Píratar ekki alltaf vinsælustu krakkarnir á kaffistofu Alþingis

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir seg­ist telja að eft­ir­lits­stofn­anir séu mögu­lega vilj­andi und­ir­fjár­magn­aðar. Það sé erfitt að vera að slást í því að auka gagn­sæi og traust, en láta svo slá á putt­ana á sér þegar bent sé á að rann­saka þurfi meint mis­ferli.

„Mjög mikið af þessum eft­ir­lits­stofn­unum okkar hafa verið und­ir­fjár­magn­aðar alla tíð. Ég held að það sé ekki alveg óvilj­andi.“

Þetta er á meðal þess sem Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut klukkan 21:00 í kvöld.

Þar ræðir hún meðal ann­ars stöðu íslenskra eft­ir­lits­stofn­ana og van­getu þeirra til að sýna frum­kvæði í rann­sóknum. Þór­hildur Sunna gagn­rýnir meðal ann­ars að slíkar stofn­anir geti „ ekki bara tekið það upp á sitt eins­dæmi að standa vörð um þessi grunn­lýð­ræðis gildi sem við höfum.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Þór­hildur Sunna fer einnig yfir nið­ur­stöðu siða­nefndar Alþingis frá því fyrir helgi, sem taldi að hún hefði gerst brot­leg við siða­reglur þing­manna með ummælum um meinta sjálftöku Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks. Hún segir það vera mark­mið Pírata að efla gagn­sæi og traust á stjórn­málum. „Við erum bara sex akkúrat núna inni á þingi. Og við erum ekki alltaf vin­sæl­ustu krakk­arnir á kaffi­stof­unni. Það er svo­lítið erfitt að vera alltaf að slást í því ein og láta svo slá á putt­ana á sér þegar að kona er að gera það sem hún telur vera rétt, sem er að benda á að það sé eðli­legt að rann­saka mis­ferli, meint mis­ferli.“

[adspot]Á und­an­förum árum hefur borið mikið á nafn­lausum áróðri á sam­fé­lags­miðlum sem settur er fram til þess að reyna að hafa áhrif á umræðu um íslensk stjórn­mál. Nýjasta dæmið er póstur frá sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­bær­inu „Kosn­ingar“ þar sem nið­ur­stöðu siða­nefndar í máli Þór­hildar Sunnu er blandað saman við Klaust­urs­málið og áróð­ur­inn settur fram þannig að í fyrstu sé auð­velt að halda að um stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sé að ræða, þegar raun­veru­leik­inn er and­stæða þess.

Illa hefur gengið að ná tökum á nafn­lausum áróðri í íslenskum stjórn­málum og svo virð­ist sem það hafi skort vilja til að taka á slíkum af fullum þunga. Þór­hildur Sunna segir að hún sé ekki endi­lega þeirrar skoð­unar að það þurfi að breyta lögum um stjórn­mála­flokka til að taka á vanda­mál­inu. Þingmenn sjálfir séu auk þess ekki best til þess fallnir að rann­saka nafn­lausan áróður, til­urð hans og umfang. „Þetta ætti mögu­lega heima hjá Rík­is­end­ur­skoðun eða rík­is­skatt­stjóra sem fara með fram­fylgd­ina að þessum lögum.“

Hún segir að stemmn­ingin í kringum alla vinnu um breyt­ingar á lögum um stjórn­mála­flokka sé þannig að allir þurfi að vera sam­mála til að ná ein­hverju þar í gegn. „Annað hvort allir með, eða eng­inn. Fram­fara­skrefin hingað til, þá höfum við þurft að ná öllum saman. Það er kannski auð­veld­ara sagt en gert að ná öllum þessum átta flokkum saman um sam­eig­in­lega afstöðu um það hvernig eigi að taka á þessu. En ég held hins vegar að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að gera það.“

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti í ræðu á Alþingi í gær að hún hefði óskað eftir því að nefnd sem hefur starfað um upp­lýs­inga- og tján­ing­ar­frelsi skoði mál huldu­aug­lýs­inga sér­stak­lega. Þór­hildur Sunna segir það ánægju­lega þróun. Ráðandi öfl á hverjum tíma hafi lang­mestu get­una til að hafa áhrif í svona málum. „Ég held að það þurfi samt enga nefnd til að segja okkur að nafn­laus áróður sem fer í gang í kringum kosn­ingar eða í kringum hita­mál, og not­færir sér aðstæður eins og mína til þess að grafa undan skilj­an­legri reiði og sær­indum fólks gagn­vart þessu Klaust­urs­máli, með því að nota það í mínu máli. Það er rosa­lega kvik­ind­is­legt en grefur líka undan lýð­ræð­inu. Þetta er eitt­hvað sem við þurfum að ein­beita okkur miklu meira að.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðferði

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Stjórn­mála­menn sem velja að draga ekki línu í sand­inn

Almenn­ingur á að geta gert ríkar kröfur til þeirra sem bjóða sig fram sem kjörnir full­trúar. Þótt þeir geri slíkt fyrir hönd ákveð­inna stjórn­mála­flokka, og þar af leið­andi til að beita sér fyrir ákveð­inni hug­mynda­fræði, þá eru mörg mál sem falla utan þess ramma. [links]Í þeim málum reynir á getu stjórn­mála­manna að standa í lapp­irnar og taka rétta sið­ferð­is­lega afstöðu....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár