Mótmæla kynjahalla í verkefnishóp ráðherra um kvikmyndamál

Í níu manna verk­efn­is­hóp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um stefnu í kvik­mynda­málum sitja aðeins tvær konur. WIFT, félag kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, gagn­rýnir kynja­hlut­föll hóps­ins og krefst þess að konur skipi helm­ing hóps­ins.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

WIFT, Félag kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, mót­mæla því að aðeins tvær konur eru í níu manna starfs­hóp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sem vinnur að gerð stefnu í kvik­mynda­málum. Félagið segir að ráðu­neytið hafi haft tæki­færi við skipun þessa starfs­hóp að fram­kvæma jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda en hafi kosið að gera það ekki. Félagið krefst þess að helm­ingur hóps­ins sé skip­aður konum og að í hópnum sé alla­vega ein kona sem starfi við kvik­mynda­gerð. Álykt­unin var birt á vefnum Klapptré.

Fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæða stefnu í kvikmyndamálum

Í ályktun félags­ins segir að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafi skipað verk­efn­is­hóp til að vinna að gerð stefnu í kvik­mynda­málum sem gilda á frá 1. jan­úar 2020 til 31. des­em­ber 2030. Þetta sé í fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæða stefnu og aðgerða­á­ætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvik­mynda í menn­ingu þjóð­ar­innar, menntun í kvik­mynda­gerð á öllum skóla­stigum, miðlun íslensks kvik­mynda­efnis og stuðn­ing við fram­leiðslu kvik­mynda.

Dagur Kári Pét­urs­son, for­maður Samtaka kvik­mynda­leik­stjóra og vara­for­maður Grímar Jónsson fram­leið­andi, var skip­aður for­maður verk­efna­hóps­ins. Ásamt honum voru Friðrik Þór Frið­riks­son kvik­mynda­leik­stjóri, Einar Karl Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri, Þorgeir Ólafsson sér­fræð­ingur á skrif­stofu menn­ing­ar­mála, Baldur Sig­munds­son sér­fræð­ingur í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti og Kristinn Þórð­ar­son, sér­fræð­ingur frá Samtökum iðn­að­ar­ins skip­aðir í hóp­inn. Í hópnum eru sitja einnig Hanna Katrín Frið­riks­son alþing­is­maður og Áslaug María Frið­riks­dóttir for­maður Kvik­mynda­ráðs.

Í ályktun WIFT er það harð­lega gagn­rýnt að í hópnum séu sjö karlar en aðeins tvær konur. Auk þess starfi þrír af karl­mönn­unum við fagið, tveir af þeim séu leik­stjórar og sá þriðji sé fram­leið­andi og vara­for­maður nefnd­ar­innar. Því gagn­rýnir félagið það einnig að hvorug þeirra kvenna sem skip­aðar voru í nefnd­ina starfi við fagið.

Ráðuneytið kaus að framkvæma ekki jafnréttisstefnu stjórnvalda

Enn fremur segir í álykt­un­inni að und­an­farin ár hafi WIFT unnið mikla og end­ur­gjalds­lausa vinnu við gerð stórrar sam­an­tektar á ann­ars vegar töl­fræði sem afhjúpar kynja­hall­ann í fag­inu á Íslandi og hins vegar til­lögur að aðgerðum í átt að jöfn­uði m.a. eftir erlendum fyr­ir­myndum. Sam­an­tektin var unnin í sam­starfi við Kvik­mynda­mið­stöð og Kvik­mynda­ráð. Þá hafi félagið boðið mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fram aðstoð við að móta nýja jafn­rétt­is­stefnu tengda kvik­myndum og sjón­varpi, allt frá skóla­kerf­inu til fags­ins sjálfs og segir í álykt­un­inni að því hafi verið vel tekið.

Sam­an­tektin var kynnt alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og Lilju Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og mennta­mála­ráð­herra. Í álykt­un­inni segir að félag­inu hafi verið tjáð að til­lög­urnar kæmu á góðum tíma þar sem verið væri að skipa nefnd sem ætti að móta fram­tíð­ar­stefnu og því hafi félagið von­að­ist til að fá full­trúa í nefnd­ina. Í álykt­un­inni segir að þarna hafi ráðu­neytið haft tæki­færi til að fram­kvæma jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda en hefði í stað­inn kosið að gera það ekki.

Krefjast þess að helmingur hópsins séu konur

Félagið vísar því spurn­ingum sínum til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og spyr meðal ann­ars hvers vegna jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda var ekki fylgt. „Wift spyr, hvers vegna það var ekki gert? Hver er afstaða nefnd­ar­innar og ráðu­neyt­is­ins til jafn­rétt­is­mála í fag­inu? Hvernig voru full­trúar í nefnd­inni valdir og út frá hvaða for­sendum?“.

Að lokum krefst félagið að minnsta kosti ein kona sem starfi við kvik­mynda­gerð sitji í hópnum og að jafn­framt sé helm­ingur hóps­ins konur.

Í stjórn WIFT sitja Helga Rakel Rafns­dóttir, Dögg Mós­es­dóttir, Tinna Hrafns­dóttir og Helga Ein­ars­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár