Aðgerðaáætlun sögð miða að verkföllum í ferðaþjónustu

Í fréttum RÚV kom fram að verka­lýðs­hreyf­ingin sé að búa sig undir verk­föll.

Aðgerða­á­ætlun stétt­ar­fé­laga - sem sam­tals ná til um 53 þús­und félags­manna - miðar að því að félögin verði sam­stíga í öllum aðgerðum, sem geti haf­ist með verk­falls­að­gerðum í ferða­þjón­ustu, ekki síst í veit­inga- og hót­el­geir­anum.

Frá þessu var greint í fréttum RÚV í kvöld.

Eins og greint var frá í dag hefur kjara­við­ræðum Eflingar, VR, Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur, við Samtök atvinnu­lífs­ins, verið slitið.

Útspil stjórn­valda, um að lækka skatt­byrði lægstu launa, liðk­aði ekki fyrir kjara­við­ræðum og því fór sem fór.

Efling er með 18 þús­und félags­menn, VR tæp­lega 33 þús­und og hin tvö síð­ar­nefndu tæp­lega tvö þús­und sam­tals.

Á vef Efl­ingar hefur verið birt yfir­lýs­ing vegna þessa þar sem segir að „verka­fólk á Íslandi hefur of lengi þurft að þola lág­launa­stefnu og stjórn­lausan ójöfn­uð. Verka­fólk hefur skapað góð­æri síð­ustu ára með vinnu sinni. Atvinnu­rek­endur hafa þó neitað að ganga að sann­gjörnum kröfum Efl­ingar og sam­flots­fé­laga. Verk­fall er þaul­reynd og lögvarin aðferð stétt­ar­fé­laga til að jafna hlut vinn­andi fólks gagn­vart atvinnu­rek­end­um.“

Í síð­ustu viku lögðu Sam­tök atvinnu­lífs­ins fram til­boð sem hljóð­aði upp á að laun upp að 600 þús­und krónum á mán­uði myndu hækka um 20 þús­und krónur á mán­uði hvert ár samn­ings­ins, sem gert var ráð fyrir að gilti til þriggja ára. Hærri laun áttu að hækka um 2,5 pró­sent.

Efl­ing, VR og verka­lýðs­­fé­lög Akra­­ness og Grinda­vík­­ur sögðu til­boðið leiða til kaup­mátt­arrýrn­unar fyrir stóra hópa launa­fólks. Þau lögði fram gagntil­­boð á föstu­dag þar sem komið var „til móts við kaup­hækk­­­­un­­­­ar­­­­boð Sam­­­­taka atvinn­u­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­­­­völd setji fram og standi við skatt­­­­kerf­is­breyt­ing­­­­ar.“ Sam­tök atvinn­u­lífs­ins höfn­uðu gagntil­­boð­inu.

Á þriðju­dag kynnti rík­is­stjórnin svo ýmsar aðgerðir sem hún er til­búin að ráð­ast í til að liðka fyrir far­sælli nið­ur­stöðu kjara­samn­inga. Á meðal þeirra aðgerða voru skatt­kerf­is­breyt­ingar sem í fólst að bæta við nýju lægra skatt­þrepi og stuðla að skatta­lækkun upp á tæpar sjö þús­und krónur á mán­uði upp að 900 þús­und króna mán­að­ar­tekj­um.

Við­brögð verka­lýðs­for­yst­unnar við útspili rík­is­stjórn­ar­innar voru flest á einn veg: von­brigði og að líkur hefðu þar með auk­ist á að verk­föll myndu skella á í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár