Tveir af hverjum þremur telja að margir eða allir íslenskir stjórnmálamenn séu spilltir

Fjöldi þeirra sem telja marga eða alla stjórn­mála­menn á Íslandi viðriðna spill­ingu hefur næstum því tvö­fald­ast frá árinu 2016. Fleiri treysta Alþingi ekk­ert en áður. Það sem er lík­leg­ast til að auka traust eru tíð­ari afsagnir þing­manna.

Alls telja 65 pró­sent lands­manna að margir eða nán­ast allir stjórn­mála­menn á Íslandi séu viðriðnir spill­ingu. Árið 2016, þegar Panama­skjölin voru opin­beruð, töldu 34 pró­sent lands­manna að margir eða nán­ast allir íslenskir stjórn­mála­menn væru spilltir. Einungis níu pró­sent lands­manna telja að nán­ast engir eða fáeinir stjórn­mála­menn séu spilltir en fyrir tveimur árum var það hlut­fall 28 pró­sent.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem fram­kvæmd var dag­anna 4. til 17. des­em­ber 2018. Könnunin var send út á á 2000 ein­stak­linga og 975 svör­uðu og var því þátt­töku­hlut­fallið um 49 pró­sent. Gögnin sem könn­unin byggir á voru vigtuð eftir kyni, aldri, búsetu og menntun þannig að úrtakið end­ur­spegli þýði Íslend­inga að þessu leyti.

Könnunin er því gerð eftir að fréttir um hið svo­kall­aða Klaust­urs­mál hófu að birt­ast og nið­ur­stöð­urnar sýna því áhrif þess á til­trú almenn­ings á Alþingi.

Fleiri treysta Alþingi ekki neitt

í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur fram að 62 pró­sent lands­manna telja að það myndi auka traust þeirra til Alþingis mikið ef meira væru um afsagnir þing­manna í kjöl­far mis­taka. Engin ein ástæða er meira ráð­andi í traust­leysi á Alþingi í dag en sú að þing­menn segi ekki af sér þegar þeir verða upp­vísir af mis­tökum.

[adspot]Það hlut­fall var 50 pró­sent fyrir fimm árum síðan. Þá, árið 2013, töldu flestir að traust þeirra á Alþingi myndi aukast mikið ef að starf þess væri mark­viss­ara.

Athygli vekur að 16 pró­sent aðspurðra telja að nán­ast allir stjórn­mála­menn lands­ins séu viðriðnir spill­ingu. Fyrir tveimur árum síðan, eftir að Panama­skjölin voru opin­beruð, töldu fimm pró­sent lands­manna að nán­ast allir stjórn­mála­menn lands­ins væru spilltir. Það hlut­fall hefur því rúm­lega þre­fald­ast á tveimur árum.

Að sama skapi telja ein­ungis tvö pró­sent lands­manna að nán­ast engin þing­maður sé spilltur, en það hlut­fall var sjö pró­sent árið 2016.

Fleiri segj­ast ekki treysta Alþingi neitt í dag en gerðu það fyrir fimm árum síðan þegar sömu spurn­ingar voru lagðar fyrir í sam­bæri­legri könnun. Nú segj­ast 18 pró­sent lands­manna bera alls ekk­ert traust til Alþingis en það hlut­fall var 16 pró­sent árið 2013.

Það hefur þó fækkað í þeim hópi sem ber mjög eða frekar litið traust til Alþingis. Í dag er helm­ingur þjóð­ar­innar á þeirri skoðun en það hlut­fall var 60 pró­sent árið 2013.

Klaustursmálið áhrifavaldur

Þann 28. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hófu fjöl­miðlar að birta fréttir upp úr upp­töku af sam­tali sex þing­manna, – fjórum úr Mið­flokknum og tveimur úr Flokki fólks­ins – sem tekin var upp á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber. Í sam­tali þing­mann­anna, sem var tekið upp að hluta á meðan að þing­fundur stóð yfir, níð­ast þeir og hæð­ast að nafn­greindu fólki stjórn­málum. Þeir heyr­ast einnig stæra sig að póli­tískum hrossa­kaupum, þing­menn Mið­flokks­ins reyna að telja þing­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann og þekktan bar­áttu­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann.

[adspot]Þing­­menn­irnir sex sem ræddu saman á fund­inum á Klaustur bar, 20. nóv­­em­ber, voru Sig­­mundur Dav­íð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins , Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, og Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Með þeim voru Karl Gauti Hjalta­­son og Ólafur Ísleifs­­son úr Flokki fólks­ins. Þeir tveir síð­­ast­­nefndu hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins, og Berg­þór og Gunnar Bragi eru farnir í leyfi. Eng­inn þing­­manna hefur sagt af sér, og eng­inn hefur það í hyggju.

Miklar fylgisbreytingar

Í könn­unum sem gerðar hafa verið að und­an­förnu hefur komið skýrt fram að Klaust­urs­málið hefur haft umtals­verð áhrif á hið íslenska stjórn­mála­lands­lag. Í könnun MMR sem birt var í síð­ustu viku mæld­ist Mið­flokk­ur­inn til að mynda með 5,9 pró­sent fylgi en hafði mælst með 13 pró­sent í fyrri könn­unum.

Flokkur fólks­ins fær líka útreið og mælist með 4,2 pró­sent fylgi. Það myndi ekki duga honum til að ná inn manni ef kosið yrði í dag. Sam­an­lagt fylgi þess­ara tveggja flokka, sem hafa átt nokkra sam­leið í mörgum málum, helm­ing­að­ist milli kann­ana.

Aðrir flokkar bættu að sama skapi við sig fylgi. Sá flokkur sem græddi mest er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Fylgi hans jókst um fimm pró­sentu­stig og mælist nú 12,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðferði

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Stjórn­mála­menn sem velja að draga ekki línu í sand­inn

Almenn­ingur á að geta gert ríkar kröfur til þeirra sem bjóða sig fram sem kjörnir full­trúar. Þótt þeir geri slíkt fyrir hönd ákveð­inna stjórn­mála­flokka, og þar af leið­andi til að beita sér fyrir ákveð­inni hug­mynda­fræði, þá eru mörg mál sem falla utan þess ramma. [links]Í þeim málum reynir á getu stjórn­mála­manna að standa í lapp­irnar og taka rétta sið­ferð­is­lega afstöðu....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár