Mun meiri kostnaður vegna aksturs þingmanna í kringum kosningar

Forseti Alþingis gat ekki svarað því nákvæm­lega hver akst­urs­kostn­aður þing­manna hefur verið í kringum kosn­ingar. En í svari hans kemur sýni­lega fram að kostn­aður eykst í kringum slíkar. Skatt­greið­endur borga fyrir kosn­inga­bar­áttu sitj­andi þing­manna.

Alþing­is­menn fá mun hærri end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar á þeim tíma­bilum þar sem kosn­ingar fara fram en öðrum. Þetta má lesa út úr svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um akst­urs­kostnað þing­manna fyrir kosn­ingar.

[links]Björn Leví vildi fá upp­lýs­ingar um akstur þing­manna í hverri viku í apríl og maí ann­ars vegar og sept­em­ber og októ­ber hins vegar frá árinu 2013 og þar til nú. Forseti gat ekki tekið saman slíkar upp­lýs­ingar innan gef­ins tíma­frests en birti þess í stað hver end­ur­greiddur kostn­aður vegna akst­urs þing­manna var frá jan­úar og út júní ár hvert ann­ars vegar og frá júlí og út des­em­ber hins vegar. Þær upp­lýs­ingar gefa, að mati for­seta, „sæmi­lega mynd af því sem spurt er um“.

Nið­ur­staðan er nokkuð afger­andi. Í einu vor­kosn­ing­unum sem fram fóru á þeim árum sem spurt var um fengu þing­menn mun hærri end­ur­greiðslur en á öðrum sam­bæri­legum tíma­bilum þegar slíkar áttu sér ekki stað. Það varð aug­ljós aukn­ing á kröfum um end­ur­greiðslur kostn­aðar á þeim haust­mán­uðum þar sem próf­kjör og kosn­ingar hafa farið fram.

Miklu meiri kostnaður í kringum kosningarnar 2013

Kosið var til Alþingis í apríl 2013. Á fyrri hluta þess árs voru end­ur­greiðslur 5,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði eða alls 35 millj­ónir króna yfir hálfs árs tíma­bil.

[adspot]Til sam­an­burðar var kostn­aður vegna end­ur­greiðslu á sama tíma­bili fyrri hluta árs 2014 23,8 millj­ónir króna, árið 2015 22,8 millj­ónir króna, árið 2016 20,2 millj­ónir króna, árið 2017 17,3 millj­ónir króna og 12,1 milljón króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins í fyrra. Því liggur fyrir að síð­ast þegar kosn­ingar fóru fram að vori til á Íslandi fengu þing­menn 23 millj­ónum krónum meira í end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar á fyrri hluta árs en þeir fengu á sama tíma­bili í fyrra. Það þýðir að þing­menn­irnir keyrðu næstum þrisvar sinnum meira, og fengu næstum þrisvar sinnum hærri end­ur­greiðslu af skattfé fyrir akstur sinn, á fyrri hluta árs þegar kosn­ingar voru en þegar slíkar voru ekki.

Ólíkar haustkosningar

Síðustu tvær þing­kosn­ingar hafa farið fram að hausti til, þ.e. í októ­ber 2016 og 2017.

Árið 2013 fengu þing­menn 24 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar á síð­ari hluta árs og ári síðar var sú tala afar svipuð, eða 24,7 millj­ónir króna. Árið 2015 lækk­aði hún í 21,1 milljón króna en 2016, þegar kosn­ingar voru haldnar, hækk­aði hún í 24,1 milljón króna, eða um þrjár millj­ónir króna. Það var aukn­ing um 14,2 pró­sent milli árs þar sem kosn­ingar áttu sér ekki stað og árs þar sem slíkar voru haldnar.

Árið 2017 var svo boðað til kosn­inga með rúm­lega mán­aðar fyr­ir­vara. Flestir flokkar slepptu því að halda pró­kjör fyrir þær kosn­ingar og kosn­inga­bar­áttan var mjög knöpp. End­ur­greiddur kostn­aður þing­manna vegna akst­urs lækk­aði því umtals­vert milli ára og var 17.6 millj­ónir króna. Athygl­is­vert er þó að bera saman end­ur­greiddan akst­urs­kostnað á seinni hluta árs­ins 2018 og árs­ins á undan, en á síð­ustu fimm mán­uðum síð­asta árs nam end­ur­greiðslan 11,6 millj­ónum króna. Hlé var gert á þing­fundum 14. des­em­ber, sem er mjög snemmt í öllum sam­an­burði, og því má ætla að kostn­aður vegna rétt­mætra end­ur­greiðslna ætti ein­ungis að eiga við um hálfan þann mánuð. Ef miðað er við með­al­tal­send­ur­greiðslur fyrstu fimm mán­aða tíma­bils­ins þá má því ætla að heild­ar­end­ur­greiðslu fyrir síð­ari hluta árs 2018 væru um 14 millj­ónir króna. Það þýðir að kostn­aður vegna end­ur­greiðslu dróst saman um 20 pró­sent frá síð­ari hluta kosn­inga­árs­ins 2017 og sama tíma­bils ári síðar.

Leynd hvíldi yfir árum saman

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­­lýs­ingar um hvaða þing­­menn fái end­­ur­greiðslu vegna akst­­urs, en án árang­­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­­menn hefðu fengið end­­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­­lýs­ingar um hvaða þing­­menn var að ræða. Þær upp­­lýs­ingar þóttu þá of per­­són­u­­leg­­ar.

[adspot]Í byrjun febr­úar 2018 svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­­spurn Björns Leví Gunn­­ar­s­­sonar, þing­­manns Pírat­­ar, um akst­­ur­s­­kostn­að. Í svari for­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­­ur­greiðsl­­urnar þáðu á síð­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Skömmu síðar opin­ber­aði Ásmundur í við­tali að hann væri sá sem hefði þegið hæstu greiðsl­urn­ar.

Ákveðið að breyta reglum og birta upp­lýs­ingar

Upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­anir um mögu­lega sjálftöku þing­manna. Aug­ljóst væri að það stæð­ist illa skoðun að Ásmundur væri að keyra 47.644 kíló­metra á einu ári, líkt og hann sagð­ist vera að gera, ein­ungis vegna vinnu sinnar sem þing­mað­ur. Þess utan var sýnt fram á það með útreikn­ingum frá Félagi íslenskra bif­reið­ar­eig­enda að rekstr­ar­kostn­aður bif­reiðar sem keyrð er þá vega­lengd er ein­ungis um tvær millj­ónir króna, ekki 4,6 millj­ónir króna. Af þeim tölum var ljóst að þing­menn gátu hagn­ast umtals­vert umfram kostnað af því að fá end­ur­greiðslur vegna akst­urs.

Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­leg­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­ar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borð­ið.

For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur mán­að­ar­lega. Auk þess var ákvæði í reglum um þing­fara­kostn­að, sem fjallar um bíla­leigu­bíla, gert skýr­ara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þing­menn séu að nota eigin bif­reið­ar. Breyt­ing­arnar náðu einkum til þing­manna sem falla undir svo­­kall­aðan heim­an­akst­­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­­lega um þing­­tím­ann. Það eru þing­­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­­ur­­nesjum, Vest­­ur­landi, Árnes­­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­­reið­um, sem kemur til end­­ur­greiðslu, varð eftir breyt­ing­arnar bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­metra­fjölda á skrif­stofa Alþingis láta umræddum þing­manni í té bíla­leigu­bíl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár