sviði kynja­fræða í dag. Þar fjall­aði hún um upp­gang öfga­afla í Evrópu og um það póli­tíska umhverfi sem slík öfl hafa sprottið úr. Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

„Bandalag öfga hægri flokka hefur valið sér marga óvini. Ráðist er gegn inn­flytj­endum og minni­hluta­hópum og þeir gerðir að blóra­bögglum fyrir allt sem miður hefur farið í tengslum við hnatt­væð­ingu og nýfrjáls­hyggju und­an­far­inna ára­tuga. Rétt­indum hinsegin fólks er víða ógnað, stundum í þeim til­gangi einum að ná til trú­aðra kjós­enda,“ sagði Katrín.

Hún benti á að annað skot­mark séu femín­ismi og kynja­fræði, og kven­frelsi almennt. Líkamar kvenna séu dregnir inn í póli­tíska umræðu með hætti sem ætti að heyra sög­unni til og grafið sé undan fyrri sigrum í bar­áttu kvenna fyrir yfir­ráðum yfir sínum eigin lík­ama.

For­sæt­is­ráð­herra fjall­aði jafn­framt um mik­il­vægi þess að berj­ast gegn þessum öflum og bjóða almenn­ingi upp á aðra val­kosti. Alþjóð­leg sam­vinna væri eina leiðin til að taka á stærstu áskor­unum sam­tím­ans, þar á meðal lofts­lags­vand­anum og vax­andi ójöfn­uði.

Ásamt henni voru á opnun ráð­stefn­un­ar­innar Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, og rappsveitin Reykja­vík­ur­dætur en um er að ræða alþjóð­lega ráð­stefnu nor­ræna sam­starfs­nets­ins NORA í kynja- og jafn­rétt­is­fræðum sem haldin verður dag­ana 22. til 24. maí við Háskóla Íslands. Ráð­stefnan ber yfir­skrift­ina „Border Regimes, Ter­ritor­ial Discourses and Feminist Politics“ og er haldin á vegum RIKK – Rann­sókna­stofn­unar í jafn­rétt­is­fræðum í sam­starfi við Alþjóð­legan Jafn­rétt­is­skóla og ran­sókna­setrið EDDU við Háskóla Íslands.

Á ráð­stefn­unni verða fluttir tæp­lega 250 fyr­ir­lestrar og fimm lyk­il­fyr­ir­lestrar um álita­mál sem varða meðal ann­ars landa­mæri og jafn­rétt­is­mál á tímum vax­andi þjóð­ern­is­hyggju, afný­lendu­stefnu, femínískt andóf, popúl­isma, hinsegin fræði, frum­byggja­fræði, og fólks­flutn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár