Valitor segir niðurstöðu Héraðsdóms koma mjög á óvart

Færslu­hirð­irinn Valitor segir að nið­ur­staða Hér­aðs­dóms komi mjög á óvart og að fyr­ir­tækið muni vænt­an­lega áfrýja mál­inu til Lands­réttar.

Valitor segir nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að fall­ast að hluta á skaða­bóta­kröfur Sunshine Press Productions og Datacell koma mjög á óvart. Valitor hefur verið gert að greiða SPP og Datachell 1,2 millj­arða króna í skaða­bætur fyrir að slíta samn­ingi um greiðslu­gátt fyr­ir­vara­laust. Í til­kynn­ingu frá greiðslu­korta­fyri­tæk­inu segir að verið sé að fara yfir dóms­nið­ur­stöð­una og að þeir muni vænt­an­lega áfrýja mál­inu til Lands­réttar.

Segja að fyrirtækið hafi aldrei átt í viðskiptasambandi við SPP

[links]Á fjórða tím­anum í dag var greint frá því að Valitor hefði verið dæmt að greiða Sunshine Press 1140 millj­ónir króna og Datacell 60 millj­ónir króna vegna ólög­mætrar rift­unar Valitors. Fjöl­mið­ill­inn Wikileaks tók við styrkjum fyrir starf­semi sína í gegnum greiðslu­gátt sem Datacell og Sunshine Press Production ráku. Greiðslu­gáttin var opnuð 7. júlí 2011 en degi síðar sleit Valitor samn­ingnum fyr­ir­vara­laust. Með dómi árið 2013 komst Hæsti­réttur að því að rift­unin hafi veri ólög­mæt, og hefur síðan verið deilt um skað­ann og skaða­bætur vegna fyrr­nefndrar aðgerð­ar.

Í til­kynn­ingu frá Valitor segir að nið­ur­staða dóm­stóls­ins sæti furðu, sér­stak­lega varð­andi SPP sem hafi aldrei átt í neinu við­skipta­sam­bandi við Valitor. Jafn­framt segir að SPP hafi aldrei haft nema hverf­andi tekjur en gerði engu að síður margra millj­arða dóm­kröfur á hendur fyr­ir­tæk­inu. „Valitor hefur frá upp­hafi bent á að eng­inn grund­völlur sé fyrir kröfu­gerð SPP en meiri­hluti hér­aðs­dóms kemst að annarri nið­ur­stöðu í dag. Hins vegar skil­aði einn þriggja dóm­ara sér­á­liti og vildi sýkna Valitor alfarið enda hafi ekk­ert tjón verið sannað,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur segir að Valitor sé að fara yfir dóms­nið­ur­stöð­una og muni vænt­an­lega áfrýja mál­inu til Lands­réttar. Valitor er dótt­ur­fé­lag Arion banka og fjár­hags­legur bak­hjarl félags­ins í þessu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár