Tilboð tryggingafélaga til neytenda ekki í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti

Fjár­mála­eft­ir­litið fram­kvæmdi athugun á því hvernig trygg­inga­fé­lögin sund­ur­lið­uðu til­boð til við­skipta­vina sinna og hvort að þær upp­lýs­ingar væru skýrar og skilj­an­legar. Nið­ur­staðan var sú að svo er ekki.

Á meðal þess sem Fjármálaeftirlitið kannaði var tilboðsgerð vegna ökutækjatrygginga, sem eru lögbundnar.
Á meðal þess sem Fjár­mála­eft­ir­litið kann­aði var til­boðs­gerð vegna öku­tækja­trygg­inga, sem eru lög­bundnar. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur birt nið­ur­stöðu athug­unar sinnar á sund­ur­liðun á kostn­aði við til­boðs­gerð hjá vátrygg­inga­fé­lög­unum fjórum, Sjóvá, TM, VÍS og Verði. Athug­unin hófst í júlí 2019 með því að eft­ir­litið kann­aði hvernig félögin fjögur sund­ur­lið­uðu kostnað og afslætti vátrygg­inga við til­boðs­gerð til ein­stak­linga vegna öku­tækja­trygg­inga og eigna­trygg­inga. Nið­ur­stöður lágu fyrir í nóv­em­ber 2019.

Markmið athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var að kanna hvort sund­ur­liðun kostn­aðar við til­boðs­gerð væri í sam­ræmi við reglur um eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti vátrygg­inga­fé­laga. Þær reglur segja til um að upp­lýs­ingar um vöru og þjón­ustu, þar með talin allan kostnað, skuli veittar á skýran og skilj­an­legan hátt, áður en við­skipti fara fram og meðan á við­skipta­sam­bandi stendur.

Eft­ir­litið skoð­aði meðal ann­ars hvernig til­boðs­gerð fór fram hjá trygg­inga­fé­lög­unum, hvaða for­sendur voru lagðar til grund­vallar og hvernig upp­setn­ing til­boða til við­skipta­vina var. Í gagn­sæ­istil­kynn­ingu sem Fjár­mála­eft­ir­litið birti í dag segir að í þeim til­gangi hafi verið óskað eftir afriti af verð­skrám félag­anna, upp­lýs­ingum um hvernig til­boðs­gerð til við­skipta­vina færi fram og afriti af þremur fyrstu til­boðum fyrstu tveggja árs­fjórð­unga árs­ins 2019.

Nið­ur­staða athug­unar eft­ir­lits­ins var sú að öll trygg­inga­fé­lögin fjögur fram­kvæmdu ofan­greint á hátt sem var ekki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði.

Viðskiptavinir gátu síður tekið upplýsta ákvörðun

Í til­felli Sjóvar kom í ljós að í til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja­trygg­inga var ekki að finna sund­ur­liðun kostn­aðar niður á ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis, slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda og bíl­rúðu­trygg­ingu. „Eft­ir­litið taldi að fram­setn­ing kostn­aðar með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­inga­taka...að leið­ar­ljósi.“ Við­skipta­vinir ættu síður kost á að taka upp­lýsta ákvörðun um vátrygg­ingar ef kostn­aður vegna þeirra væri ekki sund­ur­lið­aður. í gagn­sæ­istil­kynn­ing­unni sem birt var í dag segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi þv athuga­semd við að Sjóvá birti ekki sund­ur­liðun á kostn­aði við ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis, slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda og bíl­rúðu­trygg­ingu.“

[adspot]Við athugun á starf­semi TM komst Fjár­mála­eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu að til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja­trygg­inga var ekki að finna sund­ur­liðun kostn­aðar niður á ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda. Eft­ir­litið taldi að fram­setn­ing kostn­aðar með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­ing­ar­taka að leið­ar­ljósi.

Við­skipta­vinir ættu síður kost á að taka upp­lýsta ákvörðun um vátrygg­ingar ef kostn­aður vegna þeirra er ekki sund­ur­lið­aður. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði því athuga­semd við að félagið birti ekki sund­ur­liðun á kostn­aði við ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda.

Vantaði sundurliðun á afsláttum

Hjá VÍS var það sama uppi á ten­ingnum. Athugun eft­ir­lits­ins leiddi í ljós að í til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja­trygg­inga var ekki að finna sund­ur­liðun kostn­aðar niður á ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda. Þar var heldur ekki að finna sund­ur­liðun á afsláttum niður á fyrr­nefndar trygg­ingar, bíl­rúðu­trygg­ingu og kaskó­trygg­ingu félags­ins.

Eft­ir­litið taldi því að fram­setn­ing kostn­aðar og afslátta með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­ing­ar­taka að leið­ar­ljósi.

Við­skipta­vinir eiga síður kost á að taka upp­lýsta ákvörðun um vátrygg­ingar ef kostn­aður vegna þeirra er ekki sund­ur­lið­aður. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði því athuga­semd við að félagið birti ekki sund­ur­liðun á kostn­aði við ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og við að veittur afsláttur væri ekki sund­ur­lið­aður niður á ein­staka trygg­ingar öku­tækja.

Í athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Verði kom í ljós að í til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja- og eigna­trygg­inga væri loka­verð gefið upp sem „Samtals með afslætti“ en þó væru engir sund­ur­lið­aðir afslættir niður á ein­staka trygg­ingar. „Eft­ir­litið taldi að fram­setn­ing heild­ar­verðs með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­inga­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­inga­taka að leið­ar­ljósi.“ Fjár­mála­eft­ir­litið gerði því athuga­semd við að félagið birti loka­verð sem „Samtals með afslætti“ en sýndi samt sem áður enga sund­ur­lið­aða afslætti niður á ein­staka trygg­ingar í til­boðs­gerð öku­tækja- og eigna­trygg­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tryggingar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár