Óska eftir stjórnsýsluendurskoðun á starfsemi Tryggingastofnunar

Níu þing­menn sem sitja í vel­ferð­ar­nefnd hafa óskað eftir að rík­is­end­ur­skoð­andi geri stjórn­sýslu­end­ur­skoðun á starf­semi Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins. Þau vilja að kannað sé hvort rétt­indi líf­eyr­is­þega séu tryggð að fullu í sam­skiptum við stofn­un­ina

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna sitja í velferðarnefnd.
Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata og Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna sitja í vel­ferð­ar­nefnd. Mynd: Bára Huld Beck

Níu þing­menn sem sitja í vel­ferð­ar­nefnd hafa óskað eftir því að rík­is­end­ur­skoð­andi geri stjórn­sýslu­end­ur­skoðun á starf­semi Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins. Óskað er eftir því að í skýrsl­unni verði dregið fram hvernig stofn­un­inni hefur tekst að upp­fylla lög­bundið hlut­verk sitt. Í grein­ar­gerð beiðn­innar segir að Trygg­inga­stofnun hafi skert líf­eyr­is­greiðslur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega í um ára­tug án laga­heim­ildar. Þúsundir manns hafi orðið fyrir skerð­ingu vegna bresta í máls­með­ferð stofn­un­ar­innar. Því sé það mik­il­vægt að við slíkar aðstæður sé kannað hvort rétt­indi líf­eyr­is­þega séu tryggð að fullu í sam­skiptum þeirra við stofn­un­ina. Óskað er eftir að rík­is­end­ur­skoð­andi skili Alþingi skýrslu eigi síðar en 1. júní 2019.

Tryggingastofnun skert lífeyrisgreiðslur án heimilda

Í stjórn­ar­skránni er kveðið á um að stjórn­völd hafi skyldu til að tryggja í lögum aðstoð við örorku-, end­ur­hæf­ingar- og elli­líf­eyr­is­þega. Í grein­ar­gerð­inni segir að það sé því afar mik­il­vægt að sú stofnun sem hefur það hlut­verk að ann­ast fram­kvæmd líf­eyr­is­trygg­inga almanna­trygg­inga gæti í hví­vetna að rétt­indum ein­stak­ling­anna, ellegar bregð­ist stjórn­völd stjórn­ar­skrár­bund­inni skyldu sinni gagn­vart almenn­ingi.

Í grein­ar­gerð­inni segir að þeir sem þiggi bætur frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins séu oft í tekju­lægstu hópum sam­fé­lagsin og sá líf­eyrir sem þeir hljóti frá stofn­unni sé oft­ast eina eða helsta uppi­staðan í tak­mörk­uðum tekjum þeirra. Þessir hópar reiði sig því að miklu leyti á greiðslur Trygg­inga­stofn­unar til lífs­við­ur­væris og því afar mik­il­vægt að staða þeirra í sam­skiptum við stofn­un­ina sé trygg og rétt­indi þeirra virt í hví­vetna. Því telji þing­menn­irnir það því sér­stak­lega nauð­syn­legt að vönduð stjórn­sýsla sé við­höfð við með­ferð mála þegar íþyngj­andi ákvarð­anir um skerð­ingu líf­eyr­is­rétt­inda eru teknar. Í því sam­bandi sé jafn­framt nauð­syn­legt að þau lög sem um stofn­un­ina gilda tryggi að ákvarð­anir um skerð­ingu rétt­inda verði ekki teknar nema fyrir þeim sé við­hlít­andi laga­heim­ild.

Aftur á móti hafi að und­an­förnu komið í ljós dæmi um bresti í máls­með­ferð Trygg­inga­stofn­unar. Þúsundir manns hafi orðið fyrir skerð­ingum vegna túlk­unar stofn­un­ar­innar á ákveðnum ákvæðum í lögum um almanna­trygg­ingar. Þá hafi ein­stak­lingar sem búið hafa erlendis, en innan EES-svæð­is­ins, orðið fyrir skerð­ingum á rétti sínum til örorku­líf­eyris á grund­velli beit­ingar ákvæð­anna. Umboðs­maður Alþingis hafi hins vegar komst að þeirri nið­ur­stöðu að slíkt væri rangt í áliti í máli nr. 8955/2016. „Þannig hefur Trygg­inga­stofnun rík­is­ins skert líf­eyr­is­greiðslur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega í um ára­tug án laga­heim­ildar. Mik­il­vægt er við slíkar aðstæður að kanna hvort rétt­indi líf­eyr­is­þega séu tryggð að fullu í sam­skiptum þeirra við stofn­un­ina,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Óskað eftir ábendingum um hvaða aðgerðir þurfi að grípa til

Skýrslu­beiðnin er lögð fram af öllum nefnd­ar­mönnum vel­ferð­ar­nefndar Alþingis að frá­töldum Ásmundi Frið­riks­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í skýrslu­beiðn­inni er meðal ann­ars óskað eftir því að að rík­is­end­ur­skoð­andi meti árangur Trygg­inga­stofn­unar við fram­kvæmd líf­eyr­is­trygg­inga almanna­trygg­inga sam­kvæmt lögum. Auk þess að kannað sé hvort að starf­semi Trygg­inga­stofn­unar og þær verk­lags­reglur sem stofn­unin hefur sett sér um með­ferð stjórn­sýslu­mála sé í sam­ræmi við sjón­ar­mið um mál­efna­lega og við­ur­kennda stjórn­sýslu­hætti.

Jafn­framt óska þing­menn­irnar eftir að kannað verði hvort fram­lög rík­is­ins til stofn­un­ar­innar tryggi með full­nægj­andi hætti að hún geti sinnt því hlut­verki sem henni er falið. Að auki sé stuðn­ingur félags­mála­ráðu­neytis við starf­semi Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins kann­aður og við­brögð ráðu­neyt­is­ins við athuga­semdum um mein­bugi á lögum og reglu­gerðum sem tor­veldað gætu störf Trygg­inga­stofn­unar metin. Að lokum er óskað eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun komi með ábend­inguar um til hvaða aðgerða þurfi að grípa þannig að Trygg­inga­stofnun megi sem best sinna lög­bundnu hlut­verki sínu svo að vönduð og mál­efna­leg stjórn­sýsla verði tryggð í starf­semi stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tryggingar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár