Endurgreiðslur vegna aksturs þingmanna á eigin bílum dragast verulega saman

Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2018 nema end­ur­greiðslur vegna akst­urs eigin bif­reiða 701 þús­und krónum að með­al­tali. Heild­ar­kostn­aður þeirra á tíma­bil­inu er nálægt því sá sami og einn þing­maður fékk í slíkar end­ur­greiðslur í fyrra.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, komst í kastljósið snemma árs þegar opinberað var að hann fékk hæstar endurgreiðslur vegna aksturs á síðasta ári.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, komst í kast­ljósið snemma árs þegar opin­berað var að hann fékk hæstar end­ur­greiðslur vegna akst­urs á síð­asta ári. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þingmenn Íslend­inga fengu sam­tals um 4,9 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá Alþingi vegna akst­urs eigin bif­reiða á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2018, eða um 701 þús­und krónur á mán­uði sam­tals.

[links]Ef end­ur­greiðslur verða sam­bæri­legar síð­ustu fimm mán­uði árs­ins munu heild­ar­greiðslur vegna akst­urs eigin bif­reiða nema um 8,4 millj­ónum króna. Í fyrra, á árinu 2017, fengu þing­menn sam­tals 29,2 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar, eða 2,4 millj­ónir króna á mán­uði. Þar af fékk einn þing­maður, Ásmundur Frið­riks­son úr Sjálf­stæð­is­flokknum, rúm­lega 4,6 millj­ónir króna. Það þýddi að hann fékk um 385 þús­und krónur end­ur­greiddar á mán­uði.

Alls hafa þing­menn síðan til við­bótar leigt sér bíla­leigu­bíla fyrir 11,3 millj­ónir króna á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins.

Því er ljóst að í kjöl­far mik­illar umfjöll­unar fjöl­miðla um akst­urs­kostnað Alþing­is­manna, sem var opin­ber­aður í fyrsta sinn í byrjun þessa árs, þá hefur end­ur­greiðslu­beiðnum þing­manna vegna notk­unar á eigin bílum fækkað veru­lega. Þetta má sjá í upp­lýs­ingum um laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna sem birtar eru á vef Alþingis.

Leynd hvíldi yfir árum saman

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fái end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­menn hefðu fengið end­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn var að ræða. Þær upp­lýs­ingar þóttu þá of per­sónu­leg­ar.

[adspot]Í byrjun febr­úar 2018 svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírat­ar, um akst­urs­kostn­að. Í svari for­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­ur­greiðsl­urnar þáðu á síð­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Skömmu síðar opin­ber­aði Ásmundur í við­tali að hann væri sá sem hefði þegið hæstu greiðsl­urnar.

Ákveðið að breyta reglum og birta upplýsingar

Upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­anir um mögu­lega sjálftöku þing­manna. Augljóst væri að það stæð­ist illa skoðun að Ásmundur væri að keyra 47.644 kíló­metra á einu ári, líkt og hann sagð­ist vera að gera, ein­ungis vegna vinnu sinnar sem þing­maður. Þess utan var sýnt fram á það með útreikn­ingum frá Félagi íslenskra bif­reið­ar­eig­enda að rekstr­ar­kostn­aður bif­reiðar sem keyrð er þá vega­lengd er ein­ungis um tvær millj­ónir króna, ekki 4,6 millj­ónir króna. Af þeim tölum var ljóst að þing­menn gátu hagn­ast umtals­vert umfram kostnað af því að fá end­ur­greiðslur vegna akst­urs.

Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­legar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­berar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borðið.

[adspot]For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur mán­að­ar­lega. Auk þess var ákvæði í reglum um þing­fara­kostnað, sem fjallar um bíla­leigu­bíla, gert skýr­ara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þing­menn séu að nota eigin bif­reiðar. Breyt­ing­arnar náðu einkum til þing­manna sem falla undir svo­kall­aðan heim­an­akst­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­lega um þing­tím­ann. Það eru þing­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­ur­nesjum, Vest­ur­landi, Árnes­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­reið­um, sem kemur til end­ur­greiðslu, varð eftir breyt­ing­arnar bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­metra­fjölda á skrif­stofa Alþingis láta umræddum þing­manni í té bíla­leigu­bíl.

Aksturkostnaður Ásmundar tekið stakkaskiptum

Sá þing­maður sem er með hæstan ferða­kostnað inn­an­lands það sem af er ári er Þórunn Egils­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Alls hefur ferða­kostn­aður hennar, sem sam­anstendur af leigu á bíla­leigu­bílum, flug­ferðum, gisti- og fæð­is­kostn­aði og elds­neytis­kaupum, numið tæp­lega 2,3 millj­ónum króna.

Sá þing­maður sem hefur hlotið hæstar end­ur­greiðslur vegna notk­unar á eigin bif­reið á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins er Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, líka úr Fram­sókn­ar­flokknum. Samtals hefur hún fengið 869 þús­und krónur end­ur­greiddar, en vert er að taka fram að hún hefur ekki eytt einni krónu í bíla­leigu­bíla og fjöl­margir þing­menn eru með hærri heild­ar­endu­greiðslur vegna ferða­kostn­aðar en hún.

Ásmundur Frið­riks­son hefur fengið 694.090 krónur end­ur­greiddar vegna notk­unar á bif­reið sinni á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins, eða um 99.156 krónur að með­al­tali á mán­uði. Þegar kostn­aður hans vegar bíla­leigu­bíla er lagður saman við þá tölu kemur í ljós að heild­arakst­urs­kostn­aður hans er tæp­lega 1,2 millj­ónir króna á árinu, eða 168.133 krónur, eða um 44 pró­sent af þeirri upp­hæð sem hann fékk mán­að­ar­lega end­ur­greidda að með­al­tali á síð­asta ári vegna notk­unar á eigin bif­reið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár