Uppbygging fyrirhuguð við Suðurlandsbraut og Ármúla

Borg­ar­stjóri og for­stjóri Reita skrif­uðu í dag undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um sam­starf og upp­bygg­ingu á lóð við Suð­ur­lands­braut og Ármúla. Gert er ráð fyrir að fram­kvæmdir á lóð­inni geti haf­ist innan tveggja ára frá því nýtt deiliskipu­lag hefur verið sam­þykkt.

Uppbyggingarsvæðið við Suðurlandsbraut og Ármúla
Upp­bygg­ing­ar­svæðið við Suð­ur­lands­braut og Ármúla Mynd: Reykjavíkurborg

Upp­bygg­ing er fyr­ir­huguð á lóð­inni Suð­ur­lands­braut 34 / Ármúli 31, sem er í eigu Reita fast­eigna­fé­lags. Gert er ráð fyrir að lóðin geti rúmað 400 til 500 íbúðir ásamt hús­næði fyrir atvinnu­starf­semi. Iðn­að­ar­hús­næði sem fyrir er við Ármúla mun víkja fyrir þess­ari upp­bygg­ingu og gert er ráð fyrir að Orku­húsið svo­kall­aða muni standa áfram.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg en Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Guðjón Auð­uns­son for­stjóri Reita skrif­uðu í dag undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um sam­starfið og upp­bygg­ing­una. Und­ir­skriftin fór fram á þaksvölum Orku­húss­ins.

Í vilja­yf­ir­lýs­ingu kemur fram að deiliskipu­lag fyrir svæðið verði end­ur­skoðað í sam­ræmi við aðal­skipu­lag Reykja­víkur 2010 til 2030 og verða þrjár arki­tekta­stofur fengnar til að vinna hug­myndir að breyttu skipu­lagi. Gert er ráð fyrir að lóðin verði minnkuð við Suð­ur­lands­braut vegna fyr­ir­hug­aðrar legu Borg­ar­línu.

Áform sem voru kynnt í borg­ar­ráði í des­em­ber miða við bland­aða byggð og að heild­ar­bygg­ing­ar­magn á lóð­inni verði að lág­marki 45.000 fer­metrar, íbúðir verði 400 til 500 tals­ins og atvinnu­hús­næði um 5.000 til 6.000 fer­metrar. End­an­legt bygg­inga­magn, útfærsla og gerð hús­næðis mun taka mið af fyr­ir­hug­aðri hug­mynda­sam­keppni um skipu­lag lóð­ar­innar. Upp­bygg­ing á lóð­inni verður í sam­ræmi við mark­mið og í anda hús­næð­is­á­ætl­unar Reykja­vík­ur­borgar þannig að um 15% íbúða á lóð­inni verða leigu­í­búðir, íbúðir Félags­bú­staða, stúd­enta­í­búðir, búsetu­réttar­í­búðir og/eða íbúðir fyrir aldr­aða.

Þegar deiliskipu­lags­hug­mynd liggur fyrir verður upp­bygg­ingin útfærð nánar og tíma­sett, sem og gengið frá sam­komu­lagi um greiðslur, kaup­rétt og kvaðir. Gert er ráð fyrir að fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu á lóð­inni geti haf­ist innan tveggja ára frá því nýtt deiliskipu­lag hefur verið sam­þykkt.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir þetta vera stóran og mik­il­vægan upp­bygg­ing­ar­reit í borg­inni sem standi með­fram fyrsta áfanga Borg­ar­línu. „Það er mik­il­vægt að sam­staða er um að stefna að fjöl­breyttri, spenn­andi og bland­aðri byggð. Suð­ur­lands­brautin er hryggjar­stykkið í nýjum þró­unar­ási borg­ar­innar sem nær frá Hlemmi upp að Ártúns­höfða þannig að þetta eru mik­il­væg tíma­mót og verk­efni sem von­andi mun gefa tón­inn á svæð­inu.“

Guðjón Auð­uns­son for­stjóri Reita segir að fyr­ir­tækið hafi í nokkurn tíma haft áform um að nýta betur stóra lóð félags­ins sem standi á mik­il­vægum reit á horni Suð­ur­lands­brautar og Grens­ás­vegar. „Að mati félags­ins er stað­setn­ing lóð­ar­innar afar vel til þess fallin til að þróa þar bland­aða byggð sem felur í sér aukna áherslu á íbúðir í bland við atvinnu­hús­næði. Þá mun fyr­ir­huguð upp­bygg­ing njóta góðs af nálægð við þjón­ustu í Skeif­unni og Glæsibæ sem og við útis­vist­ar­svæði í Laug­ar­dal, íþróttir og ekki síst sam­göngur, þar sem borg­ar­lín­unni er ætlað að liggja um Suð­ur­lands­braut,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár