Skúli: Gerði mikil mistök en nú förum við til baka í „gömlu sýnina“

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sagði í við­tali við Kastljós að hann hafi fulla trú á því að það muni takast að ná samn­ingum við Indigo Partners.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sagð­ist í við­tali við Kastljós RÚV í kvöld vera að leggja alla áherslu á það að tryggja áfram­hald­andi rekstur félags­ins, en samn­inga­við­ræður við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners standa enn yfir.

Skúli sagð­ist bera fulla ábyrgð á þeim mis­tökum sem hefðu verið gerð í starf­semi félags­ins, og það væri eðli­legt að því væri velt upp, hvort hann væri rétti mað­ur­inn til að leiða WOW air áfram, ef tæk­ist að klára fjár­mögnun fyrir félagið. Hann sagð­ist trúa því að svo væri, og hann tryði því að félagið væri rétt að byrja, eins og Skúli hefur sagt sjálfur.

Eins og greint var frá í dag, þá misstu 111 fast­ráðnir starfs­menn og fjöl­margir starfs­menn í hluta­starfi og verk­töku, starfið í dag. Samtals voru það um 350 starfs­menn.

Skúli sagði hug sinn vera hjá starfs­fólk­inu, en að aðgerð­irnar hefðu verið nauð­syn­legar til að breyta leiða­kerfi félags­ins og styrkja grunn­rekstur þess, sem lággjalda­flug­fé­lag.

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í dag, þá sagði Skúla mis­tökin sem hann væri ábyrgur fyrir af afdrifa­rík. „Þetta er ákaf­lega sárs­auka­fullur lær­dómur vegna þess að á sama tíma höfum við byggt upp eitt­hvað ein­stakt með Wow air og þó að þetta krefj­ist þess að við tökum eitt erfitt skref aftur á bak til skamms tíma litið er ég sann­færður um að það geri okkur kleift að taka tvö skref áfram til lengri tíma litið og tryggi að Wow air dafni til fram­tíðar. Að þeim lík­indum að við fáum Indigo Partners sem fjár­festi vil ég hverfa aftur til upp­haf­legrar hug­sjónar okkar og sýna fram á að við getum sann­ar­lega byggt upp frá­bært lág­far­gjalda­fé­lag á lengri leiðum,“ sagði Skúli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár