Dagur: „Það leikur enginn vafi á útkomu kosninganna“

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík segir að settar hafi verið fram „alls­konar dylgjur“ um það þegar Reykja­vík­ur­borg sendi út skila­boð til að draga ákveðna hópa á kjör­stað, sem Per­sónu­vernd hefur úrskurðað að hafi ekki verið í sam­ræmi við lög.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, þegar hann kaus í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, þegar hann kaus í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Mynd: Bára Huld Beck

„Það leikur eng­inn vafi á útkomu kosn­ing­anna og ég lít ekki svo á að Per­sónu­vernd sé yfir höfuð að fjalla um það.“ Þetta sagði Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, í við­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í morgun.

[links]Þar ræddi hann það að Reykja­vík­­­ur­­borg og rann­sak­endur við Háskóla Ís­lands­ hefðu not­að per­­són­u­­upp­­lýs­ingar frá Þjóð­­skrá Íslands­­ um unga kjós­­end­­ur, erlenda rík­­is­­borg­­ara og konur 80 ára og eldri til að senda þeim skila­­boð og bréf fyrir sveita­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar í maí 2018, með að það fyrir augum að auka kjör­­sókn þess­­ara hópa.

Í ákvörðun Per­­són­u­verndar sem birt var í 7. febr­úar kom fram að notkun og vinnsla Reykja­vík­­­ur­­borgar og ­rann­sak­anda við Háskóla Íslands hafi ekki í sam­ræmi við lög um per­­són­u­vernd. Að mati Per­­són­u­verndar voru skila­­boð í þessum send­ingum gild­is­hlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þess­­ara kjós­­enda í kosn­­ing­un­­um.

[adspot]Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, hefur haldið því fram að síð­ustu kosn­ingar gætu verið dæmdar ólög­mæta og sagt að átakið hafi verið hluti af kosn­inga­bar­áttu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Friðjón R. Frið­jóns­son almanna­teng­ill, sem situr í mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hefur gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir hann, sagði á Twitter 11. febr­úar síð­ast­lið­inn að mik­il­væg­ast í kosn­ingum væri að koma sínum kjós­endum á kjör­stað. Fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar hafi ungt fólk verið lang lík­eg­ast til að kjósa Sam­fylk­ing­una.

Tillögu minnihlutans hafnað

Minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn lagði á þriðju­dag fram til­lögu í borg­ar­stjóri um að sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu yrði falið að skoða aðgerðir Reykja­vík­ur­borgar í tengslum við kosn­inga­þátt­töku áður­nefndra hópa. Sú til­laga var ekki tekin til afgreiðslu. Þess í stað lagði meiri­hlut­inn fram breyt­ing­ar­til­lögu sem var sam­þykkt og hljóð­aði svona: „Borg­ar­stjórn sam­þykkir að farið verði í sam­starf við sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga þar sem farið verður yfir reynslu af verk­efnum und­an­far­inna kosn­inga til að efla kosn­inga­þátt­töku, m.a. í ljósi ákvörð­unar Per­sónu­verndar. Mark­miðið með sam­starf­inu er að leggja línur til fram­tíðar í sam­ráði við við­kom­andi stofn­anir, ráðu­neyti og frjáls félaga­sam­tök og gera til­lögur um með hvaða hætti er fært að hvetja til þátt­töku í kosn­ingum.“

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­inni, sagði í kjöl­farið að hann myndi sjálfur óska eftir því að ráðu­neytið tæki upp málið og sagði að athæfi borg­ar­innar benti til þess að „brota­vilji hafi verið til staðar, og það nokkuð ein­beittur.“ Eyþór sagði á borg­ar­stjórn­ar­fund­inum að þeir hópar sem borgin hefði nýtt sér aðstöðu sína til að hvetja til að mæta á kjör­stað væru hópar sem meiri­hlut­inn „taldi sér þókn­an­lega“.

Segir andstæðinga dylgja

Dagur sagði í við­tal­inu í morgun að fram hefðu verið settar alls­konar dylgjur um málið. Það hafði verið sam­komu­lag í sam­fé­lag­inu um að fara í hvatn­ing­ar­verk­efni til að auka kosn­inga­þátt­töku. „Samband Íslenskra sveit­ar­fé­laga sendi bréf til fram­kvæmda­stjóra allra sveit­ar­fé­laga í land­inu 17. maí fyrir síð­ustu kosn­ingar og hvatti þá til að hvetja sér­stak­lega ungt fólk og inn­flytj­endur, með bréfum, til þess að auka kosn­inga­þátt­töku og sendi fyr­ir­myndir af bréf­unum. Það voru fyr­ir­myndir sem lögðu áherslu á mik­il­vægi þess að kjósa og að fólk ætti að mæta á kjör­stað.“

Dagur sagði enn fremur að í fimm tíma umræðum um málið í borg­ar­stjórn hafi ekki verið hægt að nefna eitt ein­asta dæmi um að skila­boðin sem send hafi verið út væru að halla á ein­hvern flokk. Það sem hafi verið gild­is­hlaðið skila­boð­unum, send send voru út á valda hópa í aðdrag­anda kosn­inga væri hvatn­ing til að kjósa. Það hafi ekki verið að hvetja fólk til að kjósa eitt­hvað ákveðið.

Hann líti svo á að það þurfi að skoða málið með hlið­sjón af nýjum per­sónu­vernd­ar­lögum, sem tekið hafa gildi síðan að kosn­ing­arnar fóru fram, ekki síður en þeim gömlu sem brotin voru svo það fáist leið­sögn til fram­tíðar um hvernig eigi að halda á svona málum. „Við lítum þannig á að nið­ur­staða per­sónu­verndar liggi fyrir. Við þurfum að greina hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár