Áhrif á fjárfestingar Sjóvár verða neikvæð um 155 milljónir vegna GAMMA sjóðs

Eigið fé fjár­fest­ing­ar­sjóðs GAMMA, sem var 4,4 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót, hefur nær þurrkast út eftir end­ur­mat á eignum. Trygg­inga­fé­lag, sem er meðal ann­ars í eigu líf­eyr­is­sjóða, hefur fært niður virði fjár­fest­inga sinna vegna þessa.

Sjóvá er skráð á markað.
Sjóvá er skráð á markað. Mynd: Nasdaq Iceland

Trygg­inga­fé­lagið Sjóvá, sem er skráð á aðal­markað Kaup­hallar Íslands, hefur greint frá því að end­ur­mat á virði GAMMA: Novus, fjár­fest­inga­sjóðs í stýr­ingu hjá GAMMA sem á Upphaf fast­eigna­fé­lag, leiði til þess að áhrif á fjár­fest­inga­starf­semi Sjóvár á árinu verði nei­kvæð um 155 millj­ónir króna.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar sem birt var rétt í þessu. Ekki kemur fram í til­kynn­ing­unni hver heild­ar­eign Sjóvá er í sjóðnum. Á meðal stærstu eig­enda Sjóvár eru líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og Birta líf­eyr­is­sjóður auk einka­fjár­festa.

Fyrr í dag sendi Kvika banki, sem keypti GAMMA síð­ast­liðið vor, frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem greint var frá því að tveir fag­fjár­festa­sjóð­ir, Novus og Anglia, hefðu verið í mun verra ásig­komu­lagi en gert hafði verið ráð fyrir og að skráð gengi þeirra hefði verið lækkað sem því nem­ur. Í til­kynn­ing­unni var hins vegar ekki greint frá því um hversu mikið sjóð­irnir voru færði nið­ur.

[adspot]Kjarninn greindi hins vegar frá því fyrr í dag að eftir nýlegt eign­ar­mat á eignum GAMMA: Novus hafi eigið fé hans verið fært úr 4,4 millj­örðum króna um síð­ust ára­mót niður í 40 millj­ónir króna. Því hefur eigið fé sjóðs­ins nán­ast þurrkast út.

Í ein­blöð­ungi sem sendur var til hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í sjóðnum í dag, 30. sept­em­ber, sagði að staða Upp­hafs fast­eign­ar­fé­lags sé þannig að það glími „nú við lausa­fjár­vanda en nýir stjórn­endur hafa lagt fram áætlun um fram­tíð félags­ins þar sem m.a. er unnið að við­bót­ar­fjár­mögnun til að mæta lausa­fjár­vand­an­um. Unnið er að útgáfu nýs for­gangs­skulda­bréfs að fjár­hæð 1 ma.kr. til að klára þær fram­kvæmdir sem félagið hefur með höndum til að hámarka virði eigna. Gert er ráð fyrir að nið­ur­stöður við­ræðna um frek­ari fjár­mögnun liggi fyrir um miðjan októ­ber 2019.“

Hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar verða upp­lýstir um fjár­mögnun félags­ins um leið og nið­ur­staða liggur fyr­ir, sam­kvæmt því sem fram kemur í skjal­inu. „Nýtt bráða­birgða­gengi sjóðs­ins byggir á því að áform um við­bót­ar­fjár­magn gangi eft­ir. Sam­hliða end­ur­mati eigna og vinnu við fjár­mögnun hefur félagið styrkt teymið sem hefur umsjón með fram­kvæmdum með ráðn­ingu bygg­ing­ar­verk­fræð­ings og bygg­ing­ar­tækni­fræð­ings sem sam­tals búa yfir 40 ára reynslu úr bygg­ing­ar­geir­an­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tryggingar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár