Telja ólöglega staðið að atkvæðagreiðslu um verkfall

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa skorað á Eflingu - stétt­ar­fé­lag að stöðva nú þegar atkvæða­greiðslu um verk­fall sem koma á til fram­kvæmda 8. mars næst­kom­andi.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samtök atvinnu­lífs­ins skora á Eflingu að stöðva nú þegar atkvæða­greiðslu um verk­fall sem koma á til fram­kvæmda 8. mars næst­kom­andi. SA telja ólög­lega staðið að atkvæða­greiðslu um verk­fallið.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá SA sem sam­tökin sendur frá sér í dag.

Í henni segir jafn­framt að verði Efling ekki við áskorun Samtaka atvinnu­lífs­ins munu SA höfða félags­dóms­mál gegn stétt­ar­fé­lag­inu. Nið­ur­staða dóms­ins muni liggja fyrir áður en verk­falli er ætlað að koma til fram­kvæmda.

„Samkvæmt lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur er heim­ilt að láta vinnu­stöðvun ein­ungis ná til ákveð­ins hóps félags­manna en þá er ákvörðun tekin með atkvæðum þeirra sem vinnu­stöðvun er ætlað að taka til.

Samkvæmt fréttum áætlar Efling að verk­fallið nái til 700 félags­manna en félagið hefur hins vegar boðið yfir 8000 félags­mönnum að taka þátt í atkvæða­greiðslu um verk­fallið. SA telja það fyr­ir­komu­lag ólög­mætt enda mætti með þeim hætti fá verk­fall sam­þykkt jafn­vel þótt allir þeir sem vinnu­stöðvun er ætlað að taka til greiði atkvæði gegn verk­falli,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Vinnu­stöðv­un­in tekur til veit­inga- og hót­el­þjón­ustu

[links]Fundur samn­inga­nefndar Efl­ingar sam­þykkti þann 21. febr­úar síð­ast­lið­inn að láta fara fram almenna leyni­lega raf­ræna alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um boðun vinnu­stöðv­unar meðal þeirra félags­manna Efl­ingar sem vinna sam­kvæmt kjara­samn­ingi Sam­taka atvinnu­lífs­ins og Efl­ingar og Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Kefla­víkur og nágrennis vegna vinnu starfs­fólks í veit­inga- og gisti­húsum og hlið­stæðri starf­semi og sem rann út þann 31. des­em­ber 2018.

„Vinnu­stöðv­unin taki til allra þrifa, hrein­gern­inga og frá­gangs her­bergja og ann­arrar gisti­að­stöðu þ.m.t. á göng­um, sal­ernum og í sam­eig­in­legu rými á öllum hót­elum og gisti­húsum á því félags­svæði Efl­ing­ar-­stétt­ar­fé­lags sem tekur til starfa á veit­inga- og gisti­húsum sem nánar til­greint er lög­sagnar umdæmi Reykja­vík­ur, Kópa­vogs, Sel­tjarn­ar­ness, Mos­fells­bæjar og Kjós­ar­sýslu að Botnsá, Gríms­nes og Grafn­ings­hrepps, Hvera­gerð­is­bæjar og Sveit­ar­fé­lags­ins Ölfus auk Hafn­ar­fjarðar og Garða­bæj­ar.

Vinnu­stöðvun ofan­greindra félags­manna er tíma­bundin og hefst klukkan 10:00 að morgni 8. mars 2019 og lýkur klukkan 23:59 þann 8. mars 2019 ­nema kjara­samn­ingar hafi tek­ist fyrir þann tíma. ­At­kvæða­greiðsl­unni skal lokið eigi síðar en kl. 22:00, fimmtu­dag­inn 28.2 2019,“ segir í sam­þykkt samn­inga­nefndar Efl­ing­ar.

Atkvæðagreiðslan hófst í morgun

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Eflingu sem send var út í dag hófst atkvæða­greiðsla um vinnu­stöðvun félags­manna Eflingar á hót­elum og gisti­húsum þann 8. mars – alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna - klukkan 10:00 í morgun.

„Hægt verður að greiða atkvæði raf­rænt á vef Eflingar en einnig verður fólki gert kleift að greiða atkvæði í kosn­ing­ar­útu Eflingar sem lagði af stað klukkan 10.00 og keyrir næstu daga á milli vinnu­staða og safnar utan­kjör­fund­ar­at­kvæðum,“ segir í til­kynn­ingu Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár