ASÍ vill að sett verði þak á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar

Mið­stjórn ASÍ skorar á rík­is­stjórn­ina að standa með almenn­ingi og setja þak á vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar til að forða heim­ilum þess lands frá því að þurfa að taka höggið af þeirri efna­hags­legu óvissu sem nú ríkir í flug­rekstri hér á landi.

1. maí kröfuganga 2018.
1. maí kröfu­ganga 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn ASÍ skorar á rík­is­stjórn­ina að standa með almenn­ingi og setja þak á vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar til að forða heim­ilum þess lands frá því að þurfa að taka höggið af þeirri efna­hags­legu óvissu sem nú ríkir í flug­rekstri hér á landi. Sporin frá banka­hrun­inu hræða.

Þetta kemur fram í ályktun mið­stjórnar ASÍ um vanda Wow og afleið­ingar hans.

„Und­an­farna mán­uði hefur mikil óvissa ríkt um um fram­tíð flug­fé­lags­ins Wow, félags sem fengið hefur að vaxa óheft og á hraða sem virð­ist á engan hátt hafa verið sjálf­bær. Þetta er ástand sem minnir óþægi­lega á óheftan vöxt bank­anna í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins fyrir ára­tug,“ segir í álykt­un­inni.

Jafn­framt kemur fram að stærð og áhrif Wow á efna­hags­kerfi lands­ins séu gríð­ar­leg og afleið­ing­arnar af hugs­an­legu þroti fyr­ir­tæk­is­ins yrðu alvar­legar. Verð­bólgu­skot, atvinnu­leysi og sam­dráttur sem bitni verst á venju­legu launa­fólki. Mörg þús­und starfs­menn og fjöldi fyr­ir­tækja eigi sitt undir því að loft­brúin til lands­ins lask­ist ekki.

Vegna óvissu um fram­tíð Wow var 237 starfs­mönnum sagt upp í gær og fimmtán til við­bótar í dag hjá fyr­ir­tækjum á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í ályktun ASÍ kemur fram að þetta séu mestu fjölda­upp­sagnir síðan banda­ríski her­inn hvarf á braut 2006. Þetta sé gríð­ar­legt högg fyrir það svæði á land­inu þar sem atvinnu­leysi hefur verið mest í gegnum tíð­ina. Fjöldi fjöl­skyldna sé í mik­illi óvissu í aðdrag­anda jóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár