Hefja endurgreiðslur vegna leiðréttinga á búsetuhlutfalli örorkulífeyrisþega

Trygg­inga­stofnun hefur verið gert að hefja end­ur­út­reikn­ing örorku­bóta vegna leið­rétt­ingar búsetu­hlut­falls ein­stak­linga sem búsettir hafa verið erlendis og mun stofn­unin inna af hendi van­greiddar bætur til þeirra sem eiga rétt á þeim.

Trygg­inga­stofnun mun hefja end­ur­skoðun mála hjá örorku­líf­eyr­is­þegum sem hafa verið með hlut­falls­legan búsetu­út­reikn­ing og búið í öðru landi innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins. Þúsundir ein­stak­lingar sem búið hafa erlendis, en innan EES-svæð­is­ins, hafa orðið fyrir skerð­ingu á rétti sínum til örorku­líf­eyris vegna túlk­unar Trygg­inga­stofn­unar á ákveðnum ákvæðum í lögum um almanna­trygg­ingar.

Umboðs­maður Alþingis komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu síð­asta sumar að slíkt væri ekki í sam­ræmi við lög. Félags- og barna­mála­ráð­herra til­kynnti í gær að nú væri Trygg­inga­stofnun ekk­ert að van­bún­aði að hefj­ast handa við end­ur­greiðslur til þeirra sem málið varðar.

Óskað eftir því að stofnunin leiðrétti vangreiddar greiðslur, ásamt vöxtum

[links]Í á­liti umboðs­manns Alþingis frá því í júní 2018, sem varðar áhrif búsetu­tíma erlendis á rétt til örorku­líf­eyris frá Trygg­inga­stofnun, segir að að lækkun greiðslu­hlut­falls líf­eyris vegna búsetu erlendis hafi ekki verið í sam­ræmi við lög. Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­ið, nú félags­mála­ráðu­neyt­ið, lýsti í kjöl­farið þeirri afstöðu sinni að það væri sam­mála nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis og óskaði eftir því að Trygg­inga­stofnun end­ur­reikn­aði greiðslur til hlut­að­eig­andi ein­stak­linga og leið­rétti þær sem van­greiddar hafi ver­ið, ásamt vöxt­u­m.

Í til­kynn­ingu frá Félags­mála­ráðu­neyt­inu segir að Trygg­inga­stofnun hafi unnið áætlun um hvernig ætti að standa að þeirri fram­kvæmd en beðið hefur verið eftir að fjallað yrði um málið í ráð­herra­nefnd um rík­is­fjár­mál. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, til­kynnti í gær að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi stað­fest að Trygg­inga­stofnun gæti nú hafið end­ur­út­reikn­ing örorku­bóta vegna búsetu­skerð­inga, en beðið hefur verið eftir stað­fest­ingu þess efnis. Á heima­síðu Trygg­inga­stofn­unar má nú finna nán­ari upp­lýs­ingar um end­ur­skoð­un­ina.

„Eins og mörgum er kunn­ugt taldi Trygg­inga­stofnun sig ekki hafa heim­ildir til að hefja vinn­una en nú er búið að skýra þann þátt og er ekk­ert að van­bún­aði að hefj­ast handa við end­ur­greiðslur til þeirra sem málið varðar. Það er mik­il­vægt að málið gangi eins hratt fyrir sig og kostur er en að sama skapi að vandað verði vel til verka,“ segir Ásmundur Einar í til­kynn­ing­unni.

Lögum um almannatryggingar breytt

Í til­kynn­ing­unni frá ráðu­neyt­inu segir jafn­framt að sam­hliða þessum leið­rétt­ingum hafi félags­mála­ráðu­neytið unnið að frum­varpi til laga um breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ingar sem miðar að því að til fram­tíðar verði réttur til örorku­líf­eyris ákvarð­aður í sama hlut­falli og áunnin rétt­indi sam­kvæmt raun­veru­legri búsetu á Íslandi fram til þess tíma að réttur til örorku­líf­eyris er ákvarð­aður. Einnig þegar um er að ræða veit­ingu örorku­líf­eyris á grund­velli tíma­bila til fram­tíðar.

Óskuðu eftir stjórnsýsluendurskoðun á starfsemi Tryggingastofnunar

Níu þing­menn sem sitja í vel­ferð­ar­nefnd ósk­uðu eftir stjórn­sýslu­end­ur­skoðun á starf­semi Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins í mars síð­ast­liðnum. Í grein­ar­gerð beiðn­innar segir að Trygg­inga­stofnun hafi skert líf­eyr­is­greiðslur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega í um ára­tug án laga­heim­ild­ar. Þús­undir manns hafi orðið fyrir skerð­ingu vegna bresta í máls­með­ferð stofn­un­ar­inn­ar.

Því telja þing­menn­irnir það mik­il­vægt að við slíkar aðstæður sé kannað hvort rétt­indi líf­eyr­is­þega séu tryggð að fullu í sam­skiptum þeirra við stofn­un­ina. Óskað var eftir því að rík­is­end­ur­skoð­andi skili Alþingi skýrslu eigi síðar en 1. júní 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár