Samningnefnd Eflingar samþykkir að kjósa um vinnustöðvun

Atkvæða­greiðsl­unni skal lokið eigi síðar en kl.22:00, fimmtu­dag­inn 28. febr­úar næst­kom­andi.

Fundur samn­inga­nefndar Eflingar sam­þykkti í kvöld að láta fara fram almenna leyni­lega raf­ræna alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um boðun vinnu­stöðv­unar meðal þeirra félags­manna Eflingar sem vinna skv. kjara­samn­ingi Samtaka atvinnu­lífs­ins og Eflingar og Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Kefla­víkur og nágrennis vegna vinnu starfs­fólks í veit­inga- og gisti­húsum og hlið­stæðri starf­semi og sem rann út þann 31.des­em­ber 2018.

Samn­inga­við­ræðum hefur verið slitið, eins og fram kom í dag.

Vinnu­stöðv­unin tekur til veit­inga- og hót­el­þjón­ustu, að því er sam­þykkt var á fundi samn­inga­nefndar í kvöld.

„Vinnu­stöðv­unin taki til allra þrifa, hrein­gern­inga og frá­gangs her­bergja og ann­arrar gisti­að­stöðu þ.m.t. á göngum, sal­ernum og í sam­eig­in­legu rými á öllum hót­elum og gisti­húsum á því félags­svæði Eflingar-stétt­ar­fé­lags sem tekur til starfa á veit­inga- og gisti­húsum sem nánar til­greint er lög­sagnar umdæmi Reykja­víkur, Kópavogs, Sel­tjarn­ar­ness, Mos­fells­bæjar og Kjós­ar­sýslu að Botnsá, Grímsnes og Grafn­ings­hrepps, Hvera­gerð­is­bæjar og Sveit­ar­fé­lags­ins Ölfus auk Hafn­ar­fjarðar og Garða­bæjar.Vinnu­stöðvun ofan­greindra félags­manna er tíma­bundin og hefst klukkan 10:00 að morgni 8. mars 2019 og lýkur klukkan 23:59 þann 8. mars 2019 nema kjara­samn­ingar hafi tek­ist fyrir þann tíma. Atkvæða­greiðsl­unni skal lokið eigi síðar en kl.22:00, fimmtu­dag­inn 28.2 2019,“ segir í sam­þykkt samn­inga­nefndar Eflingar.

Félags­menn í Eflingu eru um 18 þús­und. Félags­menn í VR, Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur, sem stóðu saman að því að slíta við­ræðum, eru um 35 þús­und, og sam­an­lagt eru því um 53 þús­und félags­menn í þessum þremur stétt­ar­fé­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár