Vilja ekki neyðarskýli við Grandagarð

Nokkrir eig­endur fast­eigna út á Granda hafa kært nýtt neyð­ar­skýli fyrir heim­il­is­lausa sem opna á við Granda­garð. Kærendur telja starf­rækslu neyð­ar­skýlis ekki sam­ræm­ast þeirri starf­semi sem fyrir er á svæð­inu.

Nokkrir eig­endur fast­eigna á Grand­anum hafa kært starf­rækslu neyð­ar­skýlis fyrir þá sem eru heim­il­is­lausir á svæð­inu til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. Í kærunni er lýst yfir áhyggjum um að gisti­skýli falli illa að starf­sem­inni á svæð­inu og að þeim hópi manna sem gisti í skýl­inu fylgi ýmiss­konar félags­leg vanda­mál sem muni koma harka­lega niður á starf­semi svæð­is­ins. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Fjöldi heimilislausra nærri tvöfaldaðist frá árinu 2012

[links] Í nóv­em­ber í fyrra sam­þykkti borg­ar­ráð kaup á hús­næði við Granda­garð sem notað verður sem neyð­ar­skýli fyrir unga karl­menn í vímu­efna­neyslu. Stefnt er að því að neyðar­skýlið verði opið frá klukkan 17 til klukk­an 10 næsta dag og hægt verði að taka á móti 15 ein­stak­ling­um í einu.

Vakin hefur verið athygli á því að brýn þörf sé á fleiri úrræðum fyrir utan­garðs­fólk hér á landi en fjöldi heim­il­is­lausra nærri tvö­fald­að­ist á árunum 2012 til 2017. Árið 2017 voru 349 manns ­skráð­ir ut­an­­garðs og/ eða heim­il­is­­laus­ir í borg­inn­i, en það eru 95 pró­­sent fleiri en þegar sam­­bæri­­leg mæl­ing var ­síð­ast gerð árið 2012. Áfeng­is­vandi og mis­notkun ann­arra vímu­efna eru talin helsta orsök þess að ein­stak­lingar lendi utan­garðs en næs­tal­geng­asta orsökin eru geð­ræn vanda­mál.

Úrræðin ekki nægileg

Í skýrslu Vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar um hagi utan­garðs­fólks í Reykja­vík árið 2017 kom fram að af þeim 349 sem skráðir eru utan­garðs voru 153 ein­stak­lingar sagðir búa við ótryggðar aðstæð­ur, 118 vor­u ­sagð­ir gista í gisti­skýli og 76 ein­stak­lingar voru sagðir haf­ast við á göt­unni að ein­hverju ­leyti.

Í Reykja­vík eru 24 „Heim­ili fyrst“ íbúðir í boði en önnur úrræð­i ­fyrir heim­il­is­lausa og utan­garðs­fólk eru áfanga­heim­ilið ­fyrir 37 ein­stak­linga, stuðn­ings­heim­ili fyrir 8 karl­menn og 5 kon­ur. Ásamt því eru til staðar tvö neyð­ar­skýli í Reykja­vík­ur­borg en hið þriðja á að bæt­ast við á þessu ári á Granda­garði. Engin dagdvöl er í dag í boði fyrir utan­garðs­fólk.

Í áliti Umboðs­manns um stöðu utan­garðs­fólk segir að hús­næðisúr­ræði séu ekki nægi­leg. Hann bendir á að félags­leg leigu­hús­næði standi utan­garðs­fólki sem glímir við áfeng­is- og/eða vímu­efna­vanda í raun ekki til boða.

Samræmist ekki starfsemi á svæðinu

Samkvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins segir í kæru eig­end­anna að þeir telji að starf­ræksla neyð­ar­skýlis sam­ræm­ist ekki þeirri starf­semi sem fyrir er á svæð­inu. Í kærunni er greint frá því hvernig svæðið hefur vaxið hratt og sé nýtt undir veit­inga- og versl­un­ar­starf­semi, auk hönn­unar og nýsköp­unar.

Þá er veru­legum áhyggjum lýst yfir því að neyð­ar­skýlið sé sér­stak­lega ætlað þeim sem neiti vímu­efna í æð. „Ljóst er að slíkum hópi manna munu fylgja ýmiss konar félags­leg vanda­mál sem munu koma harka­lega niður á þeirri starf­semi sem nú blómstrar á svæð­inu,“ segir í kærunni. Ekki er tekið nánar fram í kærunni hvernig umrædd félags­leg vanda­mál muni bitna á starf­semi fyr­ir­tækja út á Granda.

Kærend­urnir krefj­ast því ógild­ingar á leyf­is­veit­ingu til inn­rétt­ingar gisti­skýl­is­ins með vísan til þess að starf­semin sam­ræm­ist hvorki skipu­lags­á­ætl­unum né lóð­ar­leigu­samn­ingi. Borgin hins vegar mót­mælir þeim for­sendum enda sé um þjón­ustu­starf­semi að ræða og því í fullu sam­ræmi við skipu­lag svæð­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár