Skýr stéttaskipting milli þeirra sem eiga og þeirra sem leigja

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir að jöfn­un­ar­tæki stjórn­valda séu ofboðs­lega mik­il­væg til þess að leysa úr þeirri stétta­skipt­ingu sem er milli þeirra sem eiga fast­eign og hinna sem eiga ekki slíka.

„Það er bara skýr stétta­skipt­ing þarna, milli þeirra sem eiga og þeirra sem leigja. Þetta er líka kyn­slóð­ar­mál, hvernig komum við okkur unga fólk­inu inn á örugg­ari hús­næð­is­markað.“

Þetta sagði Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Drífa segir að það það sem hafi verið hefur ein­kenni okkar á Íslandi sé að við höfum ein­beitt okkur mjög mikið að sér­eign­ar­stefnu í hús­næð­is­málum en nú séum við síðan að ham­ast við að byggja upp ein­hvers­konar sann­gjarnan leigu­markað til þess að fólk geti verið í leigu­hús­næði jafn­vel á meðan að það safnar sér upp í íbúð og kom­ist að heiman. „Þetta er hags­muna­mál fyrir okkur öll að börnin okkar fari að heiman ein­hvern tím­ann.“

[adspot]Aðspurð hvort að þeirri til­raun, að láta mark­að­inn leysa hús­næð­is­vand­ann, sé lokið segir Drífa svo vera. „Við erum á þeim tíma­punkti núna að það er að renna upp fyrir okkur að mark­að­ur­inn mun ekki leysa hús­næð­is­vand­ann. Það að vera með hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög, að ætla að græða á hús­næð­is­mark­að­inum, er módel sem gengur ekki upp. Þetta hefur ekki gengið upp í langan tíma vegna þess að það gengur nátt­úru­lega ekk­ert upp að fólk sé að greiða upp í 80 pró­sent af tekj­unum sínum í leigu. Fólk hefur gert það engu að síður. Ég veit ekki alveg hvernig fólk fer að því. En þetta er auð­vitað eitt­hvað sem gengur ekki til lengdar.“

Hún segir aðkomu stjórn­valda að yfir­stand­andi kjara­við­ræðum vera afskap­lega brýna, en krafa hefur verið uppi um að þau komi með breyt­ingar á skatt­kerfi og milli­færslum að borð­inu auk sér­tækra lausna fyrir hús­næð­is­mark­að­inn.

[links]Drífa segir að að jöfn­un­ar­tæki stjórn­valda til þess að létta fólkið lífið sé ein­fald­lega svo ofboðs­lega mik­il­vægt. „Við erum kannski með mann­eskju sem er með 700 þús­und á mán­uði. Ef þú átt skuld­lausa eign þá ert þú bara sæmi­lega settur þannig, ég tala nú ekki um ef að þú ert í sam­búð og búin að koma börn­unum á legg. Svo ertu með mann­eskju með 700 þús­und sem er á leigu­mark­aði ,ein­stæð, þarf að greiða 250 þús­und í leigu. Hún er kannski ekk­ert sér­stak­lega vel sett. Þau börn hafa kannski ekki tök á því að fara í tón­list­ar­nám og íþróttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár