Forsætisnefnd skoðar mál Ágústs Ólafs ekki frekar

For­sætis­nefnd Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að erindi nefnd­ar­innar um meint brot Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á siða­reglum fyrir alþing­is­menn gefi ekki til­efni til frek­ari athug­unar af hennar hálfu.

Forsætisnefnd Alþingis
For­sætis­nefnd Alþingis Mynd: Alþingi.

Forsætisnefnd Alþingis hefur haft til meðferðar erindi um meint brot Ágústs Ólafs Ágústssonar, alþingismanns, á siðareglum fyrir alþingismenn vegna kynferðislegs áreiti hans gagnvart konu. Kristján Hall, sem bauð sig meðal annars fram fyrir Miðflokkinn í sveitastjórnarkosningum í fyrra, sendi erindið inn en engin gögn eða nánari upplýsingar um málavexti fylgdu erindinu. Forsætisnefnd hefur nú birti niðurstöðu sína en þar kemur fram að fyrirliggjandi erindi gefi ekki tilefni til frekari athugunar af hennar hálfu.

Siðanefnd sá sér ekki fært að leggja mat á erindið

Í bókun for­sætis­nefndar sem birt var í dag segir að við mat á því hvort hátt­erni Ágústs telj­ist opin­ber fram­ganga sem falli undir gild­is­svið siða­reglna fyrir alþing­is­menn hafi nefndin leitað eftir ráð­gef­andi áliti siða­nefndar. Í svari siða­nefndar er hins vegar vísað til þess að eins og málið liggi fyrir telji siða­nefndin sér ekki fært að leggja mat á þau álita­efni sem fel­ast í erindi for­sætis­nefndar til sín.

Vísaði nefndin þar til þess að erindið væri ekki rök­stutt með vísan til til­greindra ákvæða siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Þá yrði ekki fram hjá því litið að sá aðili sem hið meinta hátt­erni bitn­aði á hefði ekki leitað til for­sætis­nefndar vegna meints brots á siða­reglum. Í bókun for­sætis­nefndar er þó tekið fram að siða­reglur fyrir alþing­is­menn gera ekki þá kröfu að sá sem leggur fram erindi teng­ist máli eða að hátt­erni þing­manns hafi bitnað á honum.

Málavextir óumdeildir

Jafn­framt segir í bókun for­sætis­nefndar að af þessu megi ráða að mat siða­nefnd­ar­innar sé að slík stað­reynd geti eins og horfi við í mál­inu skipt meira máli en hvort mál falli undir siða­reglur fyrir alþing­is­menn, þar sem afla þyrfti upp­lýs­inga frá aðila sem ekki hefði óskað eftir afskiptum for­sætis­nefndar af því. Í bók­un­inni segir að for­sætis­nefnd fall­ist á að slíkar aðstæður geti skipt máli enda sé þá litið til sjón­ar­miða um nær­gætni og sann­girni gagn­vart þeim sem hlut eigi að máli.

Þá segir jafn­framt að af fyr­ir­liggj­andi gögnum megi ráða að mála­vextir séu óum­deildir. „Af fyr­ir­liggj­andi gögnum má ráða að mála­vextir séu óum­deildir og að Ágúst hafi fall­ist á nið­ur­stöðu trún­að­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar. Sú nið­ur­staða sem þar er lýst verður að telja alvar­legan áfell­is­dóm um hátt­erni þing­manns­ins,“ segir í bók­un­inni.

Að lokum segir að það sé nið­ur­staða for­sætis­nefndar að fyr­ir­liggj­andi erindi Krist­jáns gefi ekki til­efni til frekar athug­unar af hálfu nefnd­ar­innar. „Þegar litið er til nið­ur­stöðu siða­nefndar og þess áfell­is­dóms sem opin­ber­lega liggur fyrir í nið­ur­stöðu trún­að­ar­nefnd­ar­innar, er það hins vegar nið­ur­staða for­sætis­nefndar, að und­an­gengnu heild­stæðu mati, að fyr­ir­liggj­andi erindi gefi ekki til­efni til frek­ari athug­unar af hennar hálfu. Er þá einkum höfð hlið­sjón af 1. málsl. 1. mgr. 18. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn,“ segir í bók­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár