Umfjöllun leiddi til aukningar á tilkynningum um peningaþvætti

Alls mót­tók pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa hér­aðs­sak­sókn­ara 655 til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti á árinu 2016. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2018 urðu þær rúm­lega 800 tals­ins.

Ólafur Þór Hauksson er héraðssaksóknari. Peningaþvættisskrifstofan var færð til embættis hans sumarið 2015.
Ólafur Þór Hauksson er hér­aðs­sak­sókn­ari. Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan var færð til emb­ættis hans sum­arið 2015. Mynd: Hringbraut

Aukin umfjöllun um pen­inga­þvætti leiddi til þess að til­kynn­ingum til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara hefur fjölgað umtals­vert. Á árinu 2016 voru mót­teknar 655 slíkar til­kynn­ingar, árið 2017 voru þær 718 en á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2018 voru þær rúm­lega 800 tals­ins.

[links]Þetta kemur fram í grein­ar­gerð sem fylgdi með frum­varpi að nýjum heild­ar­lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem varð að lögum í byrjun árs 2019.

Ef til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unnar urðu jafn margar á síð­asta þriðj­ungi árs­ins og þær urðu á fyrstu átta mán­uðum þess þá má ætla að fjöldi til­kynn­inga hafi nálægt tvö­fald­ast frá árinu 2016.

Í grein­ar­gerð­inni kom fram að fjölgun til­kynn­inga hafa leitt til fleiri rann­sókna að hálfu lög­reglu og að fyr­ir­séð sé að mála­fjöldi muni halda áfram að aukast með auk­inni fræðslu og eft­ir­liti sem stefnt sé að.

Kjarninn greindi frá helstu breyt­ing­unum sem fylgja nýrri heild­ar­lög­gjöf um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í frétta­skýr­ingu í gær. Þar kom meðal ann­ars fram að í apríl 2018 hafi íslenskum stjórn­völdum verið gert það ljóst af sam­tök­unum Financial Action Task Force (FATF) að annað hvort myndu þau taka sig til og inn­leiða almenni­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista alþjóð­legu sam­tak­ana Financial Action Task Force (FATF) um ósam­vinnu­þýð ríki.

[adspot]Í úttekt sam­tak­anna á stöðu mála Íslandi fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn. íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráð­herra var settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gildi á þriðju­dag, þann 1. jan­úar 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár