Stundin vann lögbannsmálið í Hæstarétti – Málinu endanlega lokið

Lög­banns­mál­inu sem hófst nokkrum dögum fyrir kosn­ingar haustið 2017, og sner­ist um frétta­skrif um fjár­mál þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, er enda­lega lokið með dómi Hæsta­réttar.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson eru ritstjórar Stundarinnar.
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og Jón Trausti Reyn­is­son eru rit­stjórar Stund­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media unnu fulln­að­ar­sigur í hinu svo­kall­aða lög­banns­máli Glitnis HoldCo, félags utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitnis, í Hæsta­rétti í dag.

Dómurinn í dag snérist í raun ekki um gildi lög­banns­ins sem sett var á umfjöllun miðl­anna tveggja um fjár­mál Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og fjöl­skyldu hans sem unnin var upp úr gögnum frá Glitni, enda hefur lög­bannið ekki verið í gildi síðan að Lands­réttur hafn­aði því að stað­festa það í októ­ber í fyrra, tæpu ári eftir að sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu setti lög­bannið á. Það hélt þó gildi sínu allan þann tíma og Stundin gat ekki haldið áfram umfjöllun sinni uppúr gögn­unum fyrr en að dómur Lands­réttar lá fyrir.

Í lok nóv­em­ber féllst Hæsti­réttur hins vegar á beiðni Glitnis HoldCo um að taka málið fyrir á efsta dóms­stígi lands­ins, en þar var lög­bannið sjálft ekki til umfjöll­unar heldur krafa GlitnisHoldCo um að við­ur­kennt yrði að Stund­inni og Reykja­vik Media væri óheim­ilt að byggja á umræddum gögnum í frétta­flutn­ingi sínum og að þeim bæri að afhenda félag­inu gögnin. Kröfur GlitnisHoldCo byggðu á því að gögnin væru varin banka­leynd.

Þessu hafn­aði Hæsti­réttur með dómi í dag og sýkn­aði þar með Stundina og Reykja­vík Media af kröfum Glitnis HoldCo sem taldi að miðl­unum væri óheim­ilt að birta fréttir eða aðra umfjöllun sem byggð væri á eða unnin upp úr gögnum sem stafi frá Glitni.

Vernd heimildarmanna tryggð

Hæsti­réttur hafn­aði öllum kröfum GlitnisHoldCo í mál­inu. Aðal­krafa félags­ins var byggð á því að hér­aðs­dómur hefði með úrskurðum 5. jan­úar 2018, sem Lands­réttur stað­festi í októ­ber í fyrra, rang­lega synjað að leggja fyrir þrjú til­greind vitni, allt blaða­menn sem unnu að umfjöll­un­inni, að svara spurn­ingum sem lutu að til­vist, efni og vörslum þeirra gagna sem dóm­kröfur áfrýj­anda taka til. Með þeirri nið­ur­stöðu hefði GlitnirHoldCo verið sviptur rétti til að við­hafa lög­mæta sönn­un­ar­færslu og ætti sá ann­marki að leiða til ómerk­ingar hér­aðs­dóms.

Í dómi Hæsta­réttar segir að eins og mál þetta sé vaxið væri fyr­ir­fram úti­lokað að tryggja að svör við spurn­ing­unum geti ekki mögu­lega veitt vís­bend­ingar um það frá hverjum umrædd gögn hefðu stafað, en allan vafa þar að lút­andi yrði að túlka heim­ild­ar­manni í hag. „Verður ekki gerður grein­ar­munur þar að lút­andi með til­liti til ein­stakra spurn­inga áfrýj­anda, sem þess utan eru þannig vaxnar að óljóst er af efni þeirra hvaða þýð­ingu svör við þeim gætu haft fyrir sak­ar­efni máls­ins. Með hlið­sjón af þeirri ríku vernd heim­ild­ar­manna að lögum sem hér hefur verið gerð grein fyrir verður að ætla blaða­manni veru­legt svig­rúm til þess að meta hvort að svör við spurn­ingum tengdum til­vist slíkra gagna kunni hugs­an­lega að veita vís­bend­ingar um hver heim­ild­ar­mað­ur­inn sé.“

Umfjöllunin breyttist ekki eftir að lögbanni var aflétt

Vara­krafa GlitnisHoldCo snéris um að fá við­ur­kenn­ingu á því að Stund­inni og Reykja­vík Media væri óheim­ilt að birta fréttir eða aðra umfjöllun sem byggð væri á gögnum frá Glitni sem félagið teldi að féllu undir banka­leynd.

Í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar, þar sem hann tekur afstöðu til þeirrar kröfu, segir að við mat á því hvort ganga skuli framar tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðl­anna sem stefnt var í mál­inu eða frið­helgi þeirra aðila sem nefnd gögn lúti að yrði að hafa í huga að þegar lög­bannið var lagt á 16. októ­ber 2017 voru ein­ungis 12 dagar í að kosið yrði til Alþingis og því sýnu brýnna en ella að upp­lýst fréttaum­fjöllun yrði ekki skert meira en nauð­syn bar. „Verður jafn­framt að líta til þess að meg­in­þungi fréttaum­fjöll­unar stefndu laut að við­skiptum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðila honum tengdum við Glitni banka hf. í aðdrag­anda falls íslensku við­skipta­bank­anna þriggja í októ­ber 2008. Af gögnum máls­ins verður ekki ráðið að fréttaum­fjöllun stefndu hafi breyst að þessu leyti eftir að lög­bannið féll niður. Hefur hún eftir sem áður einkum beinst að við­skiptaum­svifum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðilum tengdum honum í aðdrag­anda og kjöl­far falls bank­anna haustið 2008 með sömu áherslum og verið hafa frá upp­hafi umfjöll­unar stefndu.“

Uppgjör sem fari fram á grundvelli fréttaumfjöllunar

Í dómi Hæsta­réttar segir að almennt sé við­ur­kennt að rétt­ur­inn til að fjalla opin­ber­lega um mál­efni kjör­inna stjórn­mála­manna sé rýmri en ella, og að þeir sem gegni slíkum opin­berum trún­að­ar­störfum þurfi að þola það að þeir kunni eftir atvikum að njóta lak­ari verndar sam­kvæmt stjórn­ar­skrár heldur en aðrir. Hvað varði fréttaum­fjöllun miðl­ana yrði að hafa í huga stöðu þeirra beggja sem fjöl­miðla og það hlut­verk sem þeir gegna í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi sem slíkir. „Þá verður jafn­framt að líta til þess sem áður greinir varð­andi vænt­an­legar alþing­is­kosn­ingar, sem og þess að um er að ræða umfjöllun um við­skipta­sam­band eins af æðstu emb­ætt­is­mönnum þjóð­ar­innar við einn af þremur stærstu við­skipta­bönkum lands­ins, í aðdrag­anda þeirra atburð­ar­rásar sem lauk með því sem kallað hefur verið hið íslenska banka­hrun haustið 2008. Eðli máls sam­kvæmt hefur öll opin­ber umræða und­an­farin ár lit­ast mjög af þeim atburðum og meðal ann­ars lotið að því að greina orsakir þeirra og eft­ir­mála. Í ljósi þeirra stór­felldu almennu áhrifa sem banka­hrunið hafði á íslenskt sam­fé­lag er og eðli­legt að slíkt upp­gjör fari fram á grund­velli opin­berrar fréttaum­fjöll­unar og þeirrar almennu umræðu sem henni að jafn­aði fylgir. Verður að líta svo á að umfjöllun stefndu um við­skipti þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra sé liður í því upp­gjöri og eigi sem slík erindi við almenn­ing.“

Þá má fjalla um umsvifamikla leikendur í hruninu

Hæsti­réttur gengur lengra en að ein­skorða þá afstöðu við stjórn­mála­mann­inn Bjarna Bene­dikts­son. Í dómnum segir að hvað varði aðra aðila sem greint var frá í umfjöllun miðl­ana þá sé fall­ist á þá ályktun hér­aðs­dóms, sem Lands­réttur stað­festi, að ekki yrði annað séð en að þar hafi í flestum til­vikum verið um að ræða ein­stak­linga og lög­að­ila sem tengd­ust þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra með einum eða öðrum hætti, ýmist við­skipta- eða fjöl­skyldu­tengslum, og við­skiptum við bank­ann á þeim tíma er um ræðir. „Er fall­ist á að mál­efni þeirra hafi verið svo sam­ofin umfjöll­un­ar­efni stefndu að ekki verði skilið þar á milli.“

Í dómnum segir að í þeim til­vikum þar sem slík tengsl við Bjarna Bene­dikts­son hafi ekki verið aug­ljós þá sýn­ist „allt að einu“ um að ræða aðila sem voru umsvifa­miklir eða áber­andi í aðdrag­anda og eft­ir­leik hruns bank­anna haustið 2008 eða tengj­ast þeim aðilum með aug­ljósum hætti. „Að breyttu breyt­anda á það sama við um þá fréttaum­fjöllun sem birst hefur eftir að lög­bannið féll niður, en ítrekað skal að meta verður umfjöllun stefndu heild­stætt að þessu leyti.

Enn­fremur er til þess að líta, og þá ekki síst hvað varðar mögu­leg áhrif við­ur­kenn­inga­krafna áfrýj­anda á banni við miðlun gagn­anna og upp­lýs­inga úr þeim til fram­tíðar litið, að þær eru settar fram án frek­ari afmörk­unar á því um hverja kann að verða fjallað. Ná kröfur áfrýj­anda því jafnt til þeirra sem vegna starfa sinna eða stöðu að öðru leyti þurfa að sæta því að búa við skert­ari frið­helgi einka­lífs heldur en aðrir, svo sem áður hefur verið fall­ist á að meðal ann­ars eigi við um kjörna full­trúa, og svo á hinn bóg­inn þeirra sem rétt eiga á slíkri frið­helgi óskertri. Útilokar þessi fram­setn­ing áfrýj­anda á kröfu­gerð sinni að unnt sé að fall­ast á hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögbann

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár