Heimilislausum fjölgaði um 95 prósent í Reykjavík á fimm árum

Brýn þörf er á fleiri úrræðum fyrir utan­garðs­fólk hér á landi en fjöldi heim­il­is­lausra nærri tvö­fald­að­ist á árunum 2012 til 2017. Starfs­hópur á vegum Félags­mála­ráðu­neyt­is­ins á að skila til­lögum um mál­efni utan­garðs­fólks í maí á þessu ári.

Einn alvarlegast vandinn í húsnæðismálum um þessar mundir er fjölgun heimilislausra á Íslandi samkvæmt skýrslu Velferðarráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs frá því október í fyrra. Fjöldi heimilslausra hefur farið vaxandi en árið 2017 voru 349 manns skráðir utan­garðs og/ eða heim­il­is­lausir í borg­inn­i, en það eru 95 pró­sent fleiri en þegar sam­bæri­leg mæl­ing var síðast gerð árið 2012.

Umboðsmaður Alþingis telur að úrræði fyrir húsnæðisvanda utangarðsfólks séu ekki nægileg en umboðsmaður segir að í raun standi félagsleg leiguhúsnæði utangarðsfólki sem glímir við áfengis eða vímuefnavanda ekki til boða. Auk þess hefur verið vakin athygli á því að í dag er engin dagdvöl í boði fyrir utangarðsfólk í Reykjavík. Félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði stýrihóp um málefni utangarðsfólks í desember 2018 en gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum til ráðherra í maí 2019.

Flestir heimilislausir í lengur en tvö ár

Í skýrslu Vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar um hagi utan­garðs­fólks í Reykja­vík árið 2017 kom fram að af þeim 349 sem skráðir eru utan­garðs voru 153 ein­stak­lingar sagðir búa við ótryggðar aðstæður, 118 voru sagðir gista í gisti­skýli og 76 ein­stak­lingar voru sagðir haf­ast við á göt­unni að ein­hverju leyti. Jafn­framt voru 97 ein­stak­lingar að ljúka stofn­ana­vist og 58 ein­stak­lingar voru skráðir í lang­tíma­bú­setu­úr­ræði.

Tæplega helm­ingur þeirra sem skil­grein­ast utan­garðs í Reykja­vík eru á aldr­inum 21 til 40 ára, sam­kvæmt skýrsl­unni. Flestir hafa verið heim­il­is­lausir lengur en í 2 ár, eða um 40 pró­sent. Í könn­unni kemur fram að meiri­hluti utan­garðs­fólks er af íslenskum upp­runa eða um 86 pró­sent árið 2017.

Áfengisvandi og misnotkun annarra vímuefna eru talin helsta orsök þess að einstaklingar lendi utangarðs en næstalgengasta orsökin eru geðræn vandamál, samkvæmt skýrslunni. En um áttatíu prósent þeirra 142 utangarðsmanna sem eru með geðrænan vanda glíma einnig við áfengis- og vímuefnavanda. [adspot]

Vilja að opnuð verði dagdvöl

Í mars árið 2018 lagði Velferðarvaktin fram tillögur um bættar aðstæður utangarðsfólks. Í tillögum vaktarinnar er meðal annars kallað eftir því að komið verði upp dagdvöl fyrir utangarðsfólk sem opin yrði allan daginn, en ekkert slíkt er fyrir hendi í dag. Í dagdvöl væri snyrtiaðstaða og sturtur, matur, fataúthlutun, hvíldaraðstaða, virkni og launuð verkefni, félagsráðgjöf og heilbrigðisþjónusta.

Á sínum tíma var opið dagsetur fyrir utangarðsfólk á Grandanum á vegum Hjálpræðishersins en rekstri var hætt í lok ágúst 2015 þegar þau misstu húsnæðið. Næturskýlin eru lokuð milli tíu til fimm á daginn og því er nær engin hús að venda á daginn. Velferðarvaktin segir að það valdi álagi á einstaklingana, heilbrigðiskerfið og borgarsamfélagið.

Ábyrgðin liggur hjá ríki og sveitarfélögum

Staða utan­garðs­fólks varð umboðs­manni Alþingis til­efni til frum­kvæð­is­at­hug­unar í fyrra. Í áliti umboðs­manns í máli kemur fram að utan­garðs­fólk sem glímir við áfengis- og/eða vímu­efna­vanda kemur í raun ekki til greina við úthlutun almenns félags­legs leigu­hús­næðis. Þau sér­tæku búsetu­úr­ræði sem eru í boði fyrir utan­garðs­fólk eru rekin í anda hinnar svoköll­uðu „Heimili fyrst “ hug­mynda­fræð­inni. Sú hug­mynda­fræði byggir á því aðgangur að hús­næði séu grunn­rétt­indi sem setja þarf í skýran for­gang og að öruggt þak yfir höf­uðið, án skil­yrða um að ein­stak­lingur sé vímu­efna­laus, auð­veldi heim­il­is­lausum að ein­beita sér að því að vinna á öðrum vanda sem glímt er við.

Í dag eru í boði 24 „Heimili fyrst“ íbúðir í Reykja­vík. Önnur úrræði fyrir heim­il­is­lausa og utan­garðs­fólk í Reykja­vík­ur­borg eru eru áfanga­heim­ilið fyrir 37 ein­stak­linga, stuðn­ings­heim­ili fyrir 8 karl­menn og 5 konur. Ásamt því eru til staðar tvö neyð­ar­skýli í Reykja­vík­ur­borg en hið þriðja á að bæt­ast við á þessu ári á Granda­garði. Nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis er hins vegar að úrræðin séu ekki nægj­an­leg, borgin tryggi utan­garðs­fólki ekki lausn við bráðum hús­næð­is­vanda.

„Heim­il­is­leysi er alvar­legt lýð­heilsu­vanda­mál og mik­il­vægt að veit­endur hús­næðis og heil­brigð­is­þjón­ustu vinni saman að úrlausn þessa mála þar sem öruggt hús­næði getur verið veiga­mik­ill þáttur í end­ur­komu fólks inn í sam­fé­lagið eftir veik­indi. Rúmur fjórð­ungur þeirra sem eru utan­garðs hér á landi var að ljúka við stofn­ana­vist.“ segir í skýrslu Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­insog Íbúða­lána­sjóðs segir að

Í til­lögum Vel­ferð­ar­vaktin er lagt til að borgin fjölgi tals­vert „Heimili fyrst“ íbúðum. Ásamt því bendir vaktin á að koma þurfi upp fleiri áfanga­heim­ilum þar sem stutt er við utan­garðs­fólk. Enn fremur þurfi að útvega atvinnu­tæki­færi þ.e. lág­þrösk­ulds­vinnu sem gæti hentað utan­garðs­fólki. Að lokum segir í skýrslu Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar segir að til­lög­urnar séu þess eðlis að bæði ríki og sveit­ar­fé­lög þurfi að koma að þeim og vinna að lausnum sam­eig­in­lega, ekk­ert sveit­ar­fé­lag sé „stikk­frí“ í því sam­bandi.

Starfshópur um málefni utangarðsfólks skilar af sér tillögum í maí á þessu ári

Í des­em­ber 2018 skip­aði Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, stýri­hóp um mál­efni utan­garðs­fólks meðal ann­ars vegna til­lagna Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar. Í skip­un­ar­bréf­inu kemur fram hlut­verk hóps­ins sé að skoða þær ábend­ingar, hug­myndir og til­lögur sem borist hafa frá Umboðs­manni Alþingis, Vel­ferð­ar­vakt­inni og Reykja­vík­ur­borg varð­andi mál­efni utan­garðs­fólks.

Þar á meðal til­lögur um að koma upp dagdvöl, bæta aðgengi að með­ferð við vímu­efna­vanda, fjölga áfanga­heim­ilum, útvega atvinnu­tæki­færi, hjúkr­un­ar­rými fyrir eldra utan­garðs­fólk, hús­næð­is­vanda utan­garðs­fólks og skoða leiðir til að bæta máls­með­ferð­ar­tíma. Gert er ráð fyrir að hóp­ur­inn skili til­lögum til ráð­herra í maí 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár