Í stríði við Sjálfsbjörg vegna reykingaherbergis

Kristinn Guð­jóns­son segir að hann verði fyrir skeyt­ing­ar­leysi um heilsu sína af hálfu stjórn­enda Sjálfs­bjarg­ar­húss­ins. Þess í stað sé dylgjað um störf hans og brigður bornar á upp­lifun hans.

Í stríði við Sjálfsbjörg vegna reykingaherbergis
Vill að skeytt sé um heilsu sína Kristinn segir að hann rek­ist alls staðar á veggi þegar hann reynir að leita réttar síns svo hann þurfi ekki að þola tóbaks­reyk í íbúð sinni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kristinn Guð­jóns­son hefur nú í um fjögur ár staðið í deilum við stjórn Sjálfs­bjargar, lands­sam­bands hreyfi­haml­aðra, og þá sem reka Sjálfs­bjarg­ar­húsið að Hátúni 12, þar sem Kristinn býr og hefur búið í tæpa þrjá ára­tugi. Vill Kristinn meina að þeir sem stýri málum í Sjálfs­bjarg­ar­hús­inu sýni af sér full­komið skeyt­ing­ar­leysi um heilsu hans og rétt­indi. Ástæðan er sú að á íbúð­ar­gangi hans hefur verið inn­réttað reyk­inga­her­bergi en svo óhöndug­lega hefur það verið gert að mati Kristins að hann er útsettur fyrir reyk­mengun í eigin íbúð. Veldur það honum mik­illi van­líðan enda hefur hann óþol fyrir tóbaks­reyk, það hafa læknar skrifað upp á. Viðbrögð Sjálfs­bjargar og þeirra sem reka Sjálfs­bjarg­ar­heim­ilið við umkvört­unum Kristins hafa hins vegar verið því sem næst engin en brigður bornar á upp­lifun Kristins og líðan og dylgjað um að atvinna hans, sem hann hefur stundað árum saman, valdi van­líðan hans.

Sjálfs­bjarg­ar­húsið að Hátúni 12 hýsir ýmsa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár