„Jafnrétti er raunhæft“

Fram­kvæmda­stjóri UN Women segir Norð­ur­löndin vera mik­il­væga fyr­ir­mynd hvað varðar árangur í jafn­rétt­is­málum og að þau séu í lyk­il­stöðu til að sýna heims­byggð­inni að raun­hæft sé að ná jafn­rétti kvenna og karla að fullu fyrir árið 2030.

Phumzil Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, við afhendingu viljayfirlýsingarinnar.
Phumzil Mlambo-Ngcuka, fram­kvæmda­stjóri UN Women, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, við afhend­ingu vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar. Mynd: Forsætisráðuneytið

Ráð­herrar jafn­rétt­is­mála á Norð­ur­lönd­unum und­ir­rit­uðu í gær vilja­yf­ir­lýs­ingu um að leggja áherslu á árangur í jafn­rétt­is­málum við inn­leið­ingu Heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ráð­herr­arnir afhentu Phumzile Mlambo-Ngcuka fram­kvæmda­stjóra UN Women, yfir­lýs­ing­una í aðdrag­anda 63. fundar kvenna­nefnd­ar­innar sem hefst í höfðu­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í dag.

Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Í frétt­inni segir að Norð­ur­löndin hafi náð góðum árangri á sviði jafn­rétt­is­mála í alþjóð­legum sam­an­burði og vilji beita áhrifum sínum til að árangur náist á alþjóða­vett­vangi. Þau leggi áherslu á náið sam­starf við UN Women vegna end­ur­mats á fram­kvæmda­á­ætlun Sam­ein­uðu þjóð­anna um mál­efni kvenna frá árinu 1995, sem fram fer á næsta ári. Hvað end­ur­mat hennar varðar telji Norð­ur­löndin meðal ann­ars mik­il­vægt að beina sjónum að auk­inni þátt­töku karla í öllu jafn­rétt­is­starfi og að róð­ur­inn gegn kyn­bundnu ofbeldi verði hertur sem krefst bæði kerf­is­lægra breyt­inga og gagn­rýn­innar umræðu um kynja­hlut­verk karla og kvenna.

Með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar vilja ráð­herrar Norð­ur­land­anna hvetja önnur aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna til auk­ins sam­starfs á alþjóða­vett­vangi í jafn­rétt­is­málum og inn­leið­ingu Heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna. Meðal þeirra verk­efna sem nýtt verða sem leið­ar­vísir er sér­stakt átaks­verk­efni for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna, The Nordic Gender Effect at Work, og önd­veg­is­setur Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar um nor­rænar lausnir, sem m.a. hefur beinst að aðgengi að dag­vistun, for­eldra­or­lofi, jafn­launa­málum og efna­hags­legri vald­efl­ingu kvenna.

Phumzile Mlambo-Ngcuka, fram­kvæmda­stjóri UN Women, sagði Norð­ur­löndin vera mik­il­væga fyr­ir­mynd hvað varðar árangur í jafn­rétt­is­málum og að þau væru í lyk­il­stöðu til að sýna heims­byggð­inni að raun­hæft sé að ná jafn­rétti kvenna og karla að fullu fyrir árið 2030.

„Mig langar að Norð­ur­löndin sýni heim­inum að jafn­rétti og vald­efl­ing kvenna er mark­mið sem mögu­legt er að ná,“ sagði Phumzile Mlambo-Ngcuka á fundi sínum með ráð­herr­unum í dag.

Á lista Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins yfir ríki þar sem kynja­jafn­rétti mælist mest hefur Ísland verið í efsta sæti síð­ast­liðin tíu ár og fylgja hin Norð­ur­löndin þar fast á eftir. Úttekt Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins nær til all­flestra landa og leggur mat á jafn­rétti kynj­anna í stjórn­málum, menntun, atvinnu og heil­brigði. Fram­farir í jafn­rétt­is­málum eru hins vegar mjög hægar á heims­vísu og benda nið­ur­stöður rann­sókna til að það getið tekið marga ára­tugi að ná fullu jafn­rétti karla og kvenna um heim allan og að afar fá ríki muni fyrir árið 2030 ná mark­miði um að jafn­rétti kynj­anna verði tryggt og völd allra kvenna og stúlkna efld, segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Í frétt­inni kemur enn fremur fram að ráð­herrar Norð­ur­land­anna leggi mikla áherslu á að #MeToo-hreyf­ingin verði til þess að sýna fram á að enn sé mikið svig­rúm til að gera betur í jafn­rétt­is­málum, bæði á Norð­ur­lönd­unum og um heim allan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár