Er ríkið að eyðileggja lífeyrissjóðina?

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, segir að ein mest aðkallandi spurn­ingin, þegar kemur að kjara­málum, sé hvort að líf­eyr­is­kerfið hér á landi sé í raun og veru að virka.

Þegar líf­eyr­is­sjóð­unum var komið á fót á sínum tíma var hugs­unin sú að söfnun í sjóð­ina myndi hækka eft­ir­launa­greiðslur og bæta lífs­gæði fólks á efri árum. Fólk átti að geta hætt að vinna áhyggju­laust þegar að starfs­lokum kæmi og notið sparn­aðar síns. Greiðslur úr líf­eyr­is­sjóðum áttu að bæt­ast við sann­gjarnar greiðslur almanna­trygg­inga.

Ein mest aðkallandi spurn­ing sam­tím­ans þegar kemur að kjara­málum er sú hvort þetta kerfi sé í raun og veru að virka. Eru laun­þeg­arað njóta góðs af líf­eyr­is­sparn­aði sínum? Hefur rík­is­valdið kippt stoð­unum undan þessu kerfi?

Sátt um sparnað

Á meðal aðila vinnu­mark­að­ar­ins hefur ríkt góð sátt um það mark­mið, að byggja upp öfl­ugan sparnað í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina. Á und­an­förnum árum hafa aðild­ar­fé­lög ASÍ unnið að því að jafna líf­eyr­is­rétt­indi á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði. Stórt skref var stigið í tengslum við hið svo­kall­aða ramma­sam­komu­lag þar sem samið var um að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda yrði hækkað upp í 11,5% eða um 3,5 pró­sentu­stig. Þar með er búið að móta grund­völl fyrir því að rétt­inda­á­vinnsla iðgjalda í líf­eyr­is­sjóði geti skilað sjóð­fé­lögum 72% af með­al­ævi­tekjum við­kom­andi. Fyrir breyt­ing­una voru iðgjöld að veita að lág­marki 56% af með­al­ævi­tekjum þess sem greitt hafði í líf­eyr­is­sjóð af öllum launum. Það sér hver maður að þegar þessi hækkun er farin að skila sér í vasa þeirra sem hafa greitt hækkað iðgjald heila starfsævi þá getur munað veru­lega um þennan sparnað á efri árum.

Grimmilegar skerðingar

Allt er þetta til sóma. En víkjum þá að afskiptum rík­is­valds­ins. Þetta góða kerfi hefur aldrei fengið að standa í friði. Vegna ágangs rík­is­valds­ins fær kerfið ekki að skila árangri, óhindrað. Þetta er sorg­legt. Rík­is­valdið virð­ist ekki getað unað við þá hugsun, að fólk fái að njóta sparn­aðar á efri árum. Einkar grimmi­legum skerð­ingum er beitt af hálfu rík­is­ins. Laun­þegar sem spara í líf­eyr­is­kerf­inu fá minna úr almanna­trygg­inga­kerf­inu, nán­ast sem sparn­aði sínum nemur. Þannig kemur rík­is­valdið aftan að laun­þegum. Spurn­ingin er orðin stór og aðkallandi: Af hverju á fólk að spara kaupið sitt núna, ef sparn­að­ur­inn leiðir ein­ungis til skerð­inga á öðrum tekjum síðar? Viljum við virki­lega að það sé betra að sleppa því að spara?

Afskipti ríkisins af kjaramálum

Í tengslum við gerð kjara­samn­inga verður auð­vitað að ræða þessi mál. Full­trúum rík­is­valds­ins er tíð­rætt um að aðkoma rík­is­ins eigi að vera sem minnst, og að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins eigi að sjá um að semja sín á milli. Fjár­mála­ráð­herra ítrek­aði þetta sjón­ar­mið í ræðu­stól Alþingis fyrir skömmu. Það er gott og gilt. Það sem flækir málið er hins vegar sú stað­reynd, að rík­is­valdið virð­ist ekki tvínóna við að stíga inn í kjara­málin þegar kemur að því að kippa grund­vell­inum undan kerfum sem vinnu­mark­að­ur­inn hefur með samn­ingum komið á fót. Á meðan svo er, þá er rík­is­valdið auð­vitað ákaf­lega stór aðili að kjara­samn­ingum og verður að koma að borð­inu. Ríkið getur ekki sífellt hoggið úr laun­sátri, eftir á.

Á skjön við heilbrigð markmið

Það er sjálf­sögð krafa almenn­ings að þessum skerð­ingum verði alfarið hætt enda eigum við að tryggja öllum mann­sæm­andi elli­líf­eyri. Líf­eyr­is­sparn­aður er afrakstur vinnu fólks og á ekki að leiða til skerð­inga á kjörum síðar. Það á ekki að refsa fólki fyrir að spara.

Afskipti rík­is­ins eru hróp­lega á skjön við heil­brigð mark­mið vinnu­mark­að­ar­ins. Sama er uppi á ten­ingnum þegar kemur að mál­efnum öryrkja. Á vinnu­mark­aði er keppt að því að öryrkjar geti aflað sér tekna og lagt fyrir, þrátt fyrir skerta starfs­getu. Rík­is­valdið hins vegar vinnur gegn slíkum mark­miðum. Fólk fest­ist í lág­launa­gildrum hins opin­bera. Ef tæki­færi gefst til að afla ein­hverra tekna er hver króna tekin af við­kom­andi með skerð­ingum Trygg­inga­stofn­unar. Allir bjargir eru bann­aðar. Jafnvel vaxta­tekjur af sparn­aði eru teknar inn í skerð­ing­ar­út­reikn­inga.

Óréttlát stefna

Á sama tíma og þessar skerð­ingar eiga sér stað, styður hið opin­bera dyggi­lega við bakið á þeim sem eiga fyr­ir­tæki, taka arð­greiðslur út úr fyr­ir­tækjum og greiða sára­lítið til sam­fé­lags­ins og sam­neysl­unnar.

Svona eru afskipti rík­is­ins. Næst þegar fjár­mála­ráð­herra segir að ríkið eigi ekki að skipta sér af kjara­við­ræðum, mætti hann gjarnan íhuga þessi mál af meiri dýpt. Hann mætti hugsa um skerð­ing­arnar og hvernig þær eru einmitt dæmi um frek­leg afskipti af kjara­málum. Fátt myndi hafa betri áhrif á vinnu­mark­að­inn, en ef rík­is­valdið myndi hætta þessum skerð­ingum á tekjum þeirra sem verst hafa það í sam­fé­lag­inu. Þar er bolt­inn hjá Bjarna.

Höf­undur er for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og 2. vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár