Jón Þór gagnrýnir niðurstöðu forsætisnefndar

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í for­sætis­nefnd, sam­þykkti ekki nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar um að skoða mál Ágústs Ólafs Ólafs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, ekki frekar.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í for­sætis­nefnd, gagn­rýnir þá ákvörðun for­sætis­nefndar að túlka meinta kyn­ferð­is­lega áreitni Ágústs Ólafs Ólafs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, ekki sem brot á siða­reglum og jafn­framt bóka að erindið gefi ekki til­efni til frek­ari athug­unar. Þetta kemur fram í bókun Jón Þórs við afgreiðslu for­sætis­nefndar á máli Ágústs Ólafs.

Skelfileg skilaboð til að senda konum

[links]For­sætis­nefnd Alþingis hefur haft til með­ferðar erindi um meint brot Ágústs Ólafs Ágústs­son­ar, alþing­is­manns, á siða­regl­u­m ­fyrir alþing­is­menn vegna kyn­ferð­is­legs áreiti hans gagn­vart konu. Krist­ján Hall, sem bauð sig meðal ann­ars fram fyrir Mið­flokk­inn í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­um í fyrra, sendi erindið inn. Á mánu­dag­inn birti for­sætis­nefnd nið­ur­stöðu sína en þar kemur fram að fyr­ir­liggj­andi erindi gefi ekki til­efni til frek­ari athug­unar af hennar hálf­u.

Í for­sætis­nefnd sitja Stein­grímur J. Sig­fús­son, Guðjón S. Brjáns­son, Brynjar Níelsson, Þor­steinn Sæmunds­son, Willum Þór Þórsson, Jón Þór Ólafsson, Bryndís Har­alds­dóttir, Steinunn Þóra Árna­dóttir og Haraldur Bene­dikts­son. Áheyrna­full­trúar í nefnd­inni eru Þor­set­inn Víglunds­son og Inga Sæland.

Jón Þór bendir á bókun sinni að þrátt fyrir að for­sætis­nefnd hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að mála­vextir máls­ins séu óum­deildir og að Ágúst Ólafur hafi fallið á þá nið­ur­stöðu trún­að­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar að fella hátt­erni þing­manns undir kyn­ferð­is­lega áreitni. Þá hafi samt sem áður flestir í nefnd­inni ákveðið að túlka það ekki sem brot á siða­reglum Í bókunni segir að betra hefði verið að for­sætis­nefnd hefði lokið málinu með hlið­sjón af 3. mgr. 18. gr. siða­reglna „með því að láta í ljós álit sitt á því [að] athafnir þing­manns brjóti í bága við meg­in­reglur um hátterni og háttern­is­skyldur hans sam­kvæmt siða­reglum“ 

Í bók­un­inni segir að Jón Þór hafi varað við þess­ari afgreiðslu nefnd­ar­innar. Hann hafi ekki sam­þykkt hana og lagt til aðrar leiðir. Hann bendir á að þessi nið­ur­staða nefnd­ar­innar kemur minna en ári eftir að Alþingi ályktaði að breyta siða­reglum fyrir Alþing­is­menn. „Slík máls­með­ferð vekur ekki traust á að for­sætis­nefnd ætli að virða vilja Alþingis varð­andi kyn­ferð­is­lega áreitni sem eru skelfi­leg skila­boð að senda konum og þeim sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni.“

Betra ef Ágúst Ólafur hefði óskað eftir því að málið færi fyrir siðanefnd

Jafn­framt kemur fram í bók­un­inni að Jón Þór þyki það gott að Ágúst Ólafur hafi svarað for­sætis­nefnd­inni þannig að hann geri ekki athuga­semd við þá túlkun for­sætis­nefnd­ar­innar að nið­ur­staða trún­að­ar­nefnd­ar­innar sé alvar­legur áfell­is­dómur um hátt­erni þing­manns­ins. Jón Þór segir hins vegar að betri hefði verið að Ágúst Ólafur hefði óskað eftir því að málið færi fyrir siða­nefnd í stað þess að óska eftir því í upp­hafi að því væri vísað frá.

Auk þess segir í bók­un­inni að betra hefði verið að siða­nefnd hefði gefið skýr svör út frá þeim upp­lýs­ingum sem konan, sem hátt­erni þing­manns­ins beind­ist gegn, hafði þegar greint opin­ber­lega frá. Í stað þess svar­aði siða­nefndin því að nefnd­inni væri ekki fært að leggja mat á þau álita­efni því til þess þyrfti nefndin að afla upplýsinga frá kon­unni. ​Jón Þór bendir hins vegar á að konan hefði líka lýst því yfir að: „Það er ekki hægt að gera þá kröfu til þol​anda að hann ákveði afleið​ing​ar. Það er Ágústar Ólafs, Sam​fylk​ing​ar​innar og eftir atvikum Alþingis að ákveða það.“ Hann bendir jafn­framt á að siða­nefnd Alþingis hafi haft allar þessar upplýsingar.

Að lokum segir í bók­un­inni að mik­il­vægt sé að taka það fram að Jón Þór hafi spurt við afgreiðslu máls­ins hvort að sú afgreiðsla sem sam­þykkt var af flestum í for­sætis­nefnd myndi á ein­hvern hátt tak­marka rétt kon­unnar sem hátt­erni þing­manns­ins beind­ist gegn til að óska sjálf eftir því að málið færi fyrir siða­nefnd Alþingis. „Skrif­stofa Alþingis og for­seti Alþingis svör­uðu mjög skýrt að svo væri ekki. Konan getur því enn óskað eftir að mál­inu sé vísað til siða­nefndar Alþingis,“ segir í bók­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár