Hlutabréfamarkaðurinn heldur áfram að rétta úr kútnum

Eftir slakt ár á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði í fyrra hefur allt annað verið uppi á ten­ingnum á þessu ári.

Á fyrstu hund­rað dögum árs­ins hefur vísi­tala kaup­hallar Íslands, OMX Iceland, hækkað um rúm­lega 20 pró­sent. Sé hins vegar horft eitt ár aftur í tím­ann hefur hún staðið í stað.

Mest hefur hækk­unin verð á gengi bréfa í Marel, eða um 40 pró­sent, en fyr­ir­tækið und­ir­býr nú tví­hliða skrán­ingu félags­ins á Euronext hluta­bréfa­mark­að­inn í Amster­dam. Félagið er lang­sam­lega stærst meðal skráðra félaga á aðal­l­ista kaup­hall­ar­innar og nemur mark­aðsvirði félags­ins nú um 350 millj­örðum króna.

Í dag hækk­aði gengi bréfa Arion banka mest, um 4,23 pró­sent, en mark­aðsvirði bank­ans nemur nú 148 millj­örðum króna.

Þessi tvö fyr­ir­tæki eru því með mark­aðsvirði upp á um 500 millj­arða, en heild­ar­virði skráðu félag­anna á aðal­l­ista nemur nú rúm­lega 1.050 millj­örðum króna.

Stærstu eig­endur hluta­bréfa á skráðum mark­aði á Íslandi eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, með um 40 til 50 pró­sent hluta­fjár. Samkvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands frá 4. apríl, þá námu heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóða námu 4.451 millj­örðum króna í lok febr­úar og hækk­uðu um 63 millj­arða eða 1,4 pró­sent frá mán­uð­inum á undan.

Þar af voru eignir sam­trygg­inga­deilda 4.002 millj­arðar og sér­eigna­deilda 448 millj­arðar.

Í lok febr­úar námu inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða 3.226 millj­örðum króna. Þar af voru inn­lán í inn­lendum inn­láns­stofn­unum 159 millj­arðar króna og inn­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf 2.951 millj­arðar. Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða voru 1.225 millj­örðum í lok febr­úar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár