Vextir óbreyttir

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreyttum. Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili minni spennu í þjóð­ar­bú­skapnum, launa­á­kvarð­ana og þró­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreyttum. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því áfram 4,5 pró­sent.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Samkvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í febr­ú­ar­hefti Pen­inga­mála er gert ráð fyrir að tölu­vert hægi á hag­vexti í ár og að hann verði 1,8 pró­sent. Þetta er um 1 pró­sentu minni vöxtur en bank­inn gerði ráð fyrir í nóv­em­ber og gangi það eftir yrði það minnsti hag­vöxtur sem mælst hefur frá árinu 2012. Hægari vöxtur stafar einkum af sam­drætti í ferða­þjón­ustu, sam­kvæmt Seðla­bank­anum. Horfur séu því á að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum minnki hraðar en áður hafi verið talið.

Verð­bólga jókst eftir því sem leið á síð­asta ár og mæld­ist 3,7 pró­sent í des­em­ber síð­ast­liðnum. Áhrif hækk­unar inn­flutn­ings­verðs vegna geng­is­lækk­unar krón­unnar á haust­mán­uðum síð­asta árs vega þar þyngst, segir í til­kynn­ing­unni. „Þótt verð­bólga hafi minnkað í 3,4 pró­sent í jan­úar og gengi krón­unnar hækkað frá des­em­berfundi pen­inga­stefnu­nefndar eru horfur á að verð­bólga auk­ist fram eftir ári og verði yfir mark­miði fram á seinni hluta næsta árs.“

Verð­bólgu­vænt­ingar mark­aðs­að­ila og verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði hafa lækkað frá des­em­berfund­inum. Taumhald pen­inga­stefn­unnar, eins og það mælist í raun­vöxtum Seðla­bank­ans, hefur því auk­ist á ný.

Samkvæmt bank­anum mun pen­inga­stefnan á næst­unni ráð­ast af sam­spili minni spennu í þjóð­ar­bú­skapnum, launa­á­kvarð­ana og þró­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.

Fram kemur í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans að pen­inga­stefnu­nefnd ítreki að hún hafi bæði vilja og þau tæki sem þurfi til að halda verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­ingum við mark­mið til lengri tíma litið. „Það gæti kallað á harð­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar á kom­andi mán­uðum. Aðrar ákvarð­anir, einkum á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum, munu skipta miklu um hvort svo verður og hafa áhrif á hversu mik­ill fórn­ar­kostn­aður verður í lægra atvinnustigi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár