Bakkavararbræður taldir eigendur Dekhill Advisors

Í nýrri bók er greint frá því að bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir séu taldir eig­endur Dekhill Advisors Limited af íslenskum skatta­yf­ir­völdum.

Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að end­an­legir eig­endur félags­ins Dekhill Advisors Limited, aflands­fé­lags skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju, séu bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, oft­ast kenndir við Bakkavör. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri bók eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, sem kemur í versl­anir í dag. Bókin heitir Kaupt­hink­ing: Bankinn sem átti sig sjálfur og fjallar um ris, fall og eft­ir­mála af starf­semi Kaup­þings, stærsta banka lands­ins fyrir banka­hrun.

[links]Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003, sem birt var í fyrra, kom fram að aflands­fé­lagið Dekhill Advisors Limited, skráð á Tortóla, hafi hagn­ast um 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 2,9 millj­arða króna á þávirði, á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á bank­anum. Á núvirði er upp­hæðin um 5,8 millj­arðar króna.

[adspot]Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sýndu að ítar­leg gögn styðji að Hauck & Auf­häuser, Kaup­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Lux­em­bo­urg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­sonar fjár­­­festis hafi not­að leyn­i­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­legt eign­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Well­ing & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Well­ing & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“

Þar sagði enn fremur að „síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga gerðu það að verk­um, að Well­ing & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­fé­lags­ins Mar­ine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Mar­ine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son. Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­fé­lags­ins Dek­hill Advis­ors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur Dek­hill eða hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.“

Rann­sókn­ar­nefndin spurði m.a. Ágúst og Lýð um félagið skrif­lega. Í svari þeirra sögðu þeir að þá „reki ekki minni til atriða sem því tengj­ast“. Nú er, líkt og áður sagði, hægt að greina frá því að bræð­urnir Ágúst og Lýður eru taldir vera eig­endur Dekhill Advisors.

Dekill Advisors ratað aftur í fréttir fyrir rúmum mán­uði síðan þegar Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, athafna­maður og fyrr­ver­andi kjöl­festu­eig­andi í Lands­bank­an­um, sagði í stöðu­færslu á vef sínum að þótt því hafi verið vand­lega haldið leyndu fyrir skatt­rann­sókn­ar­stjóra hverjir eigi Dekhill Advisors þá hafi „ýmsir sem þekkja þokka­lega til hafa hvíslað því að mér að þar að baki séu stærsti hlut­hafi og æðstu stjórn­endur Kaup­þings.“

Ágúst og Lýður voru aðal­eig­endur Exista, stærsta eig­anda Kaup­þings fyrir hrun.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um mál­efni Dekhill Advisors hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár