Reykjavíkurborg braut persónuverndarlög með kosningaskilaboðum

Ungum kjós­endum, konum 80 ára og eldri voru send bréf og smá­skila­boð fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ingar í fyrra til að auka kjör­sókn þess­ara hópa. Per­sónu­vernd segir hins vegar að skila­boðin hafi verið gild­is­hlaðin og í einu til­viki röng.

Reykja­vík­ur­borg og rann­sak­endur við Háskóla Íslands not­uðu per­sónu­upp­lýs­ingar frá Þjóðskrá Íslands um unga kjós­endur, erlenda rík­is­borg­ara og konur 80 ára og eldri til að senda þeim skila­boð og bréf fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í maí 2018, með að það fyrir augum að auka kjör­sókn þess­ara hópa. Í ákvörðun Per­sónu­verndar sem birt var í gær kemur fram að notkun og vinnsla Reykja­vík­ur­borgar og rann­sak­anda við Háskóla Ísalnds hafi ekki í sam­ræmi við lög um per­sónu­vernd. Að mati Per­sónu­verndar voru skila­boð í þessum send­ingum gild­is­hlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þess­ara kjós­enda í kosn­ing­unum.

Gildishlaðin skilaboð

Reykja­vík­ur­borg óskaði eftir heim­ild Per­sónu­verndar til að senda ungum kjós­endum smá­skila­boð og bréf fyrir kosn­ing­arnar í því skyni að auka kjör­sókn. Fram kom í erind­inu þetta væri liður í aðgerðum til að auka kosn­inga­þátt­töku til­tek­inna hópa sem hefðu í und­an­förnum kosn­ingum átt undir högg að sækja með til­liti til kjör­sóknar. Skila­boðin áttu einnig að vera hluti af rann­sókn Háskóla Íslands á því hvaða þættir hefðu áhrif á kjör­sókn. Texti smá­skila­boð­anna yrði ákveð­inn af Reykja­vík­ur­borg og rann­sak­endum sam­eig­in­lega og þess gætt að ekki mætti túlka inni­haldið sem hvatn­ingu til að kjósa á til­tek­inn hátt. Borgin fékk svar frá Per­sónu­vernd um miðjan maí, í svar­inu kom fram fram að það væri undir þeim komið sem sendi skila­boðin að sjá til þess að það væri gert í sam­ræmi við per­sónu­vernd­ar­lög.

Bréf voru síðan send til ungra kjós­enda, til kvenna 80 ára og eldri og erlendra rík­is­borg­urum. Helm­ingur ungra kjós­enda fékk jafn­framt smá­skila­boð, meðal ann­ars með upp­lýs­ingum um kjör­staði. Í ákvörðun Per­sónu­vernd segir að sms-skila­boðin og bréfin sem send voru ungu fólki hafi verið gild­is­hlaðin. Gagnrýnt er að í bréf­unum var rætt um skyldu til að kjósa en hvergi sé minnst á kosn­inga­skyldu í íslenskum lögum. Þá segir Per­sónu­vernd að bæði smá­skila­boðin og bréfin hafi verið til þess fallin að hafa áhrif á hegðun unga fólks­ins í kosn­ing­unum. Öll bréfin og skila­boðin hafi ein­göngu verið merkt Reykja­vík­ur­borg og því ekki gefið til kynna að ein­hverjir aðrir, eins og Háskóli Íslands, stæðu á bak við send­ing­una. Uppruni þeirra og til­gangur hafi því ekki verið skýr.

Per­sónu­vernd segir jafn­framt að bréfin sem voru send til kvenna 80 ára og eldri og erlendra rík­is­borg­ara hafi ekki ein­ungis verið til upp­lýs­inga og fræðslu heldur hafi þau einnig verið hvatn­ing til að kjósa. Per­sónu­vernd telur engin rök standa til þess að upp­lýsa þurfi konur á þessum aldri um kosn­inga­rétt þeirra. Þá geti það ekki sam­rýmst kröfum að opin­berir aðilar sendi til­teknum hópum kjós­enda hvatn­ingu um að nýta kosn­inga­rétt sinn í aðdrag­anda kosn­inga.

Ámælisvert að Reykjavíkurborg hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar

Nið­ur­staða Per­sónu­verndar var að við fram­an­greinda vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga hefðu Reykja­vík­ur­borg og rann­sak­endur við Háskóla Íslands ekki gætt að ákvæðum þágild­andi per­sónu­vernd­ar­laga, meðal ann­ars um að við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga beri að gæta að gagn­sæi og fyr­ir­sjá­an­leika, og hafi því brostið heim­ild til vinnsl­unnar

Per­sónu­vernd komst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að Þjóðskrá Íslands hefði ekki gætt að meg­in­reglu þágild­andi per­sónu­vernd­ar­laga, um að þess skuli gætt við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga að þær séu nægi­legar, við­eig­andi og ekki umfram það sem nauð­syn­legt er miðað við til­gang vinnsl­unnar, þegar stofn­unin afhenti Reykja­vík­ur­borg upp­lýs­ingar um kyn og rík­is­fang erlendra rík­is­borg­ara.

Auk þess kom fram í ákvörðun Per­sónu­verndar að Reykja­vík­ur­borg hafi verið veittar átölur fyrir að hafa veitt Per­sónu­vernd ófull­nægj­andi upp­lýs­ingar um alla þætti máls­ins eftir að hafa óskað eftir því sér­stak­lega. Það sé alvar­legt að ábyrgð­ar­að­ili, sem vinni með per­sónu­upp­lýs­ingar og sé auk þess stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins, skuli láta undir höfuð leggj­ast að svara fyr­ir­spurnum eft­ir­lits­valds. Í nið­ur­stöð­unum segir að slíkt sé ámæl­is­vert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár