Bakkavararbræður lánuðu sjálfum sér til að kaupa eign sem þeir þegar áttu

Félögin sem Ágúst og Lýður Guð­munds­synir nýttu til að ferja fjár­magn til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands hafa verið í umfangs­miklum við­skiptum við hvort annað. Þau við­skipti hafa skilið eftir millj­arða í bók­færðan sölu­hagnað.

Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, oft­ast kenndir við Bakkavör, seldu hluta­bréf í Bakkavör Group sem voru í eigu íslensks félags þeirra, Korks Invest, til aflands­fé­lags­ins Alloa Finance Ltd., skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og einnig í þeirra eigu, árið 2015. Kaupin voru fjár­mögnuð með selj­enda­láni upp á 11 millj­arða króna.

[links]Bræð­urnir lán­uðu því sjálfur sér til að kaupa eign sem þeir þegar áttu, og gátu í kjöl­farið bæði bók­fært margra millj­arða króna sölu­hagnað og fært hluta­bréfin frá íslensku félagi og inn í aflands­fé­lag. Frá þessu er greint í nýj­ustu útgáfu Stund­ar­innar sem kom út síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Umrætt félag Alloa Finance hafði áður lánað Korki Invest fimm millj­arða króna til að kaupa hluta­bréfin á árinu 2012. Korkur Invest hefur ekk­ert greitt af því láni og gjald­fallnar afborg­anir eru nú um 1,2 millj­arðar króna.

Misstu yfirráð

Um er að ræða fléttu sem á sér rætur í því að bræð­urnir vildu, og náðu, aftur yfir­ráðum yfir Bakkavör, fyr­ir­tækis sem þeir stofn­uðu á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Þeir misstu yfir­ráð yfir því eftir banka­hrunið yfir til helstu kröfu­hafa.

[adspot]Það gerð­ist fyrst með nauða­samn­ingi sem gerður var í upp­hafi árs 2010. Í honum fólst að kröfu­hafar, að mestu leyti Arion banki og skulda­bréfa­eig­endur á borð við íslenska líf­eyr­is­sjóði, tóku yfir Bakkavör en bræðr­unum var gefið tæki­færi til að greiða kröfu­höf­unum til baka fyrir mitt ár 2014. Gengi það eftir myndu bræð­urnir fá 25 pró­senta eign­ar­hlut í Bakkavör.

Í upp­hafi árs 2012 var orðið aug­ljóst að for­sendur nauða­samn­ing­anna myndu ekki halda og á aðal­fundi Bakka­varar Group í maí sama ár var sam­þykkt að breyta kröfum kröfu­hafa Bakka­varar Group í hlutafé í breska rekstr­ar­fé­lagi sam­stæð­unnar, íslenska Bakkavör Group yrði slitið og bræð­urnir myndu fá að kaupa fjórð­ungs­hlut í breska félag­inu og hlut­hafa­sam­komu­lag sem tryggði þeim meiri­hluta stjórn­ar­manna í Bakkavör, sem gert hafði verið í aðdrag­anda nauða­samn­inga árið 2010, yrði fellt úr gildi.

Fjórð­ungs­hlut­inn fengu bræð­urnir að kaupa á fjóra millj­arða króna.

Náðu þeim aftur

Í kjöl­far aðal­fund­ar­ins fóru bræð­urnir á fullt í að kaupa hlutafé ann­arra hlut­hafa. Þeir virt­ust vera með mikið fé á milli hand­anna og fyrir lá að ekki var um að ræða lánsfé frá fjár­mála­stofn­unum. Flestir töldu að þarna væru um að ræða það fé sem hol­lenskt félag þeirra, Bakka­bra­edur Holdings B.V., sem hélt á eign­ar­hlutum þeirra í Existu og Bakkavör fyrir hrun, hafði greitt þeim í arð­greiðslur á upp­gangs­ár­unum. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kom fram að það félag hefði verið á meðal þeirra aðila sem þáðu hæstar arð­greiðslur allra félaga í eigu Íslend­inga á þessum tíma. Alls fékk félagið tæpa níu millj­arða króna í arð­greiðslur á árunum 2005 til 2007.

Ágúst og Lýður nýttu sér leið sem Seðla­banki Íslands hafði sett upp til að koma þessu fé aftur til Íslands. Leiðin kall­að­ist fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans og virk­aði þannig að þeir sem áttu fjár­muni utan íslenskrar efna­hags­lög­sögu var boðið að koma með þá pen­inga hingað til lands og skipta þeim í íslenskar krónur með allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu. Þeir sem áttu krón­urnar, óþol­in­móðir aflandskrónu­eig­endur, þurftu að bera tapið af þessum við­skiptum en Seðla­banki Íslands var í hlut­verki milli­göngu­að­ila. Með þessu gátu t.d. Íslend­ingar sem höfðu komið fjár­munum undan fyrir hrun leyst út allt að 50 pró­sent geng­is­hagnað, fengið áður­nefnda virð­is­aukn­ingu í boði Seðla­banka Íslands og nýtt fjár­mun­ina í að kaupa eignir á Íslandi á bruna­út­sölu.

[adspot]Auk þess gátu þeir fengið heil­brigð­is­vott­orð á fjár­muni sem mögu­lega hafði verið komið undan skatti eða haldið frá rétt­mætum kröfu­höfum, en Kjarninn hefur greint frá því að nær ekk­ert eft­ir­lit var til staðar með því hvort að þeir sem færðu fjár­muni til lands­ins með þessum hætti væru að stunda pen­inga­þvætti.

Á meðal ríkustu manna Bretlands

Bakka­var­ar­bræður not­uðu tvö félög í þessum til­gangi, ann­ars vegar aflands­fé­lagið Alloa Finance og hins vegar íslenska félagið Kork Invest. Fyr­ir­komu­lagið var þannig að Alloa Finance átti Kork Invest og lán­aði því síð­ar­nefnd fimm millj­arða króna. Korkur hefur aldrei greitt af því láni en not­aði það til að kaupa hluti í Bakkavör Group af íslenskum aðilum.

Á árinu 2015 lán­aði Korkur Invest síðan móð­ur­fé­lagi sínu, Alloa Finance, alls 11 millj­arða króna til þess að kaupa hluta­bréfin af sér. Í Stund­inni er vitnað í árs­reikn­ing Korks Invest fyrir árið 2015 þar sem segir að „Þann 30. nóv­em­ber 2015 seldi félagið alla hluti sína í Bakkavör Group Ltd fyrir 11 millj­arða kr. Tekju­færður sölu­hagn­aður af við­skipt­unum er færður í rekstr­ar­reikn­ing félags­ins að fjár­hæð 7,3 millj­arða kr., kaup­andi var Alloa Finance Ltd., móð­ur­fé­lag Korks Invest ehf. Söluverð nam GBP 55.424.594 og var sölu­and­virði greitt með láni frá selj­anda. Lánið ber 5% vexti sem eru reikn­aðir skv. 30/360 daga reikni­reglu, gjald­dagi láns­ins er 1. des­em­ber 2020 en lán­taka er heim­ilt að greiða lánið fyrir gjald­daga.“

Ágúst og Lýður náðu á end­anum fullum yfir­ráðum yfir Bakkavör Group að nýju. Síðan þá hefur virði fyr­ir­tæk­is­ins marg­fald­ast og eignir þeirra voru metnar á 700 millj­ónir punda, um 111 millj­arða króna, um síð­ustu ára­mót. Það skil­aði þeim í 197. sæti yfir rík­ustu íbúa Bret­lands, sam­kvæmt árlegum lista Sunday Times.

Í nýrri bók, Kaupt­hink­ing - Bankinn sem átti sig sjálfur, kemur fram að íslensk yfir­völd telja bræð­urna hafa verið end­an­lega eig­endur félags­ins Dek­hill Advis­ors Limited, aflands­fé­lags skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju, sem hagn­að­ist um 5,8 millj­arða króna á núvirði á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingaleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Seðla­bank­inn sem villt­ist af leið

Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Íslands, skrifar grein sem birt var á Kjarn­anum síð­degis í gær. Þar gerir hann athuga­semdir við það orða­lag að svokölluð fjár­fest­inga­leið, sem Seðla­banki Íslands bauð upp á milli 2012 til 2015, hefði verið opin­ber pen­inga­þvætt­is­leið. Már vísar sér­stak­lega í leið­ara sem birt­ist hér á þessum vett­vangi 21. októ­ber 2019 vegna orða fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár