Segir ráðningu seðlabankastjóra hafa verið „eins og möndluleikur í jólaboði“

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði segir að stjórn­mál og per­sónu­leg tengsl hafi ráðið því hver sé ráð­inn seðla­banka­stjóri. Stofn­unin sé ein­fald­lega of mik­il­væg póli­tískt til að hæf­asta fólkið sé leitað upp í störfin.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, telur að að afleið­ing þess að sam­eina Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið sé ekki víst að leiða af sér ávinn­ing, meðal ann­ars vegna þess að freistni­vandi muni skap­ast hjá stjórn­mála­mönnum til þess að láta póli­tík og per­sónu­lega holl­ustu ráða við val á yfir­mönnum frekar en fag­leg sjón­ar­mið.

[links]Í grein sem hann skrif­aði í síð­ustu Vís­bend­ingu segir hann að sá ávinn­ingur sem stefnt sé að, og snýr meðal ann­ars að auk­inni skil­virkni, skýr­leika ábyrgðar og bættri stjórn­sýslu við ákvörð­un­ar­töku myndi kannski eiga verða í „full­komnum heimi en í þeim heimi sem við búum í getur afleið­ingin orðið þver­öfug.“

Við sam­ein­ing­una mun stjórn­endum hins nýja Seðla­banka Íslands fjölga og stoðir í starf­semi hans verða þrjár: pen­inga­stefna, fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lit.

[adspot]For­sæt­is­ráð­herra mun skipa aðalseðla­banka­stjóra til fimm ára í senn, að hámarki þó tvisvar sinn­um. Þá skipar hann einnig þann vara­seðla­banka­stjóra sem leiðir mál­efni er varða pen­inga­stefnu en hinir tveir verða skip­aðir eftir til­nefn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Sá sem hreppir möndluna talin hæfastur

Gylfi telur til nokkur rök fyrir afstöðu sinni. Það sé til að mynda lík­legt að að póli­tísk áhrif á stjórn hins nýja seðla­banka verði meiri ein­fald­lega vegna þess hversu öflug stofn­unin verður og hversu áhrifa hennar mun gæta víða. „Stofnun sem setur reglur á fjár­mála­mark­aði, hefur eft­ir­lit með hegðun fyr­ir­tækja á mark­aði og getur farið inn í rekstur fjár­mála­stofn­ana ef henni finnst rekstur of áhættu­samur og þar að auki ákveðið vexti, bindi­skyldu og haft mikil áhrif á gengi gjald­mið­ils í gegnum kaup og sölu á gjald­eyri gæti þannig ein­fald­lega verið of stór og valda­mikil til þess að stjórn­mála­menn, þ.e.a.s. þeir sem eru í rík­is­stjórn á hverjum tíma, geti látið fag­leg sjón­ar­mið ráða við val á yfir­mönnum. Pólitísk og per­sónu­leg holl­usta mun skipta enn meira máli en áður. Sjálf­stæði starf­sem­innar væri þá ógnað.“

Að mati Gylfa hefur hingað til verið nógu erfitt að ráða seðla­banka­stjóra á fag­legum nótum. „Þess í stað hefur ráðn­ing­ar­ferlið yfir­leitt verið eins og möndlu­leikur í jóla­boði þar sem t.d. 16 sækja um og einn hreppir möndl­una sem hús­móð­irin ein veit hvar er, umsóknir eru metnar á þann hátt að sá sem möndl­una hreppir er tal­inn hæf­astur. Stjórn­mál og per­sónu­leg tengsl ráða, stofn­unin er ein­fald­lega, jafn­vel fyrir sam­ein­ingu, of mik­il­væg póli­tískt til þess að reynt sé að leita uppi hæf­asta fólkið í störfin þótt afleið­ingar mis­taka í stjórn stofn­unar fyrir sam­fé­lagið geti verið og hafi stundum reynzt hörmu­legar, t.d. fyrir hrun.“

Gylfi bendir á að afskipti hins nýja Seðla­banka af hegðun fjár­mála­fyr­ir­tækja á mark­aði geti valdið deilum við stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna og einnig stjórn­mála­öfl. „Reyndar er næsta víst að slíkt mun ger­ast á ein­hverjum tíma­punkti. Í litlu sam­fé­lagi er til­hneig­ing til þess að slík deilu­mál verði per­sónu­leg[...]Mistök við afskipti af fjár­mála­stofn­unum og einnig óvin­sælar en rétt­læt­an­legar aðgerðir sem bitna á hagn­aði fjár­mála­stofn­ana geta þannig veikt þann hluta hins nýja seðla­banka sem sinnir hefð­bund­inni stjórn pen­inga­mála.“

Nýr seðlabankastjóri í sumar

Nýr seðla­banka­stjóri verður skip­aður í sumar, en Már Guð­munds­son lýkur seinna fimm ára skip­un­ar­tíma­bili sínu í ágúst næst­kom­andi, og má sam­kvæmt lögum ekki sækja um aftur.

Alls sóttu 16 manns um stöð­una. Hægt er að sjá lista yfir þá umsækj­endur hér.

Í vik­unni skip­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra þriggja manna hæf­is­nefnd til að meta hæfni þeirra umsækj­enda sem sótt hafa um emb­ætti seðla­banka­stjóra.

[adspot]For­maður nefnd­ar­innar verður Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, sem skipuð er án til­nefn­ingar og er jafn­framt for­maður nefnd­ar­inn­ar. Sig­ríður sat einnig í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði umfangs­mik­illi skýrslu í apríl 2010.

Með henni í nefnd­inni verða Eyjólfur Guð­munds­son, rektor Háskól­ans á Akur­eyri, til­nefndur af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins, og Þór­unn Guð­munds­dótt­ir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og vara­for­maður banka­ráðs, til­nefnd af banka­ráði Seðla­banka Íslands.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

seðlabankastjóri

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár